Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1995, Page 103

Læknablaðið - 15.01.1995, Page 103
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 87 almennu dómstóla, dómur gengið í héraði hinn 18. júlí 1989, en áfrýjað tii Hæstaréttar 8. september sama ár og beið þar til flutnings. Meðal ágrein- ingsefna var hvort einn hinna fastskipuðu dómenda gerðar- dómsins uppfyllti skilyrði 3. mgr. III. kafla siðareglna til setu í dóminum. Par sem þess hafði verið vænst, að dómur Hæstaréttar gengi síðari hluta árs 1990, ákvað gerðardómur- innn að fresta afgreiðslu áður- nefndra fimm mála þar til úr- láusn Hæstaréttar um ágrein- ingsefnið lægi fyrir. Dómur Hæstaréttar gekk hinn 31. mars 1992. Að honum gengnum þótti rétt að breyta ákvæðum reglna dómsins unt skipan hans, til þess að taka af öll tvímæli. Var það síðan gert á aðalfundi Læknafélags íslands á 28.-29. ágúst 1992. Dráttur á fyrirtöku framangreindra mála frá því dóminum bárust lög Læknafé- lags íslands með áorðnum breytingum stafaði öðrum þræði af önnum og fjarveru dómenda, en einnig af hinu, að dómendur töldu sig hafa nokkra ástæðu til að ætla, að sættir næð- ust með aðilum og vildu veita svigrúm og tækifæri til þess að þeirra kosta væri neytt. Á fundi sínum hinn 4. desem- ber 1993 fól dómurinn fram- kvæmdastjóra læknafélagsins að kalla eftir tilnefningu gerðar- manna af hálfu þeirra aðila er ekki höfðu þegar tilnefnt. I fjórum áðurgreindra mála urðu sættir með aðilum, fallið var frá áfrýjun þeirra og þau felld niður. Sóknaraðili hafði þegar við málskot sitt tilnefnt af sinni hálfu til setu í dóminum, en varnaraðili tilnefndi hinn 24.10. 1993 af sinni hálfu Samúel Sam- úelsson lækni. Sóknaraðili mót- mælti þeirri tilnefningu og Sam- úel Samúelsson lýsti sig vanhæf- an, með bréfi 21. janúar 1994. Með bréfi dagsettu 16. mars 1994 tilnefndi varnaraðili Guð- nýju Daníelsdóttur lækni til setu í dóminum. Aðilum var gefinn kostur á að skila greinargerðum í málinu og bárust þær 12. og 14. apríl 1994. Sumarleyfi dómenda og fjarvistir hafa valdið drætti á að dómendur gætu allir hist fyrr en hinn 29. október sl. þegar dóm- urinn kom saman og fór yfir málið. Vegna búsetu sóknaraðila er- lendis og þess dráttar, sem þegar hefur orðið á málinu, þykir dómendum ekki ástæða til að fresta meðferð málsins frek- ar, enda hafa aðilar málsins ekki óskað eftir því að tjá sig munnlega fyrir dóminurh, en kröfur og málsástæður virðast liggja ljóst fyrir. Dómsorð: Hinn áfrýjaði úrskurður á að vera óraskaður. Námssjóður lækna Á sameiginlegum fundi stjórna LÍ og LR þann 12. desember síðastliðinn var ákveðið að fráog með 1. janúar 1995 skuli hætt að draga af fastakaupi læknaá Ríkisspítölum framlag til Námssjóðs lækna. Framlag sjálfstætt starfandi sérfræðinga til sjóðsins er bundið í samningi milli LR og TR, þannig að stjórnir félaganna hafa ekki óskoraða heimild til breytinga á því. Nánar verður fjallað um Námssjóðinn í febrúarhefti Læknablaðsins. PÞ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.