Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2007, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2007, Blaðsíða 15
DV Sport þriðjudagur 23. október 2007 15 Sport Þriðjudagur 23. október 2007 sport@dv.is Clattenburg í leikbann Newcastle vaNN öruggaN 3–1 heimasigur á totteNham. bls. 18. FH-ingar standa í stórræðum þessa dagana og eru í óða önn að styrkja lið sitt fyrir næsta tímabil. Í gær var gengið frá samningi við Jónas Grana Garðarsson og í dag skrifar Höskuld- ur Eiríksson undir tveggja ára samn- ing við FH. Jónas Grani lék með FH á sínum tíma en yfirgaf félagið fyrir tveimur árum og gekk í raðir Fram. Þar átti Jónas Grani góðu gengi að fagna og var markahæsti leikmaður Lands- bankadeildarinnar í sumar. Aðspurður um ástæðu þess að hann ákvað að fara aftur í FH var svarið einfalt. „Heimir Guðjóns. Tækifæri til að fara aftur í FH og það var erfitt að hafna því. Þrátt fyrir mjög erfiða ákvörðun um að fara frá Fram, þar er uppbygging í gangi sem mér líst vel á, þá var þessi séns að fara aftur í FH of góður kost- ur fyrir mig. Mér fannst ég verða að taka honum,“ sagði Jónas Grani. „Ég hef aldrei farið leynt með það að ég er mikil FH-ingur. Fyrst og síðast er ég Völsungur og FH-ingur og þeg- ar tækifærið gafst að fara aftur í FH og með þjálfara sem ég hef mikla trú á var það eitthvað sem ekkert annað hefði staðist. Ég vona bara að Fram- arar virði þá ákvörðun mína,“ sagði Jónas Grani. Höskuldur Eiríksson skrifar í dag undir tveggja ára samning við Hafn- arfjarðarrisann FH. Höskuldur sem er 26 ára kemur úr Víkingi en þar hefur hann verið undanfarin ár. „Ég hef mikla trú á Höskuldi sem leikmanni. Hann stóð sig mjög vel hjá Víkingum 2004 en hefur verið töluvert meiddur síðasta tímabil. Hann er leikmaður sem getur leyst bæði bakvarðarstöðuna og miðvörð- inn. Þetta er sterkur karakter og hef- ur leiðtogahæfileika og getur gefið af sér í þessum bransa. Það er alltaf gott að vera með þannig leikmenn,“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH. benni@dv.is, dagur@dv.is FH-ingar eru byrj- aðir að safna liði: Jónas Grani oG Höskuldur í raðir fH Öruggt hjá newcastle Byrjar Eiður Smári inni á?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.