Helgafell - 01.06.1942, Page 15

Helgafell - 01.06.1942, Page 15
SIGURINN EFTIR STRÍÐIÐ 149 Hvemig geta menn haldið áfram að staðhaefa, að stjórnmál og listir séu hvort öðru óháð ? Það varð hlutskipti vorra tíma að uppgötva einingu heimsins, samheild alls, sem er mannlegrar ættar. Menn hafa ekki aðeins komið auga á þessa einingu sem sálfraeðilega staðreynd, heldur einnig sem sögulega framþró- un, sem samstillingu heimsaflanna, þar sem framfarir í samgöngum, við- skiptum og andlegum efnum haldast í hendur og búa mannkyninu sömu örlög. Heimurinn er ekki lengur jafn- stór og hann var áður, og um allt leik- sviðið er háð sama orustan — skoð- anabarátta, trúarbragðastyrjöld, þar sem alls staðar er stefnt að einu marki. Til þessa hefur samdráttarvilji heims- ins birzt í vopnaviðskiptum, í alþjóð- legri borgarastyrjöld, sem villir mönn- um sums staðar sýn, svo að þeir halda, að hér sé um stríð milli þjóða að ræða. En í rauninni eru vígstöðvarnar alls staðar, fleyga sig gegnum allar þjóð- ir og líkjast aðeins þjóðastríðum fyrri tíma að ytra útliti. Sú hugsun verður smám saman rík- ari með mönnum, að þjóðarhugsjónin sé ekki lengur drottnandi hugsjón vorra tíma og muni tæpast verða fram- tíðinni til mikilla nytja, að langt sé lið- ið á öld þjóðríkja og þjóðmenningar, og að þessi styrjöld, sem skiptir hug- um manna fremur en þjóðum, eigi drýgstan þátt í þeim aldahvörfum. Nú er svo komið fyrir heiminum, að allir forvígismenn þýzkra bókmennta, sem nokkuð kveður að, dveljast í Amer- íku. Þar eru einnig allir helztu eðlis- fræðingar og sagnfræðingar ítala og allir fremstu fulltrúar tónlistar Evrópu. Víðs vegar um heim berast synir sömu þjóðar á banaspjót, svo sem Frjálsir- Frakkar, er börðust gegn hersveitum Dentz hershöfðingja — og var þetta þó sýnilega aðeins upphafið. Utlegðin er ekki lengur, eins og fyrrum, leit að stundargriðum erlendis, þar sem menn biðu heimfararinnar með óþreyju og árvekni. Vér bíðum ekki heimfarar, vér erum fyrir löngu horfnir frá þeirri hugsun. Vér bíðum framtíðarinnar — og framtíðin er fólgin í hinni nýju hug- sjón um heimssamfélag, þar sem tak- mörk verða sett fyrir fullveldi og sjálf- ræði þjóðanna. Útlegð vor, fulltrúa ó- líkustu menningarþjóða, er aðeins undanfari þess ríkis, sem koma skal. Virðum fyrir oss þýzka ríkið: Það ryður sameiningu heimsins braut gegn eigin vilja. Það er haldið þeirri glap- sýn, að takmark ,,hamfaranna“ sé að vinna hinum þýzka kynstofni heims- yfirráð. Þýzka ríkið er að losna úr reipunum — hvað annað gæti siglt í kjölfar takmarkalausrar útþenslu, sem það keppir að í blindu æði ? Ráðamenn þess halda, að þeir fái af- stýrt ,,limafallinu“, er þeir óttast að ósigri loknum — eyðingu þýzka ríkis- ins. Og ríki Bismarcks, sem komst á laggirnar fyrir velviljað hlutleysi Eng- lands, er jafnvel horfið úr sögunni. Maðurinn, sem þykist Bismarck fremri, hefur með afrekum vélbúins hers teygt Þýzkaland um allar jarðir, og þessa stundina veit enginn, hvar landmörk þess eru. Að hætti hálf- menntaðs manns spáir Hitler því, að Þýzkaland muni verða öll Evrópa eða alls ekki neitt. Á þennan hátt auðvirð- ir hann sameiningarhugmynd fram- tíðarinnar, brjálar hana og falsar með gatslitnum þjóðrembingi, sem hann reynir að dubba upp á með vesælustu lörfum kynflokkakenningarinnar — á sama hátt og nasjónalsósíalisminn, þessi vanskapningur gamals tíma og nýs, spillir öllu og saurgar, er hann
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.