Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2007, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2007, Blaðsíða 10
þriðjudagur 23. október 200710 Fréttir DV Frjálslynda stjórnarandstaðan í Póllandi vann yfirburðasigur í þingkosningum síðastliðna helgi og lagði þar með að velli Jaroslaw Kaczynski, forsætisráðherra lands- ins. Kaczynski sem er þekktur að þjóðerniskennd hafði verið þyrn- ir í síðu stjórnvalda innan Evrópu- sambandsins, sér í lagi í Rússlandi og Þýskalandi. Sigurvegari kosning- anna var helsti keppinautur hans, Donald Tusk, og samkvæmt fyrstu útgönguspám var ekki loku fyrir það skotið að ríkisstjórn Tusks gæti setið ein að völdum í Póllandi. Þar með yrði endi bundinn á þá pól- itísku heift og spennu sem hefur verið í landinu undanfarið ár. Sig- ur frjálslynda íhaldsflokksins und- ir forystu Donalds Tusk sýnir svo ekki verður um villst hve Jaroslaw Kaczynski forsætisráðherra mis- reiknaði sig heiftarlega þegar hann boðaði til aukakosninga á miðju kjörtímabili sínu í því augnamiði að styrkja stöðu sína. Unga fólkið sýnir vilja sinn Þátttaka í kosningunum var mun meiri en í þingkosningunum fyrir tveimur árum, en þá neyttu einung- is um fjörutíu prósent kosninga- réttar síns. Jaroslaw Kaczynski sótti fylgi sitt aðallega til trúaðra kaþól- ikka, sem hafa stutt hann með ráð- um og dáð í oft umdeildum ákvörð- unum hans. Ef þátttaka hefði verið jafnlítil nú og þá og ungt fólk í borg- um landsins hefði setið heima hefði ekki margt getað stöðvað hann. Kosningarnar nú snerust um per- sónuleika og ráku jafnvel fleyg í fjölskyldur. Á tímabili hafði Jarosl- aw Kaczynski forskot, en þátttakan varð rúmlega fimmtíu og fimm pró- sent, því hundruð þúsunda ungra Pólverja flugu heim til dæmis frá Bretlandi og Írlandi í þeim eina til- gangi að kjósa í þingkosningunum í sinni heimabyggð og sýna vilja sinn í verki. Auk þeirra greiddu þúsund- ir Pólverja atkvæði sitt í sendiráðum Póllands víða um lönd. Óhætt er að segja að með kosningunum séu lögð drög að endinum hjá Kaczynski- tvíburunum, en þeir hafa getið sér orð sem eitt undarlegasta tvíeykið í stjórnmálum í Evrópu. Sumir telja að það sem gerði útslagið hafi verið þegar skrifstofa ríkisstjórnarinnar gegn spillingu varð uppvís að því í síðustu viku að sannfæra einn frambjóðanda flokks Donalds Tusk til að taka við mútum og lét svo handtaka hana í kjölfarið. Þá fannst mörgum sem mælirinn væri fullur og einn þeirra, veitingahúsaeigandinn Stanislaw Pruszynski sem ætlaði að kjósa Jar- oslaw Kaczynski, ákvað að söðla um. „Kaczynski-bræðurnir hafa gengið of langt í að sverta andstæð- inga sína,“ sagði hann. Jaroslaw Kaczynski hefur viður- kennt ósigur sinn, en bróðir hans, forsetinn Lech Kaczynski, mun sitja í embætti til ársins 2010 og hans bíður óþægilegt sambýli við ríkis- stjórn Donalds Tusk. Um einhvern tíma verður honum kleift að koma í veg fyrir nýjar áherslur í utanrík- ismálum, en samkvæmt fréttum úr innsta hring er líklegt að Tusk til- nefni Radek Sikorski í embætti ut- anríkisráðherra. Sikorski gat sér nafn sem blaðamaður í Bretlandi á níunda áratug síðustu aldar. Hefur stofnað til illinda Evrópuleiðtogum mun ef- laust létta við fráhvarf Jaroslaws Kaczynski úr embætti forsætisráð- herra, því hann hefur verið þekktur fyrir harða þjóðernisstefnu og hefur eignast óvildarmenn bæði heima fyrir og erlendis. Ítrekað hefur hann stofnað til átaka við Þýskaland og Rússland og með því náð að ein- angra Pólland sem vandræðagepil innan Evrópusambandsins. Bandaríkjamenn munu ekki gleðjast við brotthvarfið heldur þvert á móti. Jaroslaw Kaczynski hafði með glöðu geði veitt Banda- ríkjamönnum heimild til að setja upp meðaldrægar flaugar í Póllandi sem hluta af varnaráætlun yfirvalda í Washington. Donald Tusk er einn- ig hlynntur uppsetningu flauganna en líklegt er talið að hann verði harðari í samningum við Banda- ríkjamenn en forveri hans. Vill unga Pólverja heim Hin nýja ríkisstjórn, undir for- ystu Donalds Tusk, hefur lofað að stefna að kraftaverki í efnahagsmál- um, með því að beita efnahagsleg- um vexti landsins til að draga úr skattbyrði og reyna að fá brottflutta Pólverja til að snúa aftur heim. Síð- an Pólland gekk í Evrópusamband- ið árið 2004 og eftir að Jaroslaw Kaczynski varð forsætisráðherra hafa um tvær milljónir Pólverja yf- irgefið ættjörðina og leitað gæfunn- ar annars staðar. Þá fimmtán mánuði sem Jarosl- aw Kaczynski hefur verið forsætis- ráðherra hefur hann barið í gegn umdeild stefnumál og notað til þess dómstóla landsins, lögregluna og leyniþjónustuna. Hann hefur einn- ig notað sömu meðul til að ráðast á andstæðinga sína og uppræta það sem hann kallaði spillingu. Hann hafði lofað nýju lýðveldi en stjórn- arhættir hans drógu dám af fyrir- litningu á lýðræði síðustu sautj- án ára ásamt því sem hann reyndi að hreinsa landið af óþverraleifum Sovéttímans. Umdeild atvik Jaroslaw Kaczynski hefur ver- ið ötull við að ögra leiðtogum bæði heima fyrir og innan Evrópusam- bandsins. Á baráttufundi fyrir ríkis- stjórninni í október árið 2006 í skipa- smíðastöðinni í Gdansk líkti Jaroslaw stjórnarandstöðunni við óeirðaher- lögreglu frá tíma Sovétríkjanna. Í desember árið 2006 tók hann þátt í fimmtán ára afmæli útvarpsstöðv- arinnar Radio Maryja. Útvarpsstöð- in hafði verið gagnrýnd af Vatikan- TALDI SIG EIGA SIGURINN VÍSAN Hinn þjóðernissinnaði forsætisráðherra Póllands, Jaroslaw Kaczynski, er kom- inn út í kuldann. Á tiltölulega stuttum ferli náði hann að mála sig út í horn gagnvart Evrópusambandinu eftir að hann í samvinnu við tvíburabróður sinn ýtti byltingu úr vör eftir eigin for- skrift með það fyrir augum að byggja upp nýtt lýðveldi í Póllandi. Þá dró Kaczynski upp byssu og sagði: „Það er jafnauðvelt fyrir mig að drepa þig og hrækja á þig.“ Kolbeinn þorsteinsson blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Jaroslaw Kaczynski Hefur aflað sér margra óvildarmanna innan evrópusambandsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.