Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Page 60

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Page 60
BÓKMENNTIR Landvörn íslendinga Iðulega er státað í skálaræðum og gert veður á mannfundum af því að vér íslendingar séum mikil bók- menntaþjóð, mest bókmenntaþjóð í samanlagðri kristninni, jafnvel í víðri veröld. Þessu til staðfestingar er svo vitnað til fornbókmenntanna, til ágætra bókmennta vorra frá síðustu öld og eins þeirri sem nú er liðin til helftar. Sízt ber að neita að vér eigum stórar bókmenntir að baki, hitt er einnig ágætur sannleikur að á þessari öld hafa lifað hér og starfað margir snjallir höfundar, vér eigum bæði nó- belshöfund og nóbílishöfunda. En þetta nægir ekki til að staðfesta ágæti vort sem bókmenntaþjóðar þótt vissulega sé gaman að dvelja við frægð vora forna og nýja. Aðalsmerki stórra bókmennta og vaxandi í hverju landi eru hinar ungu bókmenntir landsins á hverjum tíma. Sé rétt stefnt sýna þær að feðranna frægð hafi aðeins verið áfangi á leið- inni upp og fram, að enn eigi nýr og stór skáldskapur eftir að rísa, og kynd- ill bókmenntanna að brenna skærum loga yfir fátæku landi og hrjóstrugu. Hér skal ekki um það rætt hvort hin ungu skáld vor í dag eru líkleg til að valda slíku hlutverki. enda marklítil iðja að spreyta sig á spá- dómum. En saklaust ætti að vera að minna á að það eru íslenzkar bók- menntir sem haldið hafa uppi frægð landsins á löngum og myrkum öldum, að bókmenntirnar eru sómi íslands, sverð og skjöldur. Nokkur undanfarin ár hefur meira verið gefið út af prentuðu máli á fs- landi en í allri sögu þess fram til þessa. Menn tala um bókaflóð og bókaplágu og þykir skömm til koma, enda er víst um það að margt það sem prent- vélarnar spýja út í dagsljósið er hið ógnarlegasta hrat og bezt komið í glat- kistunni. Samt er ástæðulaust að ham- ast gegn þessu prentflóði. Leirburður og hégómi hefur ávallt verið fram- leiddur á íslandi, og það er efunarmál að sú framleiðsla sé tiltölulega nokkuð meiri né skaðsamlegri á vorum dögum en áður fyrr. Hitt er meira um vert að nú æ 11 i ungum höfundum og efni- legum að vera auðveldara að koma verkum sínum á framfæri en áður fyrr. Nú æ 11 i ágæti þeirra að koma skýr- ar í ljós en nokkru sinni fyrr í saman- burði við hratið og hégómann. 58 DAGSKRÁ

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.