Frúin - 01.07.1962, Blaðsíða 18

Frúin - 01.07.1962, Blaðsíða 18
ÞUNGU HÚSGÖGNIN ÞOKA FYRIR ÞEIM LÉTTU Húsgögn, já, það getur verið nógu erfitt að velja þau, því um margt er að ræða og tízkan sífellt að þreyt- ast, eitt í dag og annað á morgun að segja má. En þá er sá möguleiki fyr- ir hendi, að leita aðstoðar um hús- gagnavalið. En hverjum er treyst- andi til þess? Ekki Pétri eða Páli og ekki er ævinlega hægt að treysta smekkvísi kunningjanna. Til skamms tíma hefur þetta verið mikið vanda- mál hjá kaupendunum, ekki sízt ungu fólki sem er að setja niður nýtt heim- ili. En nú er ráðin bót á þessu vand- kvæði. Það eru húsgagnaarkitektarn- ir og fagurfræðingarnir, sem hafa leyst hnútinn. Nokkrar húsgagna- verzlanir í Reykjavík hafa tekið upp þann þátt í verzlunarmálum að hafa ráðgefandi sérfróða menn á þessu sviði starfandi við verzlanirnar. Er þétta til mikils hagræðis fyrir kaup- endur og ber vissulega að fagna þess- ari auknu þjónustu á sviði verzlun- armála. Ein þessara verzlana er Hús- búnaður að Laugavegi 26 en við hana starfar Sveinn Kjarval húsgagna- arkitekt og fagurfræðingur. Blaðið sneri sér til hans með nokkrar spurn- ingar varðandi val á húsgögnum og ýmislegt fleira, en hann leysti góð- fúslega úr þeim spurningum. Verzlunin Húsbúnaður er ungt fyrirtæki, og hefur aðeins starfað frá því í september síðastliðinn. Fyrir- tækið hefur þó talsverða reynslu að baki sér, þar sem það er eign hús- gagnaframleiðanda eða 30 húsgagna- verkstæða og eru þar á meðal mörg hinna elztu í Reykjavík. Fyrirtækið kappkostar að hafa á boðstólum sem hagkvæmastan og hentugastan stíl á húsgögnum og sem fjölbreyttasta vöru. Allt ferkantað. — Það eru sífellt að verða breyt- ingar á húsgagnaframleiðslunni, sagði Sveinn Kjarval. — Núna sem stendur virðast arkitektarnir vera hrifnastir af öllu ferköntuðu í stað bogalínanna. Annars er allt sem hér gerist á þessum sviðum undir sterk- um áhrifum erlendis frá og þá helzt Dana, en það má vissulega kalla Dan- mörk „heimsveldi“ á húsgagnamark- aðinum. — En er þá smekkur fólks ekki á- kaflega misjafn? — Jú, sannarlega. Sumir hafa mjög ákveðinn smekk, aðrir fara eft- ir tízku og enn aðrir vita hreinlega ekki hvað þeir vilja fyrr en í verzl- unina er komið og í samráði við ráð- gefandi fagurfræðing. Ég er til við- tals hér í verzluninni til að gefa fólki leiðbeiningar um húsgagnaval tvisv- ar í viku, því að kostnaðarlausu, en svo á það líka kost á því að fá leið- beiningar í heimahúsum gegn gjaldi. V Viðtal við Svein Rjarval Reykt eik og „teak“. — Hvaða efni eru helzt notuð í hús- gögn um þessar mundir? — Það má nú segja, að reykt eik og „teak“ séu aðallega í tízku eins og er. Hvor tveggja er mjög heppi- legur viður í húsgögn, og hafa þá kosti, sem húsmæður kunna vel að meta, að það þarf ekki að „pólera“ húsgögn úr þessum efnum, nema í hæsta lagi einu sinni á ári, heldur er nægilegt að þurrka af þeim með rökum klút. Þetta svokallaða „teak“ er þannig úr garði gert frá náttúrunn- ar hendi að það inniheldur olíuteg- 18 FRÚIN

x

Frúin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frúin
https://timarit.is/publication/1084

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.