Morgunblaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 37
Fermingar Blaðaukinn Ferm- ingar kemur út föstudaginn 9. mars næstkomandi. Að venju verða nöfn fermingarbarna í blaðinu og að- gengileg á vefnum. Skilafrestur til að skila nafnalista rennur út 2. mars næstkomandi. dýrmætar á lífsins leið. Það er mér ljúft og skylt að minnast þessa nú þegar heiðurskonan Svava Sigurðardóttir, sú dagfar- sprúða og broshýra kona, hefur kvatt að loknum löngum og far- sælum ævidegi. Kona sem hlúði að sínum af ríkum kærleika og myndarskap, kona sem gekk hljóðlega um garða, en sinnti lífs- ins kalli af einstakri elju og rækt- arsemi. Heimilið hennar á Sjónarhæð var annálað fyrir myndarskap og dugnað húsmóðurinnar, hinn vopnfirzki ættararfur skilaði sér svo sannarlega hjá henni Svövu, þar var umhyggjan og rausnin í fremsta fyrirrúmi. Svava var greind og glögg kona og átti sínar ákveðnu skoð- anir sem hún setti fram af kurt- eisri einurð. Ég kenndi öllum sex börnum hennar og það var dag- ljóst hversu gott veganesti þau höfðu að heiman frá foreldrunum, hversu mikil hlýja og heiðríkja var yfir þeim er þau minntust á móður sína. Aðeins vildi ég kveðja og þakka fyrir samfylgdina, hún Svava er ein þeirra sem ég á svo fallegar og kærar minningar um að heiman og öll hennar lífsganga var vörðuð mætum gjörðum unn- um af þeirri fórnfýsi og innileik þar sem alltaf er spurt um ann- arra hag og heill. Í hug koma ljóð- línurnar fallegu þar sem spurnin um lífsgönguna er krefjandi: Hvað vannstu Drottins veröld til þarfa, þess verðurðu spurður um sólarlag. Það var augljóst öll- um sem til þekktu hversu jákvætt það svar yrði fyrir hana Svövu. Síðast þegar ég hitti hana í Hulduhlíð mætti mér sama bjarta brosið og áður sem end- urspeglaði hjartahlýju og alúð hennar. Við Hanna sendum hennar ágætu börnum og öðru hennar fólki innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé mæt minning Svövu á Sjónarhæð. Þar fór traust kona og tryggðum bundin um langan lífsveg. Helgi Seljan. húsasmíði hóf Róbert fljótlega sjálfstæðan atvinnurekstur enda athafnamaður í eðli sínu, áræðinn og duglegur. Ég starfaði um tíma hjá fyrir- tæki hans og kynntist honum sem alúðlegum yfirmanni og atorku- sömum verktaka. En eins og geng- ur breytist búseta manna og ytri aðstæður og samskiptin minnka. Það urðu þó alltaf fagnaðarfundir þegar við hittumst á förnum vegi. Í byrjun desember, fyrir síðustu jól, var ég staddur í verslunarmiðstöð og heyri þá kallað til mín. Þar var Róbert kominn og hafði um morguninn lent í umferðar- óhappi. Hann bar sig þó karlmann- lega að venju. Við skiptumst á fréttum hvor af annars högum og kvöddumst með þeim venjulegu orðum að við yrðum að hittast aft- ur við betra tækifæri, en við vorum þarna báðir í læknisvitjun. Ég fann á hlýju viðmóti hans að hann var sami vinur minn og hann hafði alltaf verið og þegar ég kom heim og rifjaði upp gömul kynni og traust vinabönd fann ég út að við höfðum mjög sjaldan orðið ósáttir og jafnan var það mér að kenna ef svo var og alltaf var það Robbi sem kom að fyrra bragði með útrétta sáttahönd samdægurs, þá sjaldan að til þess kom. Segir það sína sögu af einstökum öðlingsmanni, sem jafnan reyndist mér greiðvikinn og hollur vinur þegar á þurfti að halda. Ekki datt mér í hug að það yrði okkar síðasti fundur þegar við hitt- umst á jólaföstunni en svona er líf- ið og ég er þakklátur Guði fyrir að hafa fengið tækifæri til að kveðja minn gamla vin áður en hann kvaddi þennan heim. Drottinn gef- ur og Drottinn tekur. Guð blessi minningu góðs drengs. Ég votta aðstandendum hins látna mína innilegustu samúð og bið þeim Guðs friðar. Ársæll Þórðarson. MESSUR 37á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2012 AÐVENTKIRKJAN: Aðventkirkjan Reykjavík | Sam- koma í dag, laugardag, kl. 11 hefst með biblíufræðslu fyrir alla. Einnig er boðið upp á biblíufræðslu á ensku. Guðsþjónusta kl. 12. Manfred Lemke prédikar. Aðventkirkjan Vestmannaeyjum | Samkoma í dag, laugardag, kl. 11. Boðið upp á biblíufræðslu fyrir alla. Guðsþjónusta kl. 12. Bein útsending frá kirkju aðventista í Reykjavík. Man- fed Lemke prédikar þar. Aðventsöfnuðurinn Suðurnesjum | Samkoma í dag, laugardag, kl. 11 í Reykjanesbæ hefst með biblíufræðslu. Guðsþjónusta kl. 12. Þóra Sigríður Jónsdóttir prédikar. Aðventsöfnuðurinn Árnesi | Sam- koma á Selfossi í dag, laugardag, kl. 10, hefst með biblíufræðslu fyrir alla. Guðsþjónusta kl. 11. Eric Guðmunds- son prédikar. AðventsöfnuðurinnHafnarfirði | Samkoma í Loftsalnum í dag, laug- ardag, hefst með fjölskyldusamkomu kl. 11. Björgvin Snorrason prédikar. Biblíufræðsla fyrir börn, unglinga og fullorðna kl. 11.50. Boðið upp á biblíu- fræðslu á ensku. Samfélag aðventista á Akureyri | Samkoma í Gamla Lundi í dag, laug- ardag, hefst kl. 11 með biblíufræðslu fyrir börn og fullorðna. Guðsþjónusta kl. 12. AKRANESKIRKJA | Messa kl. 14. Messað á Höfða kl. 12.45. AKUREYRARKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er sr. Hildur Eir Bolladóttir. Sig- urður Árni Þórðarson prédikar. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja, organisti Eyþór Ingi Jónsson. Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón hafa Sunna Dóra Möller og Sigríður Hulda Arnardóttir. ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur Jón Helgi Þórarinsson. Org- anisti er Kristina Kalló Szklenár, kirkju- kórinn leiðir safnaðarsöng. Sókn- arnefndarfólk flytur lestra dagsins. Sunnudagaskólinn á sama tíma í umsjá Ingunnar og Hlöðvers. Hressing á eftir. ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Ásdís Pétursdóttir Blöndal, djákni, annast samveru sunnudagaskólans. Sr. Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari, Ása Lauf- ey Sæmundsdóttir guðfræðinemi að- stoðar. Hljómur, kór eldri borgara í Nes- kirkju, syngur, organisti er Magnús Ragnarsson. Kaffisopi á eftir. ÁSTJARNARKIRKJA | Gospelmessa kl. 11. Kór Ástjarnarkirkju syngur gosp- ellög undir stjórn Helgu Þórdísar Guð- mundsdóttur tónlistarstjóra. Bryndís Svavarsdóttir guðfræðinemi prédikar. Sr. Kjartan Jónsson þjónar fyrir altari. Bolluhátíð í sunnudagaskóla á sama tíma. Hressing á eftir. BESSASTAÐAKIRKJA | Skátamessa kl. 14. Ræðumaður sr. Birgir Thomsen. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson og Gréta Konráðsdóttir djákni þjóna fyrir altari. Álftaneskórinn og Skátakórinn syngja, organisti er Bjartur Logi Guðnason. Á eftir er köku- og kaffisala í íþróttahús- inu þar sem safnað er fyrir landsmóts- ferð skátafélagsins Svana. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudaga- skóli kl. 11 í Brekkuskógum 1. Umsjón hafa Auður, Baldvin,Agnes Finnur og Heiða Lind ásamt yngri leiðtogum. BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjal- arnesi | Guðsþjónusta kl. 11. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11, prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir. Kór Breiðholtskirkju syngur, organisti er Örn Magnússon. Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Nínu Bjargar Vilhelmsdóttur djákna. Kaffi á eftir. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Jónas Þórir við hljóðfærið ásamt ungmennum sem spila. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Bústaðakirkju syngur, org- anisti er Jónas Þórir. Messuþjónar að- stoða. Prestur sr. Gunnar Rúnar Matt- híasson. Kaffi á eftir. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson. Org- anisti er Zbigniew Zuchowicz, kór Digra- neskirkju B-hópur. Sunnudagaskóli á sama tíma. Veitingar á eftir. Sjá www.digraneskirkja.is. DÓMKIRKJAN | Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari, Dómkór- inn syngur, organisti er Kári Þormar. Æðruleysismessa kl. 20. Sr. Karl V. Matthíasson og Dómkirkjuprestar þjóna. Bræðrabandið sér um tónlist- ina. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni prédikar. Kór kirkjunnar leiðir al- mennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Þóreyjar Daggar Jónsdóttur. Veitingar á eftir. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Kvöldvaka kl. 20. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn. FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11. Brúðuleikrit, aldursskipt fræðsla og hressing og kaffisopi í lok- in. Almenn samkoma kl. 13.30. Lof- gjörð, barnastarf, brauðsbrotning og Greg Aikins prédikar. Kaffi á eftir. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjón- usta og barnastarf kl. 14. Sr. Bryndís Valbjarnardóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Anna Sigga og kór Fríkirkjunnar í Reykjavík leiða tónlistina ásamt Að- alheiði Þorsteinsdóttur orgelleikara. GLERÁRKIRKJA | Messa, barnastarf kl. 11. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar ásamt Pétri Björgvin Þorsteinssyni djákna. Erlendir gestir taka þátt í mess- unni. Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar, Kross- bandið leiðir söng. Kynningarfundur fyr- ir foreldra fermingarbarna á eftir. GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Vigfús Þór Árnason þjónar fyrir altari. Félagar úr Gideonfélaginu taka þátt í messunni. Sigurbjörn Þorkelsson flytur ræðu, Ásgeir M. Jónsson og Trausti Ragnar Einarsson lesa ritning- arlestra. Kór kirkjunnar syngur, org- anisti er Hákon Leifsson. Sunnudaga- skóli kl. 11. Umsjón Þóra Björg Sigurðardóttir og undirleikari er Stefán Birkisson. Borgarholtsskóli Messa kl. 11. Sr. Guðrún Karlsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Vox Populi syngur, organisti er Guðlaugur Viktorsson. Sunnudaga- skóli á sama tíma. Umsjón hefur Linda Jóhannsdóttir og undirleikari er Markús Bjarnason. GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10 og bænastund kl. 10.15. Barna- starf kl. 11 í umsjá Helgu Kolbeins- dóttur. Messa kl. 11. Altarisganga og samskot til langveikra barna. Messu- hópur þjónar. Stúlknakór Reykjavíkur syngur, stjórnandi er Guðrún Árný Guð- mundsdóttir og organisti er Ásta Har- aldsdóttir. Prestur sr. Ólafur Jóhanns- son. Molasopi á eftir. Hversdagsmessa með Þorvaldi Hall- dórssyni á fimmtudag kl. 18.10. GRINDAVÍKURKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Oddfellowstúk- urnar á Suðurnesjum koma í heimsókn og taka þátt í helgihaldinu. Organisti er Helga Bryndís Magnúsdóttir. Helgi- stund í Víðihlíð kl. 12.30. Sr. Elínborg Gísladóttir. GRUND dvalar- og hjúkrunarheim- ili | Messa kl. 14 í hátíðarsal í umsjá Félags fyrrum þjónandi presta. Ólöf Margrét Snorradóttir guðfræðinemi prédikar. Sr. Einar Sigurbjörnsson, pró- fessor guðfræðideildar HÍ, þjónar fyrir altari. GUÐRÍÐARKIRKJA Grafarholti | Guðsþjónusta og barnastarf kl 11. Prestur sr. Petrína Mjöll Jóhann- esdóttir, organisti Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syngur. Barnastarf í umsjá Árna Þorláks Guðnasonar. Með- hjálpari Aðalsteinn D. Októsson. Kirkju- vörður Lovísa Guðmundsdóttir. Bollu- kaffi á eftir. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Kvennakór Háskóla Íslands syngur undir stjórn Margrétar Bóasdóttur. Organisti Guð- mundur Sigurðsson, prestur er sr. Þór- hallur Heimisson. Kaffi á eftir. Trúar- bragaðskólinn kl. 20. Messa á miðvikudag kl. 8.15. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Ósk- arsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni og messu- þjónum. Félagar úr Mótettukór Hall- grímskirkju syngja, organisti er Hörður Áskelsson. Fyrirbænamessa á þriðju- dag kl. 10.30. HÁTEIGSKIRKJA | Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Páll Ágúst, Hreinn og Sólveig Ásta taka á móti börnunum. Organisti er Kári Allansson, prestur Tómas Sveinsson. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Fé- lagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða söng, organisti er Jón Ólafur Sigurðs- son. Sunnudagaskóli kl. 13. HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Samkoma kl. 17. Ágúst Valgarð Ólafs- son talar. HVAMMSKIRKJA Norðurárdal | Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Sverrir Guðmundsson, prestur er sr. Elínborg Sturludóttir. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Samkoma og brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður er Hafliði Kristinsson, fjöl- skyldu- og hjónaráðgjafi. Kaffi á eftir. Samkoma á ensku hjá Alþjóðakirkjunni kl. 14. English speaking service. Ræðumaður er Alex Couper. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl. 13.30 fyrir alla fjölskylduna. Lof- gjörð og fyrirbænir. Friðrik Schram pre- dikar. Barnastarf á sama tíma. Kaffi á eftir. KAÞÓLSKA kirkjan: Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og laugardag kl. 18. Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa kl. 11. Virka daga er messa kl. 18. Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl. 10.30 og virka daga kl. 18.30 (nema föstudaga). Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl. 8.30 og virka daga kl. 8. Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14. Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30, kl. 13 á pólsku og á ensku kl. 18. Virka daga er messa kl. 18. Maríukirkja við Raufarsel, Rvk | Messa kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laugardag er messa á ensku kl. 18.30. Stykkishólmur | Messa kl. 10. Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16. KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Erla Guðmundsdóttir, Systa, Jón Árni og Ester stýra barnstarfinu. Fé- lagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja und- ir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Prestur er sr. Sigfús B. Ingvason. Æðruleys- ismessa kl. 20 með AA-mönnum. Prestur er sr. Sigfús B. Ingvason. KFUM og KFUK | Samkoma kl. 20. Gleðisveitin sér um tónlistarflutning, söng og hugleiðingu. Samkomuþjónar eru Sigrún og Hörður. Á eftir er sælgæt- issala KSS opin. KÓPAVOGSKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson prédikar. Kór Kópavogskirkju syngur, organisti er Lenka Mátéová. Umsjón með sunnudagaskóla hafa Þóra Mar- teinsdóttir og Sólveig Aradóttir. KVENNAKIRKJAN | Guðsþjónusta í Neskirkju kl. 20. Sr. Auður Eir Vil- hjálmsdóttir prédikar og minnist af- mælis Kvennakirkjunnar 14. febrúar. Kór Kvennakirkjunnar leiðir söng við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Kaffi á eftir. LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Dagbjört Andrésdóttir syngur einsöng. Organisti Jón Stefánsson og prestur er Sigrún Óskarsdóttir. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjón Ingunnar Huldar og Arons. Kaffi og djús á eftir. LAUGARNESKIRKJA | Messa og sunnudgaskóli kl. 11. Bjarni Karlsson þjónar ásamt Gunnari Gunnarssyni org- anista, kór Laugarneskirkju, sunnu- dagaskólakennurum og hópi messu- þjóna. Kaffi. LÁGAFELLSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Skírnir Garðarsson þjónar fyrir altari og prédikar. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur, einsöngvari er Arnþrúður Ösp Karlsdóttir. Arnhildur Valgarðsdóttir leikur á orgel, Hugrún E. Sigurðardóttir á básúnu og Andrea D. Pálsdóttir á þverflautu. Sunnudagaskóli kl 13. Um- sjón hafa Hreiðar Örn og Arnhildur. LINDAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11 í Lindakirkju og Boðaþingi. Messa kl. 14. Kór Lindakirkju leiðir söng undir stjórn Óskars Einarssonar. Gestur og einsöngvari með kórnum er Þorvaldur Halldórsson. Sveinn Alfreðsson guð- fræðinemi prédikar. Prestur er Guð- mundur Karl Brynjarsson. Æskulýðs- starf KFUM og K kl. 20. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Háskólakór- inn syngur undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messu- þjónar aðstoða. Umsjón með barna- starfi hafa Sigurvin, Katrín og Ari. Veit- ingar á eftir. NJARÐVÍKURKIRKJA Innri | Fjöl- skylduguðsþjónusta og sunnudaga- skóli kl. 11. Veitingar á eftir. SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17 í safnaðarheimili Grensáskirkju. Ræðumaður er sr. Kjartan Jónsson. SAUÐÁRKRÓKSKIRJA | Sunnudaga- skóli kl. 11. Umsjón hafa Guja, Fanney Rós og Rögnvaldur við píanóið. Börn fædd árið 2006 fá gefins bók frá kirkj- unni. SELJAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Almenn guðsþjónusta kl. 14. Sr. Val- geir Ástráðsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar. Þorvaldur Halldórsson stýrir tónlistinni. Altarisganga. SELTJARNARNESKIRKJA | Messa á konudag kl. 11. Safnast verður saman á Valhúsahæð kl. 10.45, þar sem Auð- ar djúpúðgu og Guðrúnar Ósvíf- ursdóttur verður minnst. Kvenfélagið Seltjörn tekur þátt og lesa félagskonur ritningarlestra og bænir, Málfríður Finn- bogadóttir flytur hugleiðingu og Rann- veig Ívarsdóttir formaður flytur ávarp. Sunnudagaskóli kl. 11. Sóknarprestur og organisti kirkjunnar þjóna ásamt fé- lögum úr Kammerkórnum. Veitingar á eftir. Fræðslumorgunn kl. 9.45. Torf- hildur Rúna Gunnarsdóttir talar um leiðina til Santiago de Compostela. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup annast prestsþjónustuna, organisti er Jón Bjarnason. VEGURINN kirkja fyrir þig | Fjöl- skyldusamkoma kl. 14. Barnastarf, lof- gjörð, prédikun og fyrirbæn. Högni Vals- son prédikar. VÍDALÍNSKIRKJA | Útvarpsmessa kl. 11. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar fyrir altari ásamt Kolbrúnu Sigmunds- dóttur og Guðrúnu Björt Yngvadóttur, Gullveig Sæmundsdóttir ritstjóri flytur hugvekju. Kvennakór Garðabæjar syng- ur undir stjórn Ingibjargar Guðjóns- dóttur. Sunnudagaskóli á sama tíma. Á eftir er súpa og tískusýning frá versl- uninni Ilse Jacobsen. Örmálþing kl. 13, Jóhanna Vilhjálmsdóttir flytur erindi um heilsueflingu. VÍÐISTAÐAKIRKJA Hafnarfirði | Fjölskylduhátíð kl. 11. Barna- og ung- lingakórinn syngur undir stjórn Áslaug- ar Bergsteinsdóttur. Prestur er sr. Bragi J. Ingibergsson. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11 fer fram í Njarðvík- urkirkju. Orð dagsins: Skírn Krists. (Matt. 3) Morgunblaðið/Kristján Péturskirkja á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.