Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Page 39

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Page 39
Tonlistarskólann og lagði þar stund á fiðluleik. Hann hætti þó því námi og las um hríð utanskóla við Mennta- skólann í Reykjavík. Síðar gerðist hann blaðamaður og auglýsingastjóri hjá Þjóðviljanum, og við verzlunar- störf vann hann hjá Raftækjaverzlun Eiríks Hjartarsonar. Sá sama leilc jimmtán sinnum. Lágu til þess nokkrar sérstakar or- sakir, að þú gerðist leikari, Gísli? — Ja, leikari, segir hann. — Það hefur nú eiginlega aldrei hvarflað að mér, að mér myndi hlotnast sú gæfa í lífinu að verða leikari. Ég man ekki, hvenær það var. Ég var eitthvað tíu ára, þegar ég sá leik- ið í fyrsta sinn. Það var Dauðinn nýt- ur lífsins. Svo einhvern veginn gerj- aðist þetta innra með mér. Ég fór einhvern tíma þá á eftir að fara nið- ur í Iðnó að horfa á leiksýningar. Ég átti nú engan að hjá Leikfélaginu eða Iðnó, svo að ég reyndi að kaupa mér stæði. Ég fór stundum tíu—fimmtán sinnum að horfa á sama leikritið. Svo var það, að hún frú Kristín Thor- berg, sem sekli aðgöngumiðana, fór að taka eftir mér. Hún var mér mjög góð og tók að hleypa mér inn ókeyp- is. Þetta var í nokkur ár. Þessi mikla leikhússókn mín minnk- aði að vísu, þegar ég fór að vinna, en áhuginn fyrir þessu var alltaf jafn. Svo var það einn gamall vinur minn, sem ég hafði oft spjallað við um þessi mál fram og aftur. An þess að ég vissi af, hringdi hann til Lárusar Pálssonar og innritaði mig í leikskóla hans. Þá var ég eitthvað 22 ára. Hjá Lárusi var ég svo í þrjú ár. Síðasta veturinn, sem ég var þar, lék ég eftir nýjárið fyrsta hlutverk mitt. Það var séra Laurentíus í Onnu Pétursdóttur, og sama vetur lék ég í Segðu steinin- um. Manstu, hvað þú hefur farið með mörg hlutverk síðan? — Ekki nákvæmlega. Mig minnir, að ég hafi leikið í eitthvað fimmtán leikritum, en auk þess hef ég haft tvær sýningar í Austurbæjarbíói, og í fyrra var ég með Sumarleikhúsið í Iðnó. Ætlarðu ekki að halda Sumarleik- húsinu áfram? — Jú, við förum senn að æfa leik- rit Terence Rattigans, French With- out Tears. Skúli Bjarkan er að þýða Gísli sem Ernest Mc Intire í Vér morðingjar eftir Guðmund Kamban. DAGSKRÁ 37

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.