Frúin - 01.07.1962, Blaðsíða 29

Frúin - 01.07.1962, Blaðsíða 29
ER MANNSINS MGGIX Ætlunin er, að í þessu blaði verði þáttur um matreiðslu og annað, sem til heyrir eldhússtörfum. Reynt verð- ur að hafa þennan þátt sem fjölbreytt- astan og verður leitað til sérfræðinga á þessu sviði og eins að fylgjast með nýjungum sem fram kunna að koma í matargerð og tækni við matargerð. Að sjálfsögðu verður reynt að miða alla slíka fræðslu við íslenzka stað- hætti. Á öðrum stað hér í blaðinu verða leiðbeiningar til húsmæðra um ræktun grænmetis, sem húsmæður, sérstaklega til sveita, ættu að athuga gaumgæfilega. Hér á landi er ræktun grænmetis á lágu stigi, þrátt fyrir það, að í sólarlitlu landi er neyzla grænmetis ákaflega þýðingarmikill og nauðsynlegur þáttur í mataræði, þar sem grænmeti er mjög ríkt af bætiefnum og vítamínum. Eins og kunnugt er, er sólin upp- spretta alls lífs. Hún flytur manns- likamanum orku sem við m. a. köll- um vitamín og er lífsnauðsynleg fyr- ir okkur ef við eigum að halda heilsu og þrótti. Þessa orku flytur sólin okkur bæði beint og í fæðunni. Jurtirnar taka á móti þessari orku og við móttökum svo orkuna með neyzlu þeirra. Þar, sem sólargangur er stuttur og sjaldan nýtur sólar, eins og hér, er mikil neyzla grænmetis höfuðnauð- syn til þess að halda fullri heilsu og starfskröftum. Vegna þess hve hér nýtur lítillar sólar og loftslag er kalt er ræktun grænmetis erfiðleikum bundin. Þess vegna er grænmeti dýrt og oft ófáanlegt. Hins vegar gerir fólk sér ekki ljóst að mjög auðvelt er að rækta ýmiss konar grænmeti hér með litl- um tilkostnaði. Enn fremur er græn- meti ákaflega ljúffengt ef það er rétt meðhöndlað og hægt að hafa það með flestum mat. Er því hér með beint til húsmæðra, sem hafa að- stöðu til grænmetisræktunar að fylgjast með þætti sem verður hér í blaðinu og heitir Matjurtagarðurinn. Hér verða í áframhaldi af þessum hugleiðingum látnar fylgja nokkrar uppskriftir af skemmtilegum réttum, Hrámáltíð úr rifnum eplum, bleyttuum í blöndu af sítrónusafa, vatni og hunangi, eftir smekk. Enn fremur útbleyttar sveskjur og niðursneiddir hnetukjarnar. Stórar tvíbökur eða heilhveitibrauð smurt með smjöri, bor- ið með. með ávöxtum og grænmeti, sem víð- ast hvar er fáanlegt. Appelsínur og sítrónur fást um land allt og víða grapealdin. Appel- sínur eru afar vitaminauðugar og þrátt fyrir lýsisgjafir eru þær nauð- FRÚIN 29

x

Frúin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frúin
https://timarit.is/publication/1084

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.