Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Page 41

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Page 41
var aldrei ánægður. Svo var farið að sýna, og mér leið alltaf illa allar svn- ingarnar. Ég fann aldrei það, sem ég leitaði að. En þannig hlutverk geta líka opnazt fyrir manni allt i einu. Það var til dæmis í Mýs og menn. Þar lék ég Slim. Eiginlega má kalla hann ideal höfundarins. Og það er alltaf erfitt að leika slíkar persónur. Það æfði ég viku eftir viku og fann aldrei tóninn. Þetta var ekki mikið hlutverk, og ég sat oft frammi í sal og horfði á, meðan hin voru að æfa, og ég var alltaf að berjast við Slim. Svo var það einu sinni, þegar verið var að æfa negrasenuna, þar sem Lenni kemur inn til negranna, og negrinn segir: — Hingað kemur aldrei neinn nema Slim. Þá allt í einu kom það að mér, hvernig þessi maður væri hugsaður. Mér fannst ég allt í einu hafa það á valdi mínu, og þetta litla hlutverk varð sú af rullum mínum, sem mér hefur þótt einna vænst um. Leitin leiðir til betri leiks. Ef þér tekst að lokum í hlutverk- um að ná sáttum við persónuna, sem túlka skal, hvort myndir þú segja, að væri vænlegra til góðs árangurs í leik hlutverk, sem þér finnst í upphafi op- ið, eða hin, sem kosta þig baráttu? — Stritið og leitin finnst mér oft- ast hafa leitt til betri og áhrifameiri leiks bæði hjá mér sjálfum og þeim leikurum, sem hafa leikið hjá mér sem leikstjóra. Við þessa leit og bar- áttu við rulluna koma upp mörg at- riði, sem ella myndu e.t.v. fara for- görðum. Ef manni virðist hlutverkið hins vegar strax í upphafi standa op- ið og öðlast fljótt einhvern ákveðinn og fastan skilning, er meiri hætta á, að ýmis slík smáatriði verði útundan. Það er ekkert eins hættulegt og að festa sig í upphafi í einhverri ákveð- inni túlkun. Og ég berst alltaf við það til síðustu stundar að halda hlutverk- inu opnu fyrir öllum áhrifum, öllu, sem vill bætast við, eftir því sem skilningur manns skýrist við fleiri æf- ingar. Þannig finnst mér vænlegast til góðrar túlkunar, að hlutverkið smá- opnist fyrir manni. Þá má í lokin sam- safna öllum þeim atriðum, sem fram koma, meðan á baráttunni stendur. Leikari og leikstjóri. Hvað viltu segja um þátt leikstjór- ans í sköpun og túlkun hvers leikara? Gísli sem Slim l Mýs og menn eftir John Steinbeck. DAGSKRÁ 39

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.