Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1995, Page 75

Læknablaðið - 15.01.1995, Page 75
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 63 þaö veldur togstreitu og spennu. Hvenær hætt- ir lífið að vera líf? Hér verður leitast við að draga útlínur þessa viðfangsefnis með annarri skyldri spurningu. Sú spurning er opin og verður vafalaust um ófyrirséða framtíð. Hvenær er tímabært að hætta að lækna samkvæmt hefðbundinni merk- ingu þess orðs, það er að gera manninn heilan heilsu og ráða bót á sjúkleika hans? Og hvenær er þá tímabært að fara eingöngu að líkna, lina þjáningar þess manns, sem ekki verður lækn- aður? Hvenær verður líknin eina læknisverk- ið? Einhvers staðar á hinu virka meðferðarferli hlýtur umboði læknisins til að lækna að ljúka, hvenær gerist það og á hvaða forsendum? Hve- nær hættir hjálpin til að endurheimta heilsu og krafta að vera hjálp? Og er yfirleitt mögulegt að tala um hjálp, þegar hjálpin er farin að vinna gegn sjálfri sér? Það er fullljóst, að við getum ekki krafist þess af neinum lækni, að hann noti öll tiltæk læknisfræðileg úrræði til að lengja líf, sem honum er falið til umönnunar. Hvenær þá, ef nokkurn tímann, má læknirinn hætta að leit- ast við að lengja lífið? Ákvörðun í þá veru hlýtur að velta á því, hvort lífið sem hér um ræðir geti orðið lengra um einhvern tíma og hvort sá tími hafi þá tilgang og merkingu. Það er í þessum punkti, sem við erum leidd út fyrir landamæri fræðanna og knúin til að fá sem víðtækasta sýn á manninn. Hvað er það sem gerir manninn að manni, hvað er það sem myndar mennskuna sem læknirinn skuldbindur sig til að styðja sam- kvæmt Hippókratesar eiðnum, og hvar eru ntörkin dregin á milli lífs með inntaki og merk- ingu og þess lífs, sem er án þessa og af hverjunt eru þau mörk dregin? Svarið er einfalt þegar úrskurða þarf mann látinn. Það er lagalegt hlutverk læknisins að kveða upp úr um það. Og einungis í örfáum tilvikum árlega hér á landi þarf að beita skilgreiningu heiladauðans og þá er það gert eftir mælanlegum leiðum og með þekktum aðferðum. Hitt er jafn flókið og erfitt siðfræðilegt álitamál, þegar við beinum spurn- ingunni að tilvist mannsins og spyrjum: Hve- nær hættir lífið að vera líf? Þannig myndast spenna á milli þess sem stendur fyrir utan valdsvið okkar, það er grundvallarmerking og tilgangur mannnlegrar tilveru, og þess sem er á okkar valdi, það er að segja nútímaþekking læknavísindanna. Hér þurfum við því að leggja saman læknisfræðina, guðfræðina, lögfræðina, heimspekina. Listinn er engan veginn tæm- andi. Við þurfum að nota þessi tæki, við þurf- um að nota öll tiltæk meðul, í þjónustu við manninn til að varpa ljósi á stöðu hans og hjálpa honum til að gera upp hug sinn and- spænis spurningunni: Hvenær hættir lífið að vera líf? Á Borgarspítalanum hafa verið settar saman leiðbeiningar til að auðvelda vandasamar læknisfræðilegar ákvarðanir. Þessar leiðbein- ingar eru engan veginn tæmandi forsagnir um það hvernig eigi undantekningarlaust að takast á við erfið úrlausnarefni, heldur eru þær örlítil viðleitni til að mæta ofangreindri spurningu. Það mætti líka orða þetta svo að leiðbeining- arnar séu aðferð til að hjálpa fólki að spyrja og tala saman. Spurningarnar og samtalið eiga að miðast við velferð og hag sjúklingsins. Leið- beiningarnar eru samt engan veginn framvísun á ábyrgð sem læknirinn ber, heldur stuðningur við sjúklinginn, sem reynir að svara þessari ævafornu spurningu: Hvað viltu að ég geri fyrir þig? Spurningin um endurlífgun er kjörin aðferð til að nálgast þær grundvallarspurningar, sem oft er erfitt að koma orðurn að. Ef því er að skipta viltu þá að reynd verði endurlífgun á þér? Það er ekki óalgengt að sá sem stendur frammi fyrir slíku vali spegli þessa spurningu og varpi henni aftur til læknisins eða annarra? Hvað mundir þú gera? Unt leið er umræðan vakin um það sem oft er innifalið án orða: Hvenær hættir lífið að vera líf? Hvað get ég sjálfur hugsað mér í þessu sambandi? Þá erum við aftur komin að því sem vakið var máls á í upphafi, það er að segja, afstaðan veltur meðal annars á því hver það er sem spyr og hvenær hann spyr. I spurningalista, sent var lagður fyrir bandaríska lækna var viðhorf þeirra kannað til líknardauða. Annars vegar var spurt, hvort viðkomandi kysi aðstoð frá starfsfélaga við að binda endi á líf sitt, ef lækn- ing væri ekki möguleg og þjáningarnar óbæri- legar. Hins vegar var leitað svara við því, hvort menn myndu sjálfir gangast undir þá kvöð að vinna þetta læknisverk fyrir aðra. Það kom meðal annars fram í svörunum, að menn ætl- uðu öðrum að framkvæma það sem þeir treystu ekki sjálfum sér til að gera. Það sem brennur á mér persónulega kann að blasa við þér, sem ert álengdar fjær, á annan hátt. Hvað viðkemur afstöðunni til endurlífgunar hafa er- lendar rannsóknir leitt þessa sömu tilhneigingu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.