Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2007, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2007, Síða 25
DV Sviðsljós þriðjudagur 23. október 2007 25 Frábær AirwAves-hátíð! Trentemöller Klárlega einn af toppum hátíðarinnar. Það var allt geggjað í kringum tónleikana hjá þessum danska snillingi. Hvort sem það var sándið sem kom mér nokkuð á óvart eða ljósasýningin sem var mjög flott. Anders sýndi og sannaði að elektrómús- ík er eitthvað svo miklu meira en eitthvað sem gerist í tölvu þegar hann fór gjörsam- lega á kostum með bassa- og trummuleik- ara með sér. Án efa einn sá allra færasti á sínu sviði í dag. Motion Boys Ótrúlega skemmtilegt band sem er skip- að reynslu boltum úr hljómsveitum eins og Mínus og Trabant. Það sást berlega að þeir félagar njóta þess að spila saman og voru að skemmta sér vel. Birgir Ísleifur er með ótrúlega sérstaka rödd sem að nýtur sín fullkomlega með 80´s skotnu gleðipoppi sveitarinnar. Vonandi kemur plata sem allra fyrst. 1985! Stálu klárlega senunni á hipp hopp kvöldinu og báru af. Krafturinn á svið- inu var ótrúlega mikill og Dóri DNA sýndi hversu sterka nærveru hann hefur á sviði. Danni Deluxxx rappaði töluvert og kom skemmtilega á óvart. Taktar sveitarinnar voru hráir, ferskir og kraftmiklir. Klárlega ferskur blær íslensku hipphoppi og sanna þar er enn líf að finna. Chromeo Kandíski dúettinn náði upp frábærri stemmningu á Gauknum. David Mack- lovitch sá um að peppa upp áhorfend- ur á meðan P-Thugg eða Patrick Gemayel sá um að vera eitursvalur með línuskegg- ið klárt. Kom mér á óvart hvað þeir voru hressandi og hversu mikið þeir spiluðu á staðnum. Það varð allt viltaust þegar þeir skiluðu smellinum Needy Girl galla laust og ekki skemmdi fyrir að So Gngsta fylgdi skömmu síðar. Poetrix Bjóst við meira af Poetrix eftir að hafa heyrt mikið um hann. Taktarnir sem voru undir í lögunum hans voru margir hverjir mjög ferskir en mér fannst hann oft geta gert betur úr þeim. Oft á tíðum fannst hann ekki ná að rappa nægilega vel í takt og vant- aði heilt yfir meiri kraft. Ásgeir Jónsson HHHHH HHHH HHHH HHHH HH Soundspell Angurvær, efnileg, hæfaleikarík og metnaðarfull, en eðlilega óslípuð. Afar góður söngvari sem leggur sig augljóslega allan í verkið. Tónlistin náði vel til áhorf- enda, en best til hljómborðsleikarans að því er virtist. Lights on the Highway Afskaplega máttlaust. Lítil tengsl við salinn sem má kannski að hluta til skrifa á þá umdeilanlegu ákvörðun hljómsveitar- meðlima að spila bara glænýtt efni. Kristó er feikilega góður söngvari og svalur piltur, en það virkaði svolítið eins og hann nennti varla að vera þarna. Sprengjuhöllin Hélt uppi stanslausu stuði, án fyrirhafn- ar. Fæddir performerar, sérstaklega Bergur Ebbi. Breyttu veislustemningunni í teppa- lögðu Lídó í almennilega tónleika, eins og þeir sögðust ætla að gera. Reykjavík! Krafturinn í sveitinni myndi örugglega geta séð Reykjavíkurborg fyrir orku í heilt ár. Bóas átti salinn, ekki síst þær fimm mínútur eða svo sem hann slammaði og djammaði með áhorfendum úti á miðju gólfi. Svona eiga rokktónleikar að vera. Fengju fullt hús ef maður myndi stundum heyra hvað Bóas segir í textunum. Steed Lord Mikil eftirvænting lá augljóslega í loft- inu eftir þessari vinsælu hljómsveit. Stóðst ekki alveg þær væntingar. Svala fær hins vegar plús fyrir búninginn og hárfjallið sem hún bar á hausnum. Framlag Krumma var kröftugt eins og hans var von og vísa. Mínus Kann þetta frá A til Ö. Fær ekki alveg fullt hús því það vantaði kannski örlítið upp á spilagleðina, sem að ýmsu leyti er skiljan- legt í ljósi afreka Mínusdrengja. Dr. Spock Óttar Proppé er bara maðurinn. Hver annar er töff með aflitað sítt hár og koll- vik ég veit ekki hvert? Þakið á NASA rifn- aði næstum af þegar Mínus spilaði næst á undan, en það fór endanlega á sporbraut um jörðu þegar Dr. Spock tók Skítapakk. Gúmmíhanskaþemað hittir á einhvern furðulegan hátt algjörlega í mark. Kristján Hrafn Guðmundsson HHH H HHHHH HHHH HHH HHHHH HHHHH Best Fwends (US) Worm is Green (IS) Chromeo (CA) Ra Ra Riot (US) Bonde do Role (BR)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.