Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Page 24

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Page 24
stóðu framundan. „Hárið á mér er bara renn- blautt,“ sagði hún. „Ég lít hræðilega út.“ Svo leit hún á mig. „Ég er með reglulega vel- liðað hár, þegar það er þurrt.“ „Ég sé það. Ég sé þú hefur það.“ „Að vísu ekki alveg hrc-kkið, en mjög vel liðað,“ sagði hún. „Eruð þér kvæntur?" Ég sagði svo vera. Hún kinkaði kolli. „Eruð þér innilega ást- fanginn af konunni yðar? Eða má vera ég sé of nærgöngul?" Ég sagðist skyldi láta hana vita, þegar mér fyndist hún of nærgöngul. Hún þokaði höndunum og handleggjunum lengra framá borðið, og ég man vel hve mig langaði til að gera eitthvað við þetta tröll- aukna armbandsúr sem hún bar — jafnvel leggja til, að hún reyndi heldur að setja það um mittið. „Yfirleitt er ég ekkert sérlega félagslynd,“ sagði hún, og Ieit á mig til að sjá hvort ég skildi meininguna að baki orðunum. Ég Iét hana samt ekkert á mér skilja, hvorki til né frá. „Ég gekk hingað yfirtil yðar, einungis vegna þess mér fannst þér vera svo framúr- hófi einmana. Þér hafið frámunalega við- kvæma andlitsdrætti." Ég sagði hún hefði rétt fyrir sér hvað það snerti, að ég hefði verið einmana, og að mér þætti vænt um hún skyldi hafa komið. „Ég er að reyna að þjálfa mig í að verða samúðarríkari en ég hef verið. Frænka mín segir ég sé voða kaldlynd að eðlisfari," sagði hún cg fór enn einu sinni með hönd- ina uppí hárið. „Ég bý hjá frænku minni. Hún er alveg einstaklega góð manneskja. Síðan móðir mín dó hefur hún gert allt sem hún hefur getað, tilað okkur Charles megi líða vel.“ „Gleðilegt að heyra." „Mamma var framúrskarandi vel gefin kona. Einkar skilningsnæm, á margan hátt.“ Hún leit á mig, með næsta ferskri skerpu í augnaráðinu. „Finnst yður ég vera sérlega kaldlynd?" Ég sagði, að það finndist mér alls ekki — satt að segja: beinlínis hið gagnstæða. Síðan sagði ég henni nafn mitt og spurði hana að heiti. Hún hikaði við. „Fornafn mitt er Esmé. Ég veit ekki hvort ég á að segja yður fullt nafn mitt, að svo stöddu. Ég ber titil; og það getur kennske haft áhrif á afstöðu yðar til mín. Maður veit hvernig Ameríkanar eru.“ Ég kvaðst ekki halda, að slíkt hefði nein áhrif á mig; hinsvegar gæti verið góð hug- mynd útaf fyrir sig að láta alla titla liggja milli hluta enn um sinn. Einmitt í þessu fann ég fyrir hlýjum andar- drætti á hnakkann. Ég leit við og rétt slapp undan að reka nefið í andlitið á bróður henn- ar litla. Hann talaði til systur sinnar, án þess að virða mig viðlits: „Miss Megley segir þú verðir að koma og ljúka við teið þitt!“ Er hann hafði skilað erindinu, sneri hann sér að stólnum milli mín og systurinnar, mér á hægri hönd. Ég virti hann fyrir mér af miklum á- huga. Hann leit prýðisvel út, í brúnum Shet- lands-stuttbuxum, fjólublárri treyju, hvítri skyrtu og með röndótt hálsbindi. Hann mændi á mig aftur, stórum grænum augum. „Hversvegna kyssist fólk í bíómyndum alltaf á ská?“ spurði hann hvatskeytslega. „Á ská?“ sagði ég. Þetta var vandamál, sem hafði ásótt sjálfan mig í bernsku. Ég kvaðst halda að nefin á leikurum væru svo stór, að þeir gætu ekki kysstst beint framan- frá. „Hann heitir Charles," sagði Esmé. „Hann er framúrskarandi þroskaður eftir a!dri.“ „Sveimér, hann er græneygður. Ertu það ekki, Charles?“ Charles sendi mér það tómlætislega augna- ráð, sem spurning mín átti skilið; Iét síðan mjakast niðurávið, framaf stólnum, unz hann var allur kominn undir borð nema hausinn, sem hann lét hvíla á stólsetunni, afturkeyrður líktog fimleikamaður. „Þau eru appelsínugul,” sagði hann með áreynslu og góndi uppí loftið. Síðan greip hann í horn á borðdúknum og lagði það yfir smáfrítt og kæruleysislegt and- litið. „Stundum er hann svo skýr, en stundum ekki,“ sagði Esmé. „Stattu upp, Charles!" 22 DAGSKRÁ

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.