Helgafell - 01.06.1942, Page 40

Helgafell - 01.06.1942, Page 40
174 HELGAFELL verkfræðinga og ólærða verkamenn eða ekki, eða um það, Kversu mikill skyldi vera munurinn á launum þeirra ? Mætti ekki eftir sem áður deila um það, hvort nauðsynlegt sé að gera fyrst ráðstafanir til hagsbóta fyrir bændur eða bæjabúa ? Gætu ekki enn orðið deilur milli þeirra, sem stjórna, og hinna, sem er stjórnað ? Og myndu menn ekki eftir sem áður geta haft ólíkar skoðanir á félagsmálum og menningarmálum ? Lýðræðið og frelsið til þess að mynda flokka og rökræða deilumál er alltaf nauðsynlegt, ef þjóð- irnar eiga að þroskast, hvert sém búskaparkerfi þeirra kann að vera. Þeir, sem aðhyllast félagsbúskap, hljóta að gera það sökum þess, að þeir álíta manninn þá verða sælli og þroskaðri. En sé félagsbúskapur hafinn og lýðræði afnumið, er það, sem gefið er með annarri hendinni, tekið með hinni. Sé tekin upp skipuleg andstaða gegn stjórnmálaflokkum og flokkaskipt- ingu, er raunverulega um að ræða andstöðu gegn einu af því, sem bein- línis gefur lýðræðinu gildi, og það á að færa okkur, — það er í rauninni verið að hefja andóf gegn lýðræðinu sjálfu, því að eigi engir flokkar að \era til, er það út í bláinn að tala um frelsi til þess að mynda flokka, en það er einn af hornsteinum lýðræðisins. Andstaðan gegn flokkunum er í rauninni einræðissinnuð, hún leiðir til einræðis, þótt margir málsvarar hennar geri sér þess ef til vill ekki grein. En sumir draga enga dul á það, að þeir álíta einræðið heppilegra en lýðræðið, að til eigi að vera aðeins einn flokk- ur, og þjóðin eigi að hlíta styrkri stjórn, — þar sem svo sé, eigi engar deil- ur sér stað, og engin sundrung standi framförum fyrir þrifum. Það er hrap- allegur misskilningur, ef einhver kynni að halda, að í einræðisríkjunum sé ekki um öll hin sömu raunhæfu vandamál að ræða í stjórnar-, félags- og atvinnumálum og í lýðræðisríkjunum. Sá einn munur er á, að þar er jafn- an skorið úr deilumálunum út frá einu sjónarmiði, sjónarmiði hins ráðandi flokks eða manns, en ekki leyft að draga það opinberlega í efa eða deila um það, hvort þetta sjónarmið sé rétt eða sanngjarnt. Séu einhverjir leið- toganna óánægðir með lausn málanna, hefjast deilur bak við tjöldin, — þar eð vald meira hlutans er ekki viðurkennt, verða menn að gera samsæri til þess að vinna fyrir málstað sinn, og deilunum lyktar því títt með því, að sá aðilinn, sem sterkari er, reynir að útrýma hinum. Það er algjörlega rangt, að hjá einræðisþjóðunum ríki raunverulega eining um málefni þjóð- félagsins; það er einungis bannað að deila opinberlega um það, sem menn eru ekki sammála um. Það er rangt, að einræðisþjóðirnar séu ein heild, þótt reynt sé að láta líta svo út; þeim er einungis bannað að láta það koma fram, að þær eru það ekki. Það er rangt, að einræðisþjóðunum sé stjórnað með hagsmuni allra stétta fyrir augum, — það er ekki hægt, fremur en að rrokkur flokkur getur raunverulega verið flokkur allra stétta, því að hags- munir stéttanna eru andstæðir; þeim er einungis bannað að deila um það, til hagsmuna hvaða stétta eigi að taka mest tillit á hverjum tíma.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.