Morgunblaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2012 Vefþjóðviljinn verður seint sak-aður um hjarðhegðun.    Hannsegir: „Í upphaf- legum gengislána- dómum Hæstaréttar, sem mörgum þykja mikið réttlæt- ismál, ákvað rétturinn að víkja til hliðar margra ára framkvæmd lána- samninga, sem tugþúsundir manna höfðu gert, greitt af og þúsundir gert upp, án þess að nokkur hafi tal- ið neitt athugavert við lagagrund- völl samninganna.    Hversu margir af þeim, semtöldu það geysilega gott fram- tak hjá Hæstarétti að horfa með stíf- um gleraugum á vaxtalögin og gera um leið ekkert með athugasemda- lausa framkvæmd um margra ára skeið, hafi skömmu síðar orðið mjög hneykslaðir á ákvörðun sama réttar þegar hann ógilti kosningar til stjórnlagaþings, vegna verulegra annmarka á framkvæmdinni?    Hefur nokkur heyrt frasa álits-gjafanna um „sparðatíning“, formhyggju og „lagatækni“, þegar kemur að dómum Hæstaréttar í gengislánamálum?    Hvernig væri nú, að þeir semfagna gengislánadómum Hæstaréttar, sýndu nú réttinum þá virðingu að virða líka niðurstöðu hans um stjórnlagaþingskosn- inguna, og viðurkenna þá um leið fullkomið markleysi „stjórnlag- aráðsins“ og „tillagna“ þess?“    Nú er raunar talað um að kalla„stjórnlagaráð,“ saman á ný. Leysa það úr dauðans böndum eins og Lazarus og láta það vinna verk sem Stjórnarskráin segir að Alþingi eigi að vinna. Sannast á Lazarusi og mér STAKSTEINAR Veður víða um heim 17.2., kl. 18.00 Reykjavík -2 skýjað Bolungarvík -3 snjóél Akureyri -3 alskýjað Kirkjubæjarkl. -4 léttskýjað Vestmannaeyjar -3 heiðskírt Nuuk -6 skýjað Þórshöfn 4 skýjað Ósló -2 heiðskírt Kaupmannahöfn 5 léttskýjað Stokkhólmur -2 heiðskírt Helsinki -2 snjóél Lúxemborg 3 skýjað Brussel 7 skýjað Dublin 11 skýjað Glasgow 7 alskýjað London 11 skýjað París 8 skýjað Amsterdam 7 léttskýjað Hamborg 6 skýjað Berlín 6 skúrir Vín 4 skúrir Moskva -10 skýjað Algarve 13 léttskýjað Madríd 12 heiðskírt Barcelona 12 skýjað Mallorca 10 skýjað Róm 11 léttskýjað Aþena 6 léttskýjað Winnipeg -7 snjókoma Montreal 2 skýjað New York 7 skýjað Chicago 3 léttskýjað Orlando 23 alskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 18. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:15 18:10 ÍSAFJÖRÐUR 9:29 18:05 SIGLUFJÖRÐUR 9:12 17:48 DJÚPIVOGUR 8:47 17:37 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Fjölskylduhjálp Íslands hefur ekki verið með reglulega matarúthlutun frá áramótum en byrjar aftur næst- komandi miðvikudag að dreifa mat til þeirra sem þess þurfa. Ásgerður Jóna Flosadóttir hjá Fjölskylduhjálpinni segir að þau hafi ekki getað byrjað úthlutun fyrr á árinu vegna fjárhagsstöðunnar en Fjölskylduhjálpin starfar eingöngu á sjálfsaflafé. „Desembermánuður var okkur rosalega dýr, þá reyndum við að gera eins vel við fólk og mögulegt var. Í desember nutu 9.900 ein- staklingar mataraðstoðar og þar af voru 3.000 börn,“ segir Ásgerður. Hún býst við miklum fjölda þegar úthlutun hefst aftur á miðvikudaginn í Reykja- vík og fimmtudaginn á Reykjanesi. „Við verðum síðan að takmarka út- hlutunina við tvo síðustu miðvikudaga í mánuði á meðan við erum að byggja sjóðina upp aftur.“ Óska eftir fatnaði til að selja Til styrktar starfinu hefur Fjöl- skylduhjálpin tekið fjóra sölubása til leigu í Kolaportinu og verður þar þrjár fyrstu helgarnar í marsmánuði að selja allt milli himins og jarðar en þó aðallega notaðan og nýjan fatnað til styrktar starfinu. „Við gerðum þetta síðast fyrir sex árum og gaf það þá góða raun. Nú hvetjum við fólk til að fara í gegnum skápana og gefa okkur föt sem það er hætt að nota eða annað sem við getum breytt í matarpening. Allt það sem ekki selst sendum við í Rauða krossinn,“ segir Ásgerður. 25 manns munu dreifa vinnunni í Kola- portinu á sig og tónlistarmenn mæta á svæðið til að lífga upp á umhverfið. Tekið er á móti fatnaði og öðru fyrir söluna í Kolaportinu alla virka daga frá kl. 10 til 14 í Eskihlíð 2-4 Reykjavík og eftir samkomulagi. Slag- orð Fjölskylduhjálparinnar er: Eng- inn án matar á Íslandi 2012. Hefja aftur matarúthlutun í næstu viku  Fjölskylduhjálpin bætir fjárhaginn með því að selja notuð föt í Kolaportinu Morgunblaðið/Sverrir Fjölskylduhjálpin Frá úthlutun. „Við erum alsæl og kunnum þeim bestu þakkir sem svarað hafa þessu kalli,“ segir Anna Laufey Sigurð- ardóttir, formaður skíðadeildar KR. Rekstrarfélag á vegum deild- arinnar hefur fengið stuðning til að opna skíðasvæðið í Skálafelli um næstu helgi og hafa opið um helgar fram yfir páska. Góð aðstaða er í Skálafelli en svæðið hefur ekki verið opið í nokk- ur ár, fyrst vegna snjóleysis en síð- an samdráttar í fjárveitingum til skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins. Þegar ljóst var að stjórn skíða- svæðanna myndi ekki opna í vetur bauðst skíðadeild KR til að taka reksturinn að sér og hefur aflað málinu fylgis meðal sveitarfélag- anna. Nú hefur borgarráð Reykja- víkur samþykkt að veita 2,5 millj- óna króna viðbótarframlag af styrkjalið borgarráðs til skíðasvæð- anna vegna Skálafells en alls leggja sveitarfélögin til 4,1 milljón. Anna Laufey segir að öll hin sveit- arfélögin hafi samþykkt að taka þátt í verkefninu. Verður því byrjað að troða svæðin eftir helgi og svæð- ið opnað næstkomandi laugardag. „Þetta dregur úr álagi í Bláfjöllum og eykur fjölbreytni. Þótt lokað sé í Bláfjöllum er yfirleitt hægt að kom- ast á skíði í Skálafelli.“ Anna segir að haldin verði mót og telur fullvíst að stórsvigsmótin verði þar enda bestu brekkurnar. Þá segir hún að miklir möguleikar séu til stækkunar svæðisins og nefnir norðurhlíðar Skálafells sem dæmi um það. helgi@mbl.is Komast á skíði í Skálafelli eftir viku  Sveitarfélögin styðja skíðadeild KR Morgunblaðið/Golli Landsmót Stefnt er að mótahaldi í Skálafelli í vetur, einkum stórsvigi. Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is Nýtt 12 tíma námskeið, EXTRA 4x3 í 40 mínútur 3x í viku í heitum sal - Mitti, mjaðmir, magi og handleggir 12:10 mánud/Sara, miðvikud/María, föstud/Guðný 1x í viku í tækjasal: Hákeyrslu brennsla! 12:10 fimmtud/Fanney E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n EXTRA 4x3 miðjuþjálfun og lóð Einungis 18 konur komast að á hvert námskeið Verð aðeins: 12.900.- Tilboð til korthafa JSB: 9.900.- Velkomin í okkar hóp! Ný námskeið að hefjast innritun í síma 581 3730 Frjáls aðgangur að opna kerfinu og tækjasal miðjuþjálfunog lóðNÝTT! n á m s k e i ð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.