Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Blaðsíða 22

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Blaðsíða 22
16 DAGSKRÁ landanna er slitið, er það orðið algert innanlandsmál íslands, hvort það hefur konung eða stofnar lýðveldi. Dönum er það þá óviðkom- andi, nema að því leyti, að þeir gætu, ef til kæmi, bannað kon- ungi sínum að vera jafnframt konungur íslands. Ég hygg, að flestir íslendingar hafi síðan 1918 verið sammála um það, að segja upp sambandslögunum, þegar þar að kæmi. Kom þetta skýrt fram á Alþingi 1928. Þá lýstu allir flokkar þingsins yfir því, að þeir vildu nota uppsagnarréttinn. Sams konar yfirlýsingar voru og gefnár á Alþingi 1937. Þessi vilji íslendinga til algers sjálf- stæðis er ekki á neinn hátt sprottinn af óvild til Dana, enda hafa þeir jafnan komið vel fram við okkur, síðan samið var um sam- band landanna og reyndar lengur. Þaðanaf síður er um nokkra óvild til konungsins að ræða, enda hefur hann reynzt okkur hinn bezti konungur. Heldur er þessi vilji sprottinn af þeirri sjálfstæðis- þrá, sem öllum menningarþjóðum er í blóð borin, að vilja sjálfar ráða sínum málum og lúta ekki erlendum yfirráðum, ekki heldur erlendum konungi, hversu ágætur sem hann er. Uppsögn sambandslaganna hefur ekki algerlega farið fram með þeim hætti, sem þau sjálf gera ráð fyrir og liggja til þess ástæð- ur, sem öllum eru kunnar: Þann 9. apríl 1940 hertóku Þjóðverj- ar Ðanmörku. Sambandið milli íslands og Danmerkur rofnaði algerlega. Af því leiddi, að konungur gat ekki haldið áfram að gegna stjórnarstörfum fyrir ísland og Danir gátu ekki farið með utanríkismál okkar eins og sambandslögin gerðu ráð fyrir. Næstu nótt ákvað Alþingi, að ísland tæki öll sín mál í eigin hendur og fól ráðuneytinu „að svo stöddu“ að fara með vald konungs. 17. júní 1941 var svo kosinn ríkisstjóri til að fara með konungsvaldið. Það ástand, sem skapaðist 9. apríl 1940, hefur haldizt síðan. Danir ■ hafa ekki getað farið með utanríkismál íslands og konungurinn ekki gengt stjórnarstörfum. Danir hafa því ekki getað staðið við sambandslagasamninginn. Frá íslands hálfu er því litið svo á af flestum, að samningurinn sé nú úr gildi fallinn, vegna vanefnda Dana á honum, þó þær séu þeim ósjálfráðar, og sambandsslit þeg- ar orðin, þó ekki hafi enn verið formlega frá þeim gengið. Þessi skilningur kemur fram í samþykktum Alþingis frá 17. maí 1941, þar sem það lýsti yfir, að það teldi ísland hafa öðlazt rétt til fullra sambandsslita þá þegar, þó að það teldi hins vegar ekki tímabært „vegna ríkjandi ástands" að ganga formlega frá þeim. Þá lýsti og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál
https://timarit.is/publication/1051

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.