Morgunblaðið - 08.01.2014, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 08.01.2014, Blaðsíða 8
Skjáskot/Götusýn ja.is Úrskurður Í götusýn ja.is má m.a. sjá bílnúmer bíls sem er lagt skammt frá innkeyrslunni að heimili forstjóra Persónuverndar. Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Stjórn Persónuverndar mun á næsta fundi sínum fjalla um hvort fyrirtækið ja.is hafi farið að úrskurði Persónu- verndar um að fyrirtækið afmái per- sónugreinanlegar upplýsingar úr svo- kallaðri 360° götusýn sinni. Í götusýninni er hægt að slá inn heimilisfang og sjá myndir af viðkom- andi húsi og umhverfi þess. Í úrskurði Persónuverndar frá 23. ágúst 2013 var komist að þeirri nið- urstöðu að þessi myndbirting væri heimil, að því gefnu að einungis væru birtar ópersónugreinanlegar upplýs- ingar og að afmá ætti persónuupplýs- ingar í því efni sem þegar hafi verið birt. Úrskurðurinn var skýr: „Því [skal] afmá persónugreinanlegar upplýs- ingar af myndunum fyrir birtingu þeirra, nánar tiltekið andlit þeirra einstaklinga og skráningarmerki þeirra ökutækja sem þar koma fyrir,“ segir í úrskurðinum. Já skuli sjá til þess að allar myndir á vefnum séu ópersónugreinanlegar. Samkvæmt úrskurðinum frá í ágúst bar fyrirtækinu að senda Per- sónuvernd staðfestingu á því að fyr- irmælunum í úrskurðinum hefði verið fylgt eigi síðar en 1. október síðastlið- inn. Slík staðfesting hefur ekki borist Berist ekki staðfesting frá fyrirtæk- inu á allra næstu dögum verður málið tekið fyrir í stjórn Persónuverndar. Andlit og númer greinileg Örlítil athugun Morgunblaðsins á götusýninni hefur leitt í ljós að ja.is hefur alls ekki fjarlægt öll andlit og bílnúmer úr götusýninni. Í Morgunblaðinu á mánudag birtist mynd úr götusýninni sem sýndi andlit fólks sem var að ganga niður Lauga- veginn í Reykjavík sem og skráning- arnúmer bíla sem lagt var við götuna. Dæmin eru mun fleiri. Sigríður Margrét Oddsdóttir, for- stjóri Já, sagði í viðtali við Morgun- blaðið á mánudag að fyrirtækið færi eftir úrskurðinum. Einhver frávik gætu þó orðið, fólk gæti látið vita af þeim og fyrirtækið myndi bregðast hratt við ábendingum. Persónuvernd fjallar aftur um götusýn ja.is  Ekki staðfest að farið hafi verið eftir úrskurði  Frestur rann út 1. október 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014 Björn Bjarnason skrifar á Evr-ópuvaktina um væntanlega skýrslu Hagfræðistofnunar um stöðu Íslands gagnvart ESB og að- ildarviðræðunum. Hann bendir á að mikilvægt sé að upplýst verði hvers vegna viðræðuferl- ið hafi orðið allt annað og miklu lengra en aðild- arsinnar héldu fram í upphafi.    Hann getur þess að samfylking-arfólk láti „eins og þennan seinagang megi skýra með töfum af hálfu Jóns Bjarnasonar sem sat í embætti sjávarútvegsráðherra til 31. desember 2011.“    Og Björn bætir við: „Stein-grímur J. Sigfússon hafði ekki setið nema fáeina daga í emb- ætti sem eftirmaður Jóns þegar hann hélt til Brussel, í janúar 2012, til að leggja áherslu á að hraða yrði viðræðum um sjávar- útvegs- og landbúnaðarmál. Allt kom fyrir ekki. Þessar viðræður hófust ekki fyrir lok kjörtímabils- ins.    Hvað réð þessum töfum? Vissistækkunardeild ESB að það jafngilti slitum á viðræðunum ef fulltrúar hennar kynntu kröfur ESB á hendur Íslendingum í land- búnaðar- og sjávarútvegsmálum? Vissu fulltrúar Íslands að færu þeir fram með skilyrðin í áliti meirihluta utanríkismálanefndar myndu ESB-menn ekki geta rætt málið frekar?    Óhjákvæmilegt er að þessumspurningum sé svarað í skýrslu Hagfræðistofnunar Há- skóla Íslands,“ segir Björn, og bætir við að borin von sé að Íslend- ingar öðlist rétt til varanlegrar sérstöðu utan hinnar sameiginlegu sjávarútvegsstefnu ESB. Björn Bjarnason Mikilvægar spurningar STAKSTEINAR Veður víða um heim 7.1., kl. 18.00 Reykjavík 4 léttskýjað Bolungarvík 1 alskýjað Akureyri 2 rigning Nuuk -3 alskýjað Þórshöfn 6 alskýjað Ósló 6 skýjað Kaupmannahöfn 7 skýjað Stokkhólmur 7 skýjað Helsinki 2 skúrir Lúxemborg 10 léttskýjað Brussel 11 léttskýjað Dublin 7 skúrir Glasgow 7 skúrir London 12 léttskýjað París 11 alskýjað Amsterdam 12 skýjað Hamborg 10 skýjað Berlín 8 heiðskírt Vín 5 þoka Moskva 0 þoka Algarve 16 skýjað Madríd 13 skýjað Barcelona 13 heiðskírt Mallorca 15 léttskýjað Róm 12 heiðskírt Aþena 12 léttskýjað Winnipeg -28 snjókoma Montreal -13 snjóél New York -14 heiðskírt Chicago -21 skýjað Orlando 3 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 8. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:10 16:00 ÍSAFJÖRÐUR 11:47 15:33 SIGLUFJÖRÐUR 11:31 15:15 DJÚPIVOGUR 10:47 15:22 Japan-ríkisólarinnar Fararstjóri: Inga Ragnarsdóttir9. - 20. október Kynningarfundur verður haldinn 9. janúar kl. 20:00 hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð. Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Ferð til þessa fornfræga menningarríkis, spannar óteljandi möguleika til að sjá og sinna því sem hugurinn girnist.Víða má sjá fornar borgir, alda og árþúsunda gamla garða og söfn, minjar frá ýmsum menningarskeiðum, iðandi nútímaborgir - og svo er það ilmurinn frá víðfrægri, japanskri matargerðarlist. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var með mikinn við- búnað við Höfðatorg í gær eftir að tilkynnt var um eld á 20. hæð turnsins að Katrínartúni 2. Enginn eldur reyndist í byggingunni en í ljós kom að mótor fyrir loftræstingu hafði brunnið yfir og við það myndast reykur. Ekki var talið að reykurinn hefði valdið skemmdum, þar sem einungis var um þunna reykj- arslæðu að ræða. „Viðvörunarkerfið virkaði og það sem mikilvægast er: fólkið í húsinu hlustaði á viðvörunarbjöllurnar,“ sagði Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri í samtali við mbl.is. Hann sagði það eina forsendu þess að slökkvistarf gengi vel fyr- ir sig að hús væru rýmd fljótt og örugglega, of algengt væri að fólk sæti kyrrt þegar brunabjöllur færu í gang. Jón sagði eldvarnir góðar í turn- inum en þar væri m.a. búið að leggja aukakapla þannig að fjarskipti gengju vel og svo væri til staðar sérstök slökkviliðslyfta með sér rafstöð. Mikill viðbúnaður þegar mótor brann yfir Höfðatorg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.