Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.1995, Side 20

Læknablaðið - 15.01.1995, Side 20
12 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 ÆÐABÓLGUR Jóhannes Björnsson Björnsson J Idiopathic vasculitides Læknablaðið 1995; 81: 12-26 Idiopathic vasculitides are systemic inflammatory diseases of vessels, chiefly arteries, of all sizes. The etiology of most vasculitides is unknown. Some are infectious, others involve the deposition of circulat- ing immune complexes in vessel walls. Diagnosis is a composite of clinical symptoms and signs, serolo- gies, histopathology, clinical course and response to therapy. Seven main groups of idiopathic vascul- itides have been identified. Overlap syndromes are not uncommon, however, as classification is artifi- cial inasmuch it is based more on consensus than on actual biological features. Giant cell (temporal) ar- teritis is a systemic inflammatory disease of the aorta and its major branches, especially extracranial arter- ies. Its etiology and pathogenesis are largely un- known. Elderly persons of Nordic descent, chiefly women, are primarily affected. Inngangur Rokitanski (1) á líklega heiðurinn að því að hafa árið 1852 fyrstur lýst æðabólgu og greint hana rétt. Rudolf Virchow (2) skýrði nokkrum árum síðar frá sjúklingi með bólgu í slagæðum og kallaði endarteritis deformans. Fyrsta auð- þekkjanlega sjúkratilfellinu lýstu KuBmaul og Maier árið 1866 (3). Þeir krufðu 27 ára gamlan Frá Division of Anatomic Pathology, Department of Labora- tory Medicine and Pathology, Mayo Clinic/Mayo Founda- tion, Rochester, Minnesota 55905, Bandaríkjunum. Lykilorö: drepœdabólga, heilkenni Churgs og Straufi, hnúðager Wegeners, hvítféndur, ofnœmisœðabólga, purpuri Henochs og Schönleins, risafrumuœðabólga, Takajasú-œða- bólga, œðabólga. mann sem þjáðst hafði af nýrnasjúkdómi („morbus Brightii") og svæsinni vöðvalömun („rapide fortschreitender allgemeiner Muskel- lahmung"). Við þeim blasti sérkennilegur slag- æðasjúkdómur („eigenthumliche Arterien- erkrankung"), sem þeir fundu ekki stað í vís- indaritum og kölluðu periarteritis nodosa. Lýsing þeirra er nákvæm og svo skýr, að mynd- efnis þarf ekki við. Sjúklingur þeirra hefur tví- mælalaust gengið með drepæðabólgu, bæði hefðbundna og smásæja (sjá síðar). Undir miðja tuttugustu öld hafði flestum afbrigðum fjölkerfaæðabólgu verið lýst. Ómældri vinnu hefur síðar verið eytt í flokkun og skilgreining- ar þessara sjúkdóma og er óvíst að afraksturinn standi í viðunandi samræmi við erfiðið (4). Oftast er auðvelt að skipa hverjum og einum sjúklingi í einhvern meginflokka æðabólgu. Þannig eru til dæmis auðgreind: öldruð kona með höfuðverk, sjóntruflanir, sökkhækkun og risafrumubólgu í gagnaugaslagæð (risafrumu- æðabólga); sjúklingur með slímhúðardrep í nefi, blóðhósta og nýrnatruflun með blóðmigu (hnúðager Wegeners); ung kona með púls- veiklun, misjafnan blóðþrýsting í handleggjum og þrusk yfir viðbeinsslagæð (Takajasú-æða- bólga). Líklegt er, að um það bil fjórum fimmt- ungum sjúklinga, sem þegar hafa greinzt með æðabólgu, verði á þennan hátt auðskipað í til- tekna æðabólguflokka. Eftir standa þó all- margir sjúkdómar, sem skarast milli tveggja eða fleiri flokka, og enn fremur sjúklingar með æðabólgur eingöngu bundnar við húð. Síðast taldi hópurinn vefst óefað oftast fyrir læknum. Æðabólgur eru býsna algengur sjúkdómur, ekki sízt á Islandi, þar sem nýgengi risafrumu- æðabólgu er einna hæst í heiminum. Þessu yfir- liti er ætlað að skýra frá megingerðum sjálfvak- innar æðabólgu, með sérstakri áherzlu á vefja- gerð. Risafrumuæðabólga fær sérlega umfjöllun, og greint verður frá niðurstöðum nýlegrar rannsóknar á þeim sjúkdómi í íslend- ingum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.