Fréttatíminn - 31.08.2012, Blaðsíða 46
6 hjólreiðar Helgin 31. ágúst-2. september 2012
Alls er
keppt í
fjórum
hringjum:
Gull-
hring,
silfur-
hring,
brons-
hring og
krakka-
hring.
Hvaða hjól áttu og af
hverju valdirðu það?
„Ég nota nú þrjú hjól:
Létt fjallahjól, „racer“
og nú var ég að fá mér
nýtt fjallahjól sem hentar
vel þegar maður er með
töskur. Uppáhaldshjólið
er létta fjallahjólið, Scott
Scale 35, carbon hjól. Það
var fyrsta alvöru hjólið
sem ég eignaðist um
2007. Félagarnir í HMS
voru oft að gera grín að
eldra fjallahjólinu sem ég
átti en ég taldi hinsvegar
alltaf að þetta sport snér-
ist eingöngu um líkam-
legt þrek og því skipti það
litlu máli á hvaða hjóli
maður væri. Ég hafði ekki
rétt fyrir mér!“
Uppháldshjólaleiðin?
„Líklega verður það að
teljast Heiðmörkin. Djúpa-
vatnsleiðin í Bláa lónið er
einnig alltaf skemmtileg. En skemmtilegasta
ferðin í sumar var að hjóla Flateyjardalinn í
blíðskaparveðri. Flateyjardalur er eyðidalur
sem opnast við Flatey á Skjálfanda, við byrj-
uðum að hjóla í Fnjóskadalnum. Síðan hjólaði
ég mjög skemmtilegar leiðir á sunnanverðum
Vestfjörðum í sumar.“
María Ögn Guðmundsdóttir er margfaldur Íslandsmeistari í hjólreiðum.
Hvaða hjól áttu og af hverju vald-
irðu það?
„Ég á þrjú hjól. Trek Lexa ra-
cer, fyrsta götuhjólið mitt sem ég
keypti vorið 2011, fallegt hjól sem
hefur reynst mér sérstaklega vel
í keppnum sumarsins. Síðan á
ég Scott Contessa fjallahjól sem
ég fékk í fertugsafmælisgjöf frá
eiginmanninum. Einnig á ég
hollenskt Batavus ferðahjól með
körfu og hliðartöskum sem ég
nota í búðarferðum. Það hjól fékk
ég þegar ég bjó í Hollandi,“ segir
Alma María Rögnvaldsdóttir.
Hvar er uppáhaldshjólaleiðin
þín?
„Mér finnst frábært að fara
upp í Heiðmörk á fjallahjólinu. Á
götuhjólinu finnst mér skemmti-
legast að fara í góðum hóp á
fáfarna akvegi þar sem hægt er
að halda góðum hraða.“
Hjólið AlmA mAríA rögnvAldsdóttir AfrekskonA
Bæði hjólað og hlaupið hringinn
Alma María Rögnvaldsdóttir afrekskona er líklega ein fárra sem bæði hefur hlaupið
og hjólað hringinn í kringum Ísland.
Hjólið Hörður ArnArson, forstjóri
Heiðmörkin í uppáhaldi
Hörður Arnarson, for-
stjóri Landsvirkjunar,
hjólaði hringinn í kringum
Ísland ásamt félögum
sínum í WOW cyclothoninu
í sumar og komst á pall
með fremstu mönnum.
Hjólið mAríA ögn guðmundsdóttir
Á eyrnalokka í stíl við hjólin
Hvaða hjól átt þú og af hverju
valdir þú það?
„Ég á þrjú TREK hjól, alveg
rosalega ólík hjól til ólíkra nota
í hjólreiðum og keppni. Fjalla-
hjólið mitt er TREK Superfly 29.
Tímatökuhjólið mitt (þríþrautar-
hjól) er TREK Speed Consept 7,8
og síðan er götuhjólið mitt TREK
Madone SSL 6,9 Project one. Og
svona upp á gamanið á ég þrenna
eyrnalokka í stíl við litinn á öllum
hjólunum mínum, rauða, græna
og svarta, smá stemning í því,“
segir María Ögn Guðmundsdótt-
ir hjólreiðakona.
Hvar er uppáhaldshjólaleiðin
þín?
„Það er erfitt að nefna eina
leið þar sem greinarnar innan
hjólreiða eru svo ólíkar. En ef
ég nefni eina þá er það Vestur-
gatan á fjallahjólinu. Þá er
hjólað frá Þingeyri inn Kirkju-
bólsdal upp Álftamýrarheiði í
544m hæð, niður Fossdal, út
fyrir Lokinhamra og Svalvoga
og aftur á Þingeyri. Ég er búin
að keppa þarna tvisvar sinnum
og upplifunin er erfið en ham-
ingjan hefur verið 100% í bæði
skiptin.“
HRinGiRniR fjóRiR
GULLHRINGURINN
111 km – „racerar“,
götuhjól og fjallahjól
Hjólað frá Laugarvatni
klukkan 11.30 sem leið
liggur að Geysi. Beygt inn
á Biskupstungnabraut
rétt fyrir neðan Geysi og
hjólað niður allar Biskups-
tungurnar sem leið
liggur yfir Brúará og inn á
Grímsnesið, alla leið niður
að Þingvallaafleggjar-
anum. Þaðan er hjólað
upp Þingvallasveitina að
beygjunni inn á Lyngdals-
heiði og loks er hjólað í
mark við Laugarvatn.
SILFURHRINGURINN
48.5 km – fjallahjól og
götuhjól (ekki „racera“-
færi)
Hjólað frá Laugarvatni
klukkan 12 að Geysi,
beygt inn á Reykjaveg,
rétt ofan við Böðmóðs-
staðaafleggjarann og
hjólað niður Reykjaveg-
inn yfir Reykjaheiði (mis-
grófur malarvegur) inn
á Biskupstungnabraut
fyrir neðan Vegatungu
sem leið liggur yfir
Brúará og inn á Gríms-
nesið að bænum Svína-
vatni. Þar er beygt inn á
veginn upp að Apavatni
og þaðan er svo hjólað
sem leið liggur í mark á
Laugarvatni.
BRONSHRINGURINN
12 km – fjallahjól með og
án „suspension“
Hjólað frá Laugarvatni
klukkan 15 upp að
Laugarvatnsfjalli. Þar er
hjólað um mjög skemmti-
legan stíg í fjallshlíðinni,
bæði á vegleysum og
sveitavegum og komið
til baka í hring og niður á
Laugarvatnsveg aftur og
teknir þrír sambærilegir
hringir. Mjög skemmtileg
leið aftur inn í mark við
Laugarvatn.
KRAKKAHRINGURINN
1-3 km – allar tegundir
barnahjóla
Hjólað inn að Laugarvatni
frá klukkan 13, 14 og
15 eftir aldursflokkum.
Hjólað eftir vel merktum
og öruggum leiðum í
kringum tjaldsvæðið á
Laugarvatni. Vel merktar
leiðir í þremur aldurs-
flokkum 6 til 8 ára, 9
til 12 ára og svo 13 til
15 ára. Allir keppendur
fá verðlaunapoka frá
skipuleggjendum.
HjólreiðAkeppni Á morgun fer gullHringurinn frAm Á lAugArvAtni
Uppskeruhátíð
hjólreiðafólks
H jólreiðakeppn-in Gullhring-urinn fram á Laugarvatni á
morgun. Eins og nafnið
gefur til kynna er Gull-
hringurinn kenndur við
það sem erlendir ferða-
langar á Íslandi kalla
„The Golden Circle.“
A-riðill Gullhringsins
liggur frá Laugarvatni
að Geysi og þaðan niður
Biskupstungnabraut að
Þingvallaafleggjaranum í
Grímsnesi og upp þar að
Gjábakkavegi yfir Lyng-
dalsheiði og að Laugar-
vatni aftur. Sú leið er fyrir
lengra komna og telur
um 111 kílómetra. Einnig
er keppt í aðgengilegri
vegalengdum, 48.5 km og
12 km.
Aðstandendur Gull-
hringsins vildu bæta við
stóru opnu hjólreiðamóti
í lok sumars en keppnis-
sumarið byrjar hjá flestum
með Bláalónsþrautinni
í byrjun júní. Svo koma
Heiðmerkuráskorunin og
Tour De Hvolsvöllur. Allar
eiga þessar keppnir það
sameiginlegt að vera opn-
ar og mjög aðgengilegar
fyrir byrjendur í sportinu.
Síðan er fjöldinn allur af
harðari keppnum þar sem
keppt er í meiri hraða eða
lengri vegalengdum sem
ekki eru eins aðgengi-
legar.
Aðstandenur Gull-
hringsins eru því að reyna
að koma á fót einskonar
uppskeruhátíð hjólreiða-
manna á Laugarvatni
þennan dag en alls er
keppt í fjórum hringjum:
Gullhring, silfurhring,
bronshring og krakka-
hring. Þegar keppendur
koma í mark er þeim
boðið upp á heita súpu og
frían aðgang að glæsilegri
baðaðstöðu hjá Laugar-
vatni Fontana. Klukkan
18 verður keppendum,
fjölskyldum og vinum svo
boðið uppá fría aðstöðu
til að grilla og í framhaldi
verður tendraður varðeld-
ur og sungið með brekku-
Uppskeruhátíð hjólreiðafólks verður á Laugarvatni á morgun en þar fer fram Gullhringurinn svokallaði; hjólreiðakeppni
fyrir alla fjölskylduna.
söngsbrag inn í kvöldið.
Gull, Silfur og Brons-
hringir verða hjólaðir og
tímateknir með flögutækni
sem er það nákvæmasta
og besta á landinu. Að auki
verður markið myndað með
háskerpu upptökuvél þannig
að tímatakan verður eins
og best verður á kosið. Nú
þegar hafa margir af bestu
hjólreiðamönnum boðað
komu sína í Gullhringinn.
Vegleg verðlaun verða í
boði fyrir fyrstu sætin. Tugir
veglegra brautarverðlauna
verða dregnir út úr nöfnum
skráðra keppenda í verð-
launaafhendingunni. Meðal
verðlauna eru Garmin hjóla-
tölva, Countour sport videó-
myndavél frá Hátækni, flug-
miðar fyrir tvo til London
með WOWair og margskonar
hjólafatnaður og búnaður.
Fésbókarsíða keppninnar
er: https://www.facebook.
com/Gullhringurinn
Öll aðstaða fyrir tjöld,
tjaldvagna, fellihýsi og hjól-
hýsi er til fyrirmyndar á
Laugarvatni.