Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Side 20

Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Side 20
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(2) 201220 SJÁlfStJÓrnUn barna og Ungmenna Sjálfstjórnun barna og ungmenna² er ört vaxandi fræðasvið og hefur rannsóknum á því vaxið ásmegin undanfarna áratugi, ekki síst það sem af er þessari öld. Niður- stöður rannsókna sem leiða í ljós tengsl á milli sjálfstjórnunar barna og ungmenna og ýmiss æskilegs þroska, svo sem góðs námsgengis, hafa nýlega haft áhrif á skólastarf og stefnumótun í Bandaríkjunum og Evrópu (Leseman, 2009; McClelland, Ponitz, Messersmith og Tominey, 2010). Rannsóknir á sjálfstjórnun eru stutt á veg komnar á Íslandi og hefur umræða um þessa færni verið af skornum skammti meðal almenn- ings og fræðafólks. Algengt er að umfjöllun hér á landi um sjálfstjórnun snúi að vanda fólks við að beina og halda athygli (til dæmis vegna athyglisbrests), sem er eitt þeirra vitrænu ferla sem falla undir sjálfstjórnun. Í þessari grein verður ekki fjallað um erfið- leika tengda sjálfstjórnun, heldur er sjónum beint að því hvernig hún þróast meðal flestra barna og ungmenna og hvaða máli hún skiptir þegar þau takast á við verkefni hversdagsins, svo sem samskipti og skólanám. Fyrsti hluti greinarinnar fjallar um hugtakið sjálfstjórnun. Því næst er breytingum á slíkri færni í barnæsku og á unglingsárum lýst og þeirri þýðingu sem hún hefur fyrir þroska barna og ungmenna. Einnig verður fjallað um það hvernig stuðla má að sjálfstjórnun með markvissu starfi í leik- og grunnskólum. Þá er gerð grein fyrir stöðu þekkingar á Íslandi með umfjöllun um þær íslensku rannsóknir sem gerðar hafa verið á þessu fræðasviði. Að lokum er fjallað um þýðingu greinarinnar fyrir áframhaldandi rannsóknir og starf á vettvangi á Íslandi. Í starfi mínu sem háskólakennari hef ég oft furðað mig á því hversu lítil umræða hefur verið um sjálfstjórnun barna og ungmenna meðal háskólafólks, starfsfólks á vettvangi og stefnumótandi aðila en ég hef einnig fundið fyrir miklum áhuga nem- enda minna, samrannsakenda og starfsfólks á vettvangi á þessari mikilvægu færni. Í kjölfar umræðu um sjálfstjórnun er iðulega kallað eftir frekari upplýsingum um þetta efni. Það er von mín að þessi grein auki skilning lesenda á þessari mikilvægu færni, því yfirgripsmikla fræðasviði og rannsóknum sem það byggist á og efli áhuga á að stuðla markvisst að sjálfstjórnun í starfi með börnum og ungmennum. sjálfstjórnun: fræðilEgur grunnur og skilgrEiningAr Rekja má umfjöllun um stjórn mannsins á eigin gjörðum allt til forngrískra heimspek- inga, svo sem hugmynda Aristótelesar um sjálfsaga (e. self-control) og mismunandi dyggðir sem liggja að baki hegðun fólks (Boekaerts, Pintrich og Zeidner, 2000). Frá því sálfræði varð til sem vísindagrein hafa fræðimenn innan hennar fjallað um ferli sem falla undir hugtakið sjálfstjórnun, samanber umfjöllun Williams James (1890) um stjórnun einstaklingsins á eigin tilfinningum. En líkt og ráða má af umfjölluninni sem fer hér á eftir hefur þetta fræðasvið ekki orðið til í núverandi mynd fyrr en á síðustu áratugum og eru nýlegar rannsóknir á sjálfstjórnun sprottnar af margs konar vísinda- greinum og rannsóknarhefðum. Því er ómögulegt að rekja sögu rannsókna á þessu sviði í stuttu máli en þó má telja víst að vaxandi áhuga fræðimanna á sjálfstjórnun megi meðal annars rekja til breytinga sem urðu á áherslum innan sálfræðinnar á síðustu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.