Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1995, Page 36

Læknablaðið - 15.01.1995, Page 36
28 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 verðar einkum samanborið við önnur lönd, svo og til að fá yfirlit yfir umfang og þróun þjón- usturannsókna innan heilbrigðisþjónustunnar en öflun þeirra hefur lítið verið sinnt af hálfu hins opinbera. Á þessu árabili hafa töluverðar breytingar orðið á rannsóknatækni, sem valdið hefur áherslubreytingum jafnt á sjúkrahúsum sem heilsugæslustöðvum. Ennfremur hefur margvísleg læknisþjónusta flust frá sjúkrahús- um til einkarekinna læknastofa og samfara því hefur einkareknum rannsóknastofum fjölgað og þáttur þeirra í rannsóknum aukist. Stöðlun eininga og viðmiðunargilda ásamt gæðastjórnun á rannsóknastofum hefur verið í brennidepli síðastliðinn áratug. Hérlendis var gert átak í að breyta mælieiningum þjónustu- rannsóknastofa yfir í SI einingar (Systéme Int- ernational d’Unités) 1982 (2) enda mikil hag- ræðing í því að allir noti sömu einingar, meðal annars til að forðast misskilning. Var því ákveðið að kanna nú hvort allir notuðu sama einingakerfi svo og áhuga rannsóknastofanna á samvinnu um ytra gæðamat og samræmingu viðmiðunargilda um leið og aflað væri upplýs- inga um fjölda mælinga á árinu 1990. Efniviður og aðferðir Síðla sumars 1991 var sendur spurningalisti til allra aðila sem talið var að gerðu blóð- meina-, meinefna- og bakteríurannsóknir hér á landi. Þar á meðal voru allar ríkis- og einka- reknar heilsugæslustöðvar, öll sjúkrahús, hjúkrunar- og öldrunarstofnanir og einkarekn- ar rannsóknastofur. Spurt var um tegundir og fjölda rannsókna sem gerðar voru við hverja stofnun árið 1990. Spurningalistar voru sendir til 85 aðila. Spurningarnar voru ítrekaðar með bréfi, símtali eða hvoru tveggja eftir sex til 18 mánuði ef svör höfðu ekki borist. Ef engin svör höfðu þá fengist var fjöldi rannsókna áætlaður. Áætlunin byggði á rannsóknafjölda sömu stofnunar 1982 og var gert ráð fyrir hlutfalls- lega sömu breytingum og urðu að meðaltali hjá sams konar stofnunum á tímabilinu. Ef ekki var vitað um rannsóknafjöldann 1982 var tekið mið af rannsóknafjölda við stofnanir sem tald- ar voru sambærilegar. Rannsóknafjöldi við þær einkareknu rannsóknastofur, sem ekki gáfu upplýsingar, var áætlaður með því að deila með 7,0 í einingafjöldann sem Trygging- astofnun ríkisins greiddi viðkomandi stofu fyrir rannsóknir á árinu 1990 (3). Sú reiknings- aðferð byggist á könnun á rannsóknum á sjúk- lingum utan sjúkrahúsa við stofnun sem veitti svipaða þjónustu. Við uppgjör er stofnununum skipt í stór sjúkrahús (Borgarspítali, FSA, Landakotsspít- ali og Landspítali), önnur sjúkrahús, öldrunar- og hjúkrunarstofnanir, heilsugæslustöðvar og einkareknar rannsóknastofur. Skráningarað- ferðir voru samræmdar eftir föngum. Megin- reglan var að telja eina rannsókn að baki hverri niðurstöðu með þeirri undantekningu að hóp- ur rannsókna, sem gerðar eru samtímis á sama sýnishluta, telst ein rannsókn. Þannig er þvag- rannsókn með dýfuræmu talin ein rannsókn þó að með henni fáist upplýsingar um mörg atriði í einu. Sama gildir um mælingar á blóðgösum og blóðhag sem eru gerðar með tækjum sem skila mörgum niðurstöðum samtímis. Blóðflögu- talning var talin sér þó að sum tæki gefi upp blóðflögufjölda með blóðhag. Rannsóknir í meinefnafræði voru taldar hver fyrir sig enda þótt mörg tæki skili fleiri en einni niðurstöðu samtímis, til dæmis natríum og kalíum. Sykur- þol var talin ein rannsókn. Bakteríuræktun var talin ein rannsókn óháð fjölda æta. Súrefnis- firrð ræktun var talin sérstök rannsókn en ekki tekið tillit til næmisprófa. Rannsóknum var skipt í fimm flokka: Mein- efnafræði, blóðmeinafræði, þvagrannsóknir, bakteríurannsóknir og aðrar rannsóknir. Til meinefnafræðirannsókna eru hér taldar mæl- ingar á efnum sem uppleyst eru í sermi eða plasma öðrum en þeim sem taka þátt í storkn- un blóðs. Til blóðmeinafræði heyra talningar og deilitalningar blóðkorna, sökkmæling og storku-, blæðinga- og blóðtapparannsóknir. Rannsóknir á þvagi, aðrar en bakteríurann- sóknir, teljast til þvagrannsókna og til bakter- íurannsókna allar bakteríuræktanir og rann- sóknir til að sýna fram á bakteríur í sýnum. Til annarra rannsókna eru taldar rannsóknir sem ekki falla undir neinn af hinum flokkunum, til dæmis blóðbankarannsóknir, þungunarpróf og rannsóknir, aðrar en bakteríurannsóknir, sem gerðar voru á öðrum sýnum en blóði og þvagi, til dæmis mænuvökva, liðvökva, brjósthols- vökva og svo framvegis. Niðurstöður Spurningalistar voru sendir til 85 aðila og svör bárust frá 52 (61%). Fjöldi og svörun í hverjum flokki stofnana kemur fram í töflu I. Heimtur reyndust svipaðar og í könnuninni 1982. Athyglisvert er að sumir tóku fram að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.