Helgafell - 01.06.1942, Síða 34

Helgafell - 01.06.1942, Síða 34
168 HELGAFELL hann á hina nýju útgáfu Illgresis í samvinnu við dr. Bjarna Aðalbjarnarson, sem alla umsjón hefur haft með prentun bókarinnar og lestur prófarka. Að Magnúsi látnum kom í leitirnar kvæði, sem tvímælalaust verður jafnan skipað á bekk með því bezta, sem hann hefur gjört. Nefndi hann það: Þá var ég ungur, en betur hefði því hæft heitið: Móðir mín, því að það er sannkallaður lofsöngur til móður hans, og fer vel á þvx. Er engin til- viljun, að hann hefur valið því kvæði bragarhátt áþekkan þeim, sem mörg hinna fegurstu Maríukvæða voru ort undir. Kvæði þetta orti hann á síðustu mánuðum ævi sinnar, helsjúkur, en þó svo andlega hress, að hann gat skapað listaverk, sem verður honum óbrot- gjarn minnisvarði í bragar túni. Það er hans Post Mortem eða uppgjörð við lífið. Beiskja fyrri ára er horfin, en viðhorfið við hinni miklu gátu er enn- þá óbreytt: Þá vildi ég, móðir mín, að mildin þín svæfði mig svefninum langa. VI. Ég þekkti Magnús Stefánsson í rúman aldarfjórðung, og vissi hann aldrei skipta skapi. Svo mikið vald hafði hann á skapsmunum sínum, og var hann þó skapmaður og tilfinningaríkur. Aldrei var svo til hans komið, að hann hefði ekki gamanyrði á reiðum höndum, jafnvel þó hann væri þjáður. Hann var kjarkmaður og talaði með rósemi um dauðann. En gjarnan kvaðst hann vilja lifa lengur til þess að sjá og heyra, hver endalok yrði á styrjöld þeirri, er nú geisar. Hann hafði bjargfasta trú á því, að lýðræði og mannúð gengi með sigur af hólmi í þeim hildarleik, sem nú er háður um heim allan, og að upp risi betri heimur á rústunum, þar sem gætt væri meira jafnaðar og mildi, og mannúð væri sett skör hærra. Hann hafði ríkan áhuga fyrir stjórnmálum, og bar mjög fyrir brjósti hag alþýðunnar til sjávar og sveita. Hann fórnaði henni skáldskap sínum, lífi sínu, því að honum helgaði hann allt sitt líf. Skáldskapargáfan var honum dýrmætasta eignin, henni lifði hann og hirti hvorki um fé né frama. Magnús var gæddur óvenjulegum gáfum, og er öllum þeim, sem kynnt- ust honum ógleymanlegur fyrir sakir hógværðar, hjartalítillætis og mann- kosta. Jóhann Gunnar Ólafsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.