Helgafell - 01.06.1942, Qupperneq 79

Helgafell - 01.06.1942, Qupperneq 79
DRAUMUR TIL KAUPS 209 landslýð atvinnu og peninga ? Hefur hún ekki jafnan aflað heimilinu meg- intekna með saumum og þvottum, en þagað góðlátu hljóði yfir prísum manns síns ? Hefur hún ekki ávallt lit- ið á hann eins og elskulegan óvita, sem hún leiðir sér við hönd eftir hinum tor- sótta vegi lífsins og lofar að hafa þá skoðun, að allt sé fagur draumur, af því að hún ein fær að reyna ranghverfu tilverunnar ? Og hvenær hafa vinir hans litið öðruvísi á hana en sem hús- gagn hans, þegar þeir sitja í óskiljan- legum samræðum við hann, en gera sér gott af kaffi hennar og kökum ? Nú opnar Sesam eitt andartak dyr sínar fyrir henni og býður henni innfyrir. Á hún að forsmá það ? Upphaflega lætur hún sér nægja að bæta úr aðkallandi tekjuþörf sinni með þvotti fyrir setuliðið, en úrræðin til fjár- öflunar sýnast ótæmandi, þegar farið er að svipast um eftir þeim. Þau orka á hana líkt og áfengur drykkur; þó ber hún það með þögn að sjá menn nágrannakvenna sinna hlýða kalli gull- leitarinnar, fyllast hinum forna anda frá Klondyke, koma heim úr Breta- vinnunni, ef ekki með hinn gullna málm, þá að minnsta kosti fullgildi hans í rauðum seðlum, á meðan mað- ur hennar húkir, hugsunarlaus um veruleikann, yfir barnalegu pári, sem ekkert gefur í aðra hönd. Hún æðr- ast ekki, þótt hún sjái, hvernig hin fá- tækustu heimili, fyrir mátt þessara töfra, breytast í smáborgaralegar lúx- usíbúðir, þangað sem þungir, klunna- legir stólar og fleiri húsgögn velmegun- arinnar streyma. Enn getur hún um stund þolað að heyra útvarpshljóm úr hverri nágrannaíbúð, sem hingað til hefur talið það á óþarfaútgjaldaliði, að kaupa Morgunblaðið til þess að fylgj- ast með stórviðburðum heimsins og stjórnmálum borgarinnar. En þegar vinkonur hennar taka að klæðast kjól- um og kápum, slíkum, er hingað til hafa aðeins sézt utan á dætrum beztu borgara, þá fer siðferðisþreki hennar að verða hætta búin. Það eru takmörk fyrir því, hvað má bjóða mannlegu eðli. En heimspekingurinn, Auðunn Auð- unsson, rumskar ekki við gróðastorm- inn, sem geisar um borgina, hann bið- ur ekki um neitt af blessun stríðsins sér til handa, en skrautritar með sömu alúðinni og sömu hægðinni heillaóskir, ef einhver má vera að því að senda frá sér slíkan hégóma mitt í hinu ævin- týralega annríki, sem er án dæma í sögu borgarinnar. Og prísar hans eru hinir sömu og áður. En sefur hann ? Verður hann ekki breytinga var ? Það er ólíklegt um mann, sem veit jafn- mikið og hann um hugsunina. Hann finnur, að hugblær manna hefur breytzt, tekur eftir því, að önnur um- ræðuefni en styrjöldin og gróðaúrræð- in þykja ekki dagskrárhæf. Gestir hans hafa allt í einu glatað öllum áhuga
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.