blaðið - 16.06.2006, Síða 18

blaðið - 16.06.2006, Síða 18
18 I HEILSA FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 blaöiö Jóga lœkkar blóðþrýstinginn Fólk ígóðuformi hefur ekki háan hvtldarpúls en hann hœkkar við kaffidrykkju. Hvíldarpúls er fjöldi hjartslátta á mínútu í hvíld. Eðlilegur hvíld- arpúls er einstaklingsbundinn og breytilegur eftir aldri. Nýfædd börn hafa hraðann hvíldarpúls, um 100-160 slög á mínútu, en þegar þau stækka hægist á púlsinum. Eðlilegur hvíldarpúls fullorðinna er á bilinu 35-100 slög á mínútu en að meðaltali erhann rúm 70 slög. Konur hafa yfirleitt nokkuð hraðari púls en karlmenn og þá sérstaklega þegar þær eru barnshafandi. Fólk í góðri þjálfun hefur alla jafna lægri hvíld- arpúls en kyrrsetumenn og maraþon- hlauparar hafa iðulega hvíldarpúls undir 55 slögum á mínútu. Þau sem stunda jóga og íhugun geta einnig hægt á púlsinum. Hraður hvíldar- púls er nefnilega yfirleitt orsök óróa, en hiti, blóðleysi og vökvatap ásamt efnum eins og koffín og nikótíni hækka púlsinn. Búddamúnkar sem iðka jóga geta lækkað hvíldarpúlsinn niður í nokkur slög á mínútu enda yfirleitt um mjög afslappaða einstak- linga að ræða. margret@bladid.net Örugg og ánægð börn í bílnum! Young Profile plus Möguleiki á bakvísandi stööu Young Expert plus Isofix System Young Sport Young Style Bíbimiðurinn hf Bíldshöfðo 16 1 10 Reykjavík 567 2330 Róaðu taugar, liðkaðu leggi, gerðu jógaœíingar heima Gott úrval jógakennsluþátta máfá á DVD-diskum. Nú duga engar afsaknir um tímaskort og fátækt lengur til að stöðva fólk í að stunda jóga. Á vefsíðunni www.amazon.co.uk má finna gífur- legt úrval af jógakennsluþáttum sem hægt er að panta sér, svo er bara að kaupa ódýra jógadýnu og byrja að gera æfingarnar á stofugólfinu heima. Þessum þáttum er oftast stjórnað af fólki sem er mjög framar- lega á sínu sviði, en á vefsíðunni má einnig taka tillit til stjörnugjafar sem fyrri kaupendur hafa gefið þáttunum. ! YOGA «1- PowerYoga Power Yoga Total Body diskurinn með Rodney Yea kom út í fyrra og fær fullt hús af stjörnum frá þeim sem hafa prófað aðferðir hans. - Kostar um 1700 kr. Parental Yoga Jóga fyrir barnshafandi konur. Þessi diskur kostar um 12 sterlingspund, eða 1.700 krónur sem er töluvert ódýrara en flest námskeiðin. Gery body yoga Jóga með Geri Halliwell. Margir muna hvernig kryddpían Geri Halli- well gerbreyttist í útliti á skömmum tíma fyrir nokkrum árum. Hún þakkar jógaiðkun breytingarnar og hér má fá disk sem er gefin út af kennaranum sem kom henni í form, Katie Appelton. -Kostar um 1700 kr. Hagkaup • World Class • Hreyfing • Hress Hollusta 'um bital

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.