Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.1995, Side 104

Læknablaðið - 15.01.1995, Side 104
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 Af siðleysi fyrrverandi Siðanefndar og aðgerðarleysi Gerðardóms Tímamótaúrskurður? Við læknar eigum því láni að fagna að geta haft Codex Eth- icus (Siðareglur lækna) að leið- arljósi í samskiptum okkar í millum og við sjúklinga. Siða- nefnd lækna og Gerðardómi er ætlað að standa vörð um að reglur Codex séu í heiðri hafð- ar. Þessir aðilar axla mikla ábyrgð, þar eð túlkun þeirra á reglunum hverju sinni segir læknum hvað þeir geta leyft sér og hvað ei. Eitt mikilvægasta hlutverk þeirra er að vinna gegn því að læknar beri deilumál sín á torg með því að fjalla um þau í fjölmiðlum. Um þetta eru skýr ákvæði í Codex, þar sem stend- ur meðal annars: „Lækni er skylt að auðsýna stéttarbróður drengskap og háttvísi jafnt í við- tali sem umtali, ráðum sem gerðum. Honum ber að forðast að kasta rýrð á þekkingu eða störf stéttarbróður." (1. grein III. kafla) Og: „Hann skal og forðast ummæli, sem geti skap- að .....órökstudda vantrú á læknisstarfi á sjúkrahúsum eða utan þeirra." (10 grein I. kafla) Undirritaður hefur aldrei að eigin frumkvæði tjáð sig opin- berlega um læknadeilu þá, sem upp kom á Isafirði fyrir fimm árum. Hann svaraði hins vegar nokkrum spurningum blaða- manns í stuttu símaviðtali vorið 1989, þegar tveir af fjórum heilsugæslulæknum á staðnum sáu sig knúna til að flytjast á brott vegna ósamkomulags við yfirlækni heilsugæslustöðvar- innar. Sem yfirlæknir sjúkra- hússins taldi ég málið mér við- komandi, þar sem heilsugæslu- læknarnir voru jafnframt í hlutastarfi á sjúkrahúsinu. Við- tal þetta var kært til Siðanefnd- ar af báðum eftirverandi heilsu- gæslulæknum, enda þótt annar þeirra, Bergþóra Sigurðardótt- ir, væri þar hvergi nefnd á nafn. Siðanefnd ályktaði að viðtalið yrði „ekki talið fela í sér mat eða vanmat á læknishæfileikum þeirra Bergþóru Sigurðardóttur og Geirs Guðmundssonar" en úrskurðaði samt undirritaðan brotlegan við 1. gr. III. kafla Codex Ethicus. Ég var þannig ekki dæmdur fyrir það sem ég sagði, heldur fyrir að tjá mig op- inberlega. Þótt ég væri mjög ósáttur við þennan úrskurð, ákvað ég að áfrýja honum ekki til Gerðardóms vegna þess að ég er hlynntur ströngum kröfum um fylgni við ákvæði Codex. Bergþóra Sigurðardóttir skrifaði 18. desember 1989 grein í blaðið „Bæjarins Besta" á ísa- firði. Þar stóð meðal annars: „Einar Hjaltason hafði drifið upp ábyrga þjónustu á gamla sjúkrahúsinu. Má það undrum sæta hve miklu var þar áorkað við tiltölulega ófullkomin skil- yrði. Sá staðall, sem þar hafði skapast hefur því miður ekki haldist og það sættum við okkur ekki við,“ og: „Viljið þið Vest- firðingar góðir verða af allri læknisþjónustu eða viljið þið hjálpa okkur Geir að koma læknisþjónustunni í það horf, sem ríkti, er ég kom hér fyrst?“ Þegar þetta var skrifað var ég yfirlæknir á F.S.Í. og hafði tveimur árum áður tekið við af Einari Hjaltasyni. Ég hélt því í einfeldni minni að ummælum þessum væri beint gegn mér og taldi þau jafnframt lýsa órök- studdri vantrú á starfsemi sjúkrahússins, sem ég var ábyrgur fyrir. Ég áleit því að B. S. hefði gerst brotleg við bæði þau ákvæði Codex, sem vitnað er í hér að ofan, einkum með hliðsjón af framangreindum úr- skurði Siðanefndar. Mikil var því undrun mín þegar sama Siðanefnd og skipuð sama fólki (en öðru en nú er) sá ekkert athugavert við skrif Bergþóru. Þar sem nefndin sýndi af sér það siðleysi (að mínu mati) að rök- styðja í engu niðurstöðu sína gat ég ómögulega skilið forsendur hennar og áfrýjaði til Gerðar- dóms, sem nú hefur komist að sömu niðurstöðu. Að dómurinn tók sér 53 mánaða umhugsunar- frest (hámark er níu mánuðir samkvæmt Codex Ethicus) hlýt ég að fyrirgefa. þar sem dóm- endum hefur tekist það sem Siðanefnd tókst ekki, nefnilega að finna tilhlýðileg rök fyrir nið- urstöðunni. Þeirbendaréttilega á að nafn mitt er hvergi nefnt í blaðagrein Bergþóru! Jafn- framt hafi Bergþóra sjálf starfað við sjúkrahúsið! Loks megi greinilega ráða af upphafsorð- um greinarinnar að hún sé skrif- uð í allt öðrum tilgangi en að sverta mannorð mitt. Ekki sjá þeir ástæðu til að minnast á það aukaatriði að Bergþóra sagði upp störfum við sjúkrahúsið 30. maí 1989, það er rúmlega hálfu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.