Morgunblaðið - 08.01.2014, Page 4

Morgunblaðið - 08.01.2014, Page 4
Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Landsmenn eru ekki fyrr búnir að klára jólabjórsbirgðirnar þegar næsti árstíðarbjór ryður sér til rúms. Sölu á jólabjór lauk á mánudag- inn, en sala á þorrabjór hefst á bóndadaginn, 24. janúar. Giss- ur Kristinsson, vínráðgjafi hjá Vínbúðinni, seg- ir sölu á þorra- bjór þó vera langtum minni en jólabjór. „Það er búið að sækja um að selja átta tegundir, en við höfum ekki fengið neitt af þeim í hús ennþá. Við vitum því ekkert um hvers konar bjór þetta er, en þetta eru sömu aðilar og í fyrra; Ölgerð- in, Vífilfell, Bruggsmiðjan [Kaldi], Steðji og Gæðingur,“ segir Gissur, en tegundirnar voru sex í fyrra. Hann segir þróunina þá að bjóða upp á árstíðabjór, en auk þeirra tegunda sem hafa verið taldar upp má nefna að páskabjór, sumarbjór og októberfestbjór hefur verið til sölu á Íslandi undanfarin ár. Hann segir útlit fyrir aukið framboð á öllum árstíðabundnum bjór. 33.000 lítrar af þorrabjór Gissur segir að í fyrra hafi selst rúmir 33.000 lítrar af þorrabjór. „Þetta er miklum mun minna en jólabjórinn, það verður ekki al- gjört æði eins og um jólin.“ Salan stendur yfir í mánuð, frá bónda- degi til konudags. „Til sam- anburðar seldust 616.000 lítrar af jólabjór í fyrra og 573.000 lítrar árið 2012.“ Allt árið í fyrra seldust 18.653.000 lítrar af áfengi, þar af 14.000.000 lítrar af lagerbjór. „Þorrabjór er tiltölulega nýr á markaðnum, það eru ekki nema nokkur ár síðan hann kom fyrst. Það sama má segja um sumarbjór- inn, það byrjaði bara sem einn bjór.“ Hann segir árstíðabundna bjórinn skiljanlega hægja á sölu á öðrum bjór. „Staðan er örugglega sú hjá mörgum að þeir keyptu mik- ið af jólabjór sem þeir svo eiga eitthvað inn í árið. Síðan selst eitt- hvað minna þangað til þorrabjór- inn kemur.“ Þorrabjórinn í verslanir 24. janúar  33.000 lítrar af þorrabjór seldir í fyrra Gissur Kristinsson 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Þessi hækkun á raforkuverði kem- ur sér illa fyrir dreifbýlið. Vissu- lega koma niðurgreiðslur á móti en menn þurfa að nálgast þetta heild- stætt. Það er í sjálfu sér engin lausn ef auknum stuðningi fylgir að orkuverðið hækki strax í kjölfarið. Slíkt kalla ég að bíta í skottið á sér,“ segir Kristinn Jónasson, bæj- arstjóri í Snæfellsbæ. Fresta hluta hækkunar Orkuverð, samkvæmt gjaldskrá RARIK, hækkaði um áramótin. Heilt yfir er hækkunin um 2% en kemur misjafnlega niður. Í þéttbýl- inu er engin breyting hvað áhrærir verð á rafmagni til almennra nota. Í sveitunum hækkar gjaldskráin hins vegar og að jafnaði um 4,5%. „Enn er þörf fyrir sérstaka hækkun í dreifbýli, en með tilliti til aðstæðna í þjóðfélaginu hefur stjórn RARIK ákveðið að fresta hluta hækkunar þar,“ segir í frétt á vefsetri fyrirtækisins. Þetta telur fólk út um land bagalegt. Í því sam- bandi er nefnt að þar sem rafmagn er notað til húshitunar á meðal- stóru einbýlishúsi sé kostnaðurlið- ur sem alla muni um. „Í dreifbýlinu hér, það er Stað- arsveit, Breiðuvík og gamla Fróð- árhreppnum, er rafmagnshitun ráðandi og við vitum af óánægju fólks þar,“ segir Kristinn Jónasson. En nú eru breytingar í vændum. Stuðningur við dreifbýlið er meg- inþráðurinn í frumvarpi til laga um breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku. Iðnaðarráðherra lagði frumvarpið fram skömmu fyrir jól og bíður það nú umfjöllunar Alþingis. Útfærslan málsins í frumvarpinu er sú, að inn- heimt verði sérstakt jöfnunargjald á hverja selda kílówattstund. Dreifiveitur myndu innheimta gjaldið, sem yrði 30 aurar á kíló- vattstund. Hafi orkufyrirtækin hins vegar heimild til þess að skerða orkuna, t.d. hjá magnkaupendum, er gjaldið 10 aurar á kílówattstund. Aldrei umfram hæsta þéttbýlisverð „Viðmiðið er að raforkuverð í dreifbýli verði aldrei hærra en hæsta verð í þéttbýlinu,“ segir Benedikt Guðmundsson hjá Orku- stofnun. Í dag er kostar kílóvatt- stundin úti í sveitunum 8,29 kr. hjá RARIK borið saman við að kwst. hjá Orkuveitu Reykjavíkur fer hæst í 5,67 kr. „Í dag er á ári hverju úr 250 milljónum kr. að spila til að jafna orkukostnaðinn. Markmiðið með hækkun þessa jöfnunargjalds á alla kaupendur er að á ári hverju verði einn milljarður króna til skiptanna og að það myndi nást á tveimur til þremur árum.“ Benedikt ætlar að í dag sé árs- kostnaður við rafhitun á 150 fer- metra einbýlishúsi, eins og algeng eru til sveita, að teknu tilliti til nýj- ustu hækkana, um 280 þúsund á ári án niðurgreiðslna. Sé miðað við hæsta þéttbýlisverð, það er hjá OR, væri þessi tala um 90 þúsund krónum lægri. Að teknu tilliti til niður- greiðslna er mismunurinn 43 þús. kr en stefnt er að, með jöfnunargjald- inu, að þessi mismunur verði að engu.  Þörf á meiri hækkun í dreifbýli, segir RARIK  Bitið í skottið á sér, að mati sveitarstjórnarmanns  Niðurgreiðslur verða auknar samkvæmt lagafrumvarpi, sem nú er til meðferðar á Alþingi Rafmagnsverð hækkar í sveitum Morgunblaðið/Brynjar Gauti Raforka Raforkuverð hækkaði um 2% að jafnaði um áramótin. Almennur skilafrestur á tilnefningum (ábendingum) vegna Blaðamanna- verðlauna ársins 2013 er til FÖSTUDAGSINS 17. JANÚAR 2014 KL 12:00. Eins og áður eru verðlaunin veitt í fjórum flokkum en þeir eru þessir: Viðtal ársins 2013 Umfjöllun ársins 2013 Rannsóknarblaðamennska ársins 2013 Blaðamannaverðlaun ársins 2013 Almenningur getur komið með tilnefningar með því að fara inn á vef Blaða- mannafélagsins www.press.is á þar til gert tilnefningarsvæði. Tilgreina þarf nafn blaðamanns eða blaðamanna, miðil, hvað tilnefnt er fyrir, hvenær það birtist og rök fyrir tilnefningunni. Einnig er hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna á skrifstofu Blaðamannafélags Íslands í Síðumúla 23, 108 Reykjavík, ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Dómnefnd mun síðan fara yfir tilnefningarnar og tilkynna um verðlaunahafa 8. febrúar nk. Blaðamannaverðlaun 2013 Blaðamannafélag Íslands Svell er víða á gangstígum. Í þéttbýlinu er búið að sanda eða salta víðast hvar. Öruggast er þó að vera vel búinn til fótanna og göngubroddar auka öryggið. Í dag er spáð norðaustan og norðan 13-20 m/s norð- vestan til en annars víða 5-13 m/s. Hiti verður yfirleitt 0-7 stig og mildast verður syðra. Svell og klakabunkar gera fótgangendum erfitt fyrir Morgunblaðið/Golli Það er erfitt að fóta sig á svellinu Anna Lilja Þórisdóttir Hólmfríður Gísladóttir Ljóst er að opinberir starfsmenn eru margir orðnir langeygir eftir því sem þeir telja eðlilega leiðréttingu launa og munu leitast við að ná henni fram í þeim kjaraviðræðum sem nú standa yfir. Guðlaug Kristjánsdóttir, formað- ur Bandalags háskólamanna, segir að margt verði á borðinu, m.a. þurfi að skoða launamuninn milli opin- bera markaðarins og almenna mark- aðarins og innbyrðis mun milli ein- stakra hópa. Hún segir að frá hruni hafi verið lögð áhersla á að hækka lægstu laun en sú nálgun dugi ekki lengur. „Ef þú ætlar að hafa metnaðar- fullan vinnumarkað og byggja á störfum í tæknigeira og á grundvelli menntunar, þá getum við ekki unnið þannig til lengdar. Þá þurfum við að huga að samkeppnishæfum launum fyrir háskólamenntaða,“ segir hún. Aðalheiður Steingrímsdóttir, for- maður Félags framhaldsskólakenn- ara, segir komið að ögurstundu hvað varðar kjör kennara en félagið á nú í samningaviðræðum um endurnýjun kjarasamnings sem rennur út í lok þessa mánaðar. Hún segir kjörin dragbít á skólastarf í landinu. „Það blasa við mjög erfiðir kjara- samningar; eins og staðan er núna lítur þetta ekki vel út. Launabilið sem þarf að brúa er orðið svo stórt,“ segir hún. Aðalheiður segir kennara gera þá kröfu að bilið verði brúað í þessum samningaviðræðum en þeir séu opnir fyrir ýmsum útfærslum, t.d. hvað varðar lengd samningsins. Hún segir ekki koma til greina að semja á svipuðum nótum og gert var á almenna vinnumarkaðnum. Dugir ekki að horfa bara á lægstu launin  Framhaldsskólakennarar vilja leiðréttingu í næsta samningi Kjör kennara » Grunnlaun nýútskrifaðs framhaldsskólakennara eru um 300.000 á mánuði og meðal-mánaðarlaun í stéttinni eru um 390.000. » Krafa framhaldsskólakenn- ara er að launakjörin verði sambærileg og hjá skyldum hópum hjá ríkinu sem eru með áþekka menntun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.