Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.08.2012, Side 64

Fréttatíminn - 31.08.2012, Side 64
52 bækur Helgin 31. ágúst-2. september 2012  RitdómuR NætuRóskiN Nýjasta bók danska spennu- sagnahöfundarins Jussi Adler-Olsen, Flöskuskeyti frá P, rýkur upp metsölulista bókaverslana, situr í fjórða sæti kiljulistans og áttunda sæti aðallistans. Jussi er nú í heimsókn hér á landi sem ýtir væntanlega enn frekar undir vinsældirnar. Jussi á uppleið  RitdómuR FaNtasíuR H elst nýjung í útgáfum á Vestur­löndum eru svokallað „mommy porn“, erótískar sögur skrifaðar af konum sem stefnt er inn í lesenda­ hóp kvenna á öllum aldri. Snemma í vor var greinilegt að íslenskir útgefendur höfðu hug á að notfæra sér þessa bylgju blautlegra rómana þegar auglýst var eftir textum til útgáfu sem lýstu fantasíum íslenskra kvenna. Hildur Sverrisdóttir lögfræðingur var ábyrgðarkona verksins en efni til útgáfu var safnað um vefsíðu. Skilmálar fyrir birtingu voru ljósir. Uppruni sagnanna skyldi órekjanlegur, ritlaun voru gefin eftir og útgefanda var heimilt að snikka óraskrifin til. Í formála bókarinnar, sem er fallega frágengin en með nokkuð smáu letri, þá kemur fram að 51 texti var valinn úr nær 200 inn­ sendingum. Nafnleynd var við innsend­ ingu og því ekki loku fyrir skotið að ein­ hverjir karlar hafi laumast í tölvuna sína og slett úr klaufunum. Segir í formála að í „flestum tilvikum var textinn aðeins stílfærður lítillega en stundum var hann unninn meira, ýmist styttur eða skerpt á einstökum atriðum.“ Ekki er getið um aldur höfunda sem hefði verið fróðlegt. Hér er því ýmislegt að athuga. Sögurnar fimmtíu eru flestar skrifaðar út frá gamalkunnugum staðalímyndum um konur (há, grönn, barmmikil, stinn og brún) og karla (hár, stæltur, grannur, fagurhærður, kraftalegur) á fengialdrin­ um. Dagdraumar þessir ganga nær allir út á beinar samfarir karls og konu, þeir fara oft fram með valdi, sumir ókunn­ ugir, en einnig eru í bland safamiklar lýsingar á kynlífi kvenna. Ástarfundir eiga sér stað innan veggja heimilis og á opinberum stöðum, vinnusvæðum og gististöðum. Lyftur og skápar njóta hylli. Endimörk hverrar sögu eru mikil og lostaþrungin fullnæging. Höfunda dreymir um hópkynlíf, makaskipti, eigin­ menn lána konur til vina, margir órarnir ganga nærri nauðugu samræði, í nær öllum tilvikum er samræðið án varna. Einn smokkur er minnisstæður eftir lesturinn en hann fór á banana. Fullyrða má að væru sögurnar sagðar eftir karl­ menn mundi það vekja almenna hneyksl­ un. Stílfræðilegt og bókmenntalegt gildi þeirra er lítið, nema þær gefa sína mynd af þröngu og þjökuðu ímyndunarafli frá­ segjenda sem eru fastir á klafa arfsagna klámiðnaðar okkar daga þótt lítið sé um bindingu og meiðingar, engin dýr komi við sögu og sneytt sé hjá misnotkun á ófullveðja einstaklingum. Okkur er sagt að kverið státi nú efst á sölulistum. Forvitni rekur sýnilega marga í hnossið. Það er frekar til marks um velheppnaða söluaðferð í kynningu en gæði verksins sem er lítið svo staglsamt sem það er í skautaskoðun og skapa­ skemmtun sinni. Erindi frásagnanna er vitaskuld að vekja losta með lesanda, koma fólki til, erótískur litteratúr er til þess að vekja losta með lesanda, eins og klám er yfirleitt. Þessi búningur er í hreinlegri kápu en er milli spjaldanna ósvikið klám og ekki betra né verra þó það sé sagt runnið undan rifjum kvenna. Það sem er um­ hugsunarvert, fyrir utan nauðungarþrána sem mörg skrifin einkennast af, hina klisjukenndu draumsýn um líkama aug­ lýsingaiðnaðar Vesturlanda, er tvískinn­ ungurinn milli þessara blautu drauma og veruleikans, hér þýðir nei ekki nei. Ónei. Í þessari pakkningu er reynt að telja okkur trú um að klámið sé fínt og gefi okkur innsýn í hugarheim kvenna svo að kverið er helgað kynfrelsi kvenna. Væri þessi blauta brók af karlkyni mætti kalla hlutina réttum nöfnum: klám fyrir karla er ógn við líf kvenna, klám fyrir kerlingar er frelsandi. Bækur Páll Baldvin Baldvinsson pbb@frettatiminn.is Tittlinganámur Í ritröðinni Íslensk klassík er komin út síðari hluti sjálfsævisögu Tryggva Emilssonar, Baráttan um brauðið. Fylgir hún fyrra bindinu, Fátæku fólki, sem kom út í þessari ritröð 2010 sem var þá tekið með kostum og kynjum, eins og var raunar með bæði þessi verk við frumútgáfu þeirra á áttunda áratugnum. Hefur Baráttan um brauðið nú komið út í fjórum útgáfum sem segir sitt um viðtökur lesenda, því fátítt er að verk sem þetta komi út í síendur- teknum útgáfum á fjórum áratugum. Svo vitnað sé til gamals meistara bókmenntagagnrýni dagblaða, Ólafs Jónssonar: „Minningar Tryggva Emilssonar veita yfirsýn mikillar sögu eins og einn einstaklingur úr hópi þúsundanna hefur sjálfur lifað hana og hún bregður um leið upp ótal skilríkum dæmum mann- lífs og reynslu alþýðufólks...“ Baráttan um brauðið í kilju Sagan um Önnu litlu í Grænuhlíð er nú komin út í fimmta sinn á íslensku í nýrri þýðingu Sigríðar Láru Sigurjónsdóttur. Ólíkt fyrstu þýðingunni sem kom út 1933, aldarfjórðungi eftir fyrstu út- gáfu verksins vestanhafs, þá er verkið nú óstytt. Dvöl Önnu í Avonlea varð að ritröð og fyrir tæplega tveim áratugum var gerð eftir henni vönduð sjónvarpsmynd sem naut þá mikilla vinsælda. Ætti því söguefnið að eiga sér vísa aðdáendur hér á landi. Sögurnar af Önnu eiga bæði erindi til barna, unglinga og fullorðinna og teljast með réttu sígildar bókmenntir. Forlagið Ástríki gefur verkið út. Anna í Grænuhlíð í fimmtu útgáfu Norski rithöfundurinn Anne B. Ragde átti óvæntum vinsældum að fagna hér á landi með þríleik sínum sem kenndur er við Berlín­ araspirnar, ættarsögu þriggja kynslóða sem kom út fyrir fáum árum. Íslenskur útgefandi fylgdi þeim vinsældum eftir með skáld­ sögunni Arsenikturninum og nú rekur lestina stutt skáldsaga, Næturóskin. Þar segir af konu sem nær fertugu býr ein og starf­ ar sem blaðakona og sérhæfir sig í skrifum um popptónlist. Sagan er nánast samin við hljóðrás, fylgir norsku og alþjóðlegu poppi síðustu tveggja áratuga af natni. Lífshlaup konunnar það stutta tímabil sem sagna lýsir er að öðru leyti undir­ lagt af áköfu kynlífi, konan heldur úti misstuttum samböndum við fjölda karlmanna sem gagnast henni misjafnlega. Samfara ítarlegum og skorinorð­ um lýsingum á samlífi hennar rekur höfundur sam­ band hennar við fáar samstarfskonur sem eru ýmist í föstum samböndum eða lausum. Svo fer reyndar að lokum að gjálífi aðalpersónu verksins rekur hana á sker, ekki af heilsufarslegum ástæðum því hún ástundar heldur ábyrgðarlaust kynlíf, heldur af til­ finningalegum skorti. Lausn sögunnar er trúverð­ ug, hún finnur sinn prins á endanum. Að því leytinu er faflan forn, skipreika finnur hún höfn. Ragde er fædd 1957 og á að baki langan feril sem höfundur barnabóka, ljóða, skáldsagna fyrir unglinga og fullorðna. Næturóskin er bein tilraun til að fá sneið af lesendahópi svo kallaðra skvísu­ bókmennta: hin einhleypa kona lifir skorðuðu lífi í skjóli menntunar og hæfileika sinna en sú Nóra verður að finna sér nýjan stað eftir hurðarskellinn. Ragde en flinkur höfundur, gamansöm og glögg. Stíll hennar, ef sannfærandi þýðingu Hjalta Rögn­ valdssonar má marka, er stríður, flæðandi, fullur af sterkri skynjun fyrir stöðu konunnar og tilfinninga­ lífi, kaldrifjaðri drottnunarþörf hennar sem víkur sér frá tilfinningalegu bandi í skjóli stöðugra kyn­ lífsblossa. Karllæg krafa hennar um stöðugt nýja drætti er íronísk. Hún er þannig lengi vel á skjön við fórnarlambstón margra skvísubóka. Texti Hjalta er afbragð í þýðingunni. Sagan er því merkileg viðbót við kvennalitteratúr okkar daga og verður örugg­ lega mörgum kærkomin í hispursleysi sínu hvað sem niðurstaða verksins færir þeim lesendum. -pbb Næturlíf í Noregi  Fantasíur Hildur Sverrisdóttir ritstýrir JPV, 208 bls. 2012.  Næturóskin Anne B. Ragde Hjalti Rögnvaldsson þýddi. Mál og menning, 220 bls. 2012. Anna B. Ragde. Hildur Sverrisdóttir. Væri þessi blauta brók af karlkyni mætti kalla hlutina réttum nöfnum: klám fyrir karla er ógn við líf kvenna, klám fyrir kerlingar er frelsandi. H E LGA R BL A Ð H E LGA R BL A Ð

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.