Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Side 4

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Side 4
sanna slíkar fullyrðingar, enda má sjálfsagt finna rök þeim til stuðn- ings og votta með dœmum. Þótt draga megi í efa göfugan tilgang pólitlskra samtaka með útgáfu bókmennta- og menningarrita, mun þó menningunni minni hœtta búin af þeirri starfsemi en annarri verri. Alkunnug eru dœmi um ópólitísk samtök eða fyrirtœki, sem notuð eru í pólitískum tilgangi leynt og Ijóst, og eru slík fyrirtœki eða samtök einmitt oft og tiðum einna aðsópsmest á sviði bókmennta og menningarmála. Menningunni stafar minni hœtta af þeim, sem koma til dyranna eins og þeir eru klœddir, en hinum, er dyljast undir skrautnöfnum. Þótt rit þetta sé gefið út af stjórnmálasamtökum, munum við ekki hirða um að standa í dœgurþrasi stjórnmálabaráttunnar, heldur leggja megináherzlu á efni menningarlegs eðlis. Við munum ekki draga höfunda l dilka eftir pólitískum litarhætti. Við munum hvorki gera mönnum upp skoðanir né sniðganga sjónarmið þeirra, sem við kunnum að vera ósammála. Við munum leitast við að gœta frjálslyndis. Um útgáfu ritsins getum við verið fáorðir. Ákveðin er útgáfa tveggja hefta á þessu ári, og mun hið síðara koma út í septemberlok, og verður það jafnstórt þessu. Rætt hefur verið um, að Dagskrá komi út ársfjórðungslega næsta ár, ef viðtökur verða sœmilegar. Sízt kemur okkur í hug, að tilkoma nýs tlmarits verði talin til stórmerkja í öllu þvi flóði prentmáls, sem nú streymir yfir landslýðinn. Og margt bókmennta- og menningarritið hefur liðið undir lok á síðustu árum, án þess að héraðsbrestur yrði. Að sinni munum við ekki draga litríka fána að húni eða birta langar stefnuskrár um evangeliska baráttu gegn óvinum menningarinnar í fjörrum heimshornum. En við viljum leitast við að leggja fremur þeim málefnum lið, er miða að því að lyfta mannkindinni til betra lifs, en hinum, er til ófremdar horfa. Við óskum eftir liðsinni þeirra manna, sem hyggja fram og upp á við, um hina hirðum við hvergi, sem kyrrstöðu kjósa eða snúa norður og niður. Með þeim hug sendum við Dagskrá frá okkur. ÓLAFUR JÓNSSON SVEINN SKORRI HÖSKULDSSON 2 DAGSKRÁ

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.