Helgafell - 01.06.1942, Page 60

Helgafell - 01.06.1942, Page 60
194 HELGAFELL jafnvel meira gagn af þessari nýbreytni en þá flesta órar fyrir sjálfa. Tómstunda- Flestir menn iðka einhver störf. störf í tómstundum sín- sínum sér til skemmtunar og upplyftingar. Tómstundastörfin eru mjög mikilvæg fyrir sálarþroska manns- ins, þau vega upp á móti tilbreytinga- lítilli vinnu og víkka sjóndeildarhring hans. En einnig hér verða menn að gjalda varhuga við vananum. Sakir endurtekningar getur tómstundastarf- ið orðið smám saman að fastri venju og hefur þá ekki lengur hin örvandi á- hrif nýbreytninnar. Ymis tómstunda- störf eru þannig löguð, að ráðlegra er að breyta til við og við, því að annars leggur vaninn sína dauðu hönd á þau og þau hætta að verða manninum sá ánægjuauki, sem þau voru í fyrstu. Félags- Þá er hollt fyrir suma að starfsemi. gerast meðlimir í ýmsum félögum, sem starfa að framfara- og menningarmálum. Mað- urinn er félagsvera, þótt menn séu hins vegar misjafnlega félagslyndir. Sumir njóta sín bezt, er þeir starfa í alls kon- ar félögum, en aðrir eru slíkum störf- um frábitnir. Þótt segja megi um ýms einstök félög, að þau séu gagnslaus, komi engu í framkvæmd, venji menn á að tala um málefnin og gera þessar frægu samþykktir og áskoranir, án þess að félagið sjálft eða hver einstak- ur meðlimur þess leggi nokkuð í söl- urnar, að þeir grunnfærustu, fram- hleypnustu og ráðríkustu láti þar mest á sér bera o. s. frv., þá eiga ekki öll fé- lög þarna óskipt mál. Yfirleitt hefur alls konar félagsskapur örvandi áhrif á menn, einkum fyrst í stað, og sér- staklega ef maðurinn tekur sjálfur virk- an þátt í félagslífinu, tekur þátt í um- ræðum og gegnir störfum í þágu fé- lagsins. Mörg félög verða að þröng- sýnni klíku, þar eru alltaf sömu menn- irnir, sem setja sinn svip á þau, og verða þau bindandi og lamandi, er til lengdar lætur. Af þessum ástæðum er ráðlegt að vera ekki eilífur augnakarl í sama félaginu né tengja sig því um of, en skipta heldur um félag við og við til að kynnast nýjum mönnum og nýjum sjónarmiðum. Fjölbreytt- Loks er gagnlegt, til að ur lestur. forðast ofurvald vanans, að hafa tilbreytingu í því, sem menn lesa. Áhrif bóka, blaða og tímarita, hins prentaða máls, er svo mikill þáttur í lífsreynslu nútíma- mannsins, að þessu verður að gefa fullan gaum. Sá, sem aðeins les þau blöð og tímarit, sem flytja skoðanir þær, er hann sjálfur aðhyllist, styrkir einungis með lestrinum hugsunarvenj- ur sínar og verður enn rótgrónari en áður í hleypidómum sínum. Það er ekki sjaldgæft, að hitta menn, sem lesa ekki nema flokksblað sitt, t. d. Tímann, Morgunblaðið eða Alþýðu- blaðið, og þekkja ekki málin nema frá einu sjónarmiði. Eftir að hann er orð- inn venjuþræll flokkshugsunarháttar- ins, flýr hann eins og heitan eldinn allt, sem hróflar við honum. Þessir menn myndu hafa gott af því að lesa önnur blöð jafnframt, til að kynnast frá fyrstu hendi hinum ólíku sjónar- miðum, sem ríkja um málefni þjóðar- innar. Fátt þroskar menn meira en að geta litið á málefnin frá mörgum hlið- um eða sjónarmiðum og sett sig inn í og skilið hugsunarhátt manna, sem hafa aðrar skoðanir en þeir sjálfir. Sá, sem temur sér það, er sífellt að endur- meta skoðanir sínar og hugsunarvenj- ur. En auðvitað geta menn fjötrazt af
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.