Fréttablaðið - 27.09.2013, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 27.09.2013, Blaðsíða 12
27. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 EFNAHAGSMÁL Áfrýjunarfrestur í máli sem Lýsing tapaði í lok ágúst fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur rennur út í lok nóvember. Málið er eitt nokkurra prófmála sem höfðuð voru vegna gengislána. Ólafur Hvanndal Ólafsson hér- aðsdómslögmaður, sem fór með mál Lýsingar á hendur Írisi Fann- eyju Friðriksdóttur, segir ákvörð- un um áfrýjun ekki liggja fyrir. Þetta staðfestir Þór Jónsson, upp- lýsingafulltrúi Lýsingar, og segir ekkert hægt að segja um hvort Lýsing kunni að nýta sér allan áfrýjunarfrestinn. Samkvæmt niðurstöðu dómsins fékk Íris lækkaðar eftir stöðvar bílaláns um tæpar 690 þúsund krónur, frá endurútreikningi Lýsingar sem breytt hafði eftir- stöðvum úr tæpum 9,3 milljónum króna í rúmar 5,2 milljónir. Þá var henni dæmd 5,1 milljón króna í málskostnað. Málið tók hins vegar nokkrum breytingum fyrir dómi og svarar því færri álitamálum varðandi úrlausn gengislána en að var stefnt í upphafi. Í því fékkst þó niðurstaða um að dráttur á greiðslu afborgana ónýtti ekki svokallaða „kvittanareglu“. Þá hefðu skilmálabreytingar til þess að létta greiðslubyrði skuldar ekki þá þýðingu að lán væri komið í vanefndir, líkt og Lýsing vildi halda fram. Sömuleiðis féllst dómurinn ekki á að kvittanagjalddagar eldri en fjögurra ára teldust fyrndir. „Í þessu máli er ekkert sem á að tefja endurútreikninga lána hjá Lýsingu,“ segir Magn- ús Hrafn Magnússon héraðs- dómslögmaður sem flutti málið fyrir Írisi Fanneyju. Formlega segir hann ekki hafa verið tekna ákvörðun um áfrýjun af hennar hálfu. Áfrýjun væri hins vegar mjög ólíkleg. „Hún fékk öllum sínum kröfum framgengt.“ - óká Frestur til að áfrýja mun renna út í lok nóvember: Lýsing tapaði próf- máli í héraðsdómi BÍLAR Málalok gengislána fyrir dómstólum eru meðal óvissuþátta í rekstri íslenskra banka. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON KATAR, AP Aðstæður verkamanna, sem vinna við byggingar og annan undirbúning heimsmeistaramóts- ins í knattspyrnu árið 2022, eru það erfiðar að þúsundum þeirra er lífs- hætta búin. Sharan Burrow, framkvæmda- stjóri Alþjóðasambands verkalýðs- félaga (ITUC), segir að hundruð manna láti lífið á ári hverju vegna erfiðra aðstæðna. Mennirnir eru margir látnir vinna í steikjandi hita langan vinnudag á litlu kaupi og réttindalausir. Nú þegar séu um 1,2 milljónir erlendra verkamanna í Katar og þeim muni fjölga mjög þegar hafist verður handa við að reisa íþrótta- velli, hótel og aðrar byggingar fyrir heimsmeistaramótið 2022. Búast megi við því að fjögur þús- und verkamannanna hið minnsta falli í valinn fram til ársins 2022, þegar halda á mótið, verði ekki gerðar breytingar á vinnu- aðstæðum þeirra. Í yfirlýsingu frá Alþjóðaknatt- spyrnusambandinu (FIFA) í gær segir að sambandið hafi miklar áhyggjur af fréttum um erfiðar vinnuaðstæður og réttindaleysi verkamanna sem vinna við undir- búning heimsmeistarakeppninnar í Katar. Í viðtali við breska blaðið The Guardian, sem birti í gær ítarlega frásögn af aðstæðum erlendra verkamanna í Katar, segir Jim Boyce, varaforseti FIFA, að sam- bandið verði að kanna þetta án tafar. Burrow sakar hins vegar FIFA um þátttöku í samsæri með stjórn- völdum í Katar um að viðhalda óbreyttu ástandi. Hún segir að á fundi í nóvember árið 2011 hafi FIFA lofað að gera eitthvað innan hálfs árs varðandi vinnuaðstæður verkamanna. Ekki hafi verið staðið við þau loforð. „Ef FIFA er í raun alvara myndi ákvörðunarvald þeirra um að annað hvort verði heimsmeistara- mótið haldið við mannsæmandi aðstæður eða hætt verði við duga til þess að fá Katarbúa til að setj- ast niður til að ræða málin,“ segir Burrow. Í yfirlýsingu FIFA segir að aftur verði haft samband við stjórnvöld í Katar. Málið verði einnig rætt á fundi framkvæmdastjórnar FIFA í næstu viku. gudsteinn@frettabladid.is Þúsundir í lífshættu vegna HM í Katar Undirbúningur heimsmeistaramótsins í knattspyrnu í Katar árið 2022 gæti kostað þúsundir byggingarverkamanna lífið. Útlendir verkamenn í Katar eru réttlitlir og margir látnir vinna við afar erfiðar aðstæður langan vinnudag í steikjandi hita. EMÍRINN AF KATAR Sheikh Tamim bin Hamad Al Thani í ræðu- stól á alls- herjarþingi Sameinuðu þjóðanna í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VIÐSKIPTI Hagnaður Haga eftir skatta fyrir tímabilið mars til ágúst 2013 var rúmlega 1,9 milljarðar króna, samkvæmt drögum að hálfsársuppgjöri. Fram kemur í tilkynningu til Kauphallar að stjórn Haga hafi farið yfir drögin á fundi í gær. Afkoman er sögð betri en á sama tímabili í fyrra og umfram áætlanir félagsins. Birta á sex mánaða uppgjör Haga 24. október næstkomandi. „Fram- legðarhlutfall, það er álagning félagsins, er óbreytt á milli ára, en ástæður betri afkomu eru veltuaukning, lægra kostnaðar- hlutfall, lægri afskriftir og lægri fjármagnsgjöld,“ segir í tilkynningunni. - óká Drög að uppgjöri birt: Afkoma Haga fram úr vonum HAGAR Í KAUPHÖLL Frá skráningu Haga í Kauphöllina undir árslok 2011. Finnur Árnason, forstjóri Haga, og Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, takast í hendur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SAMFÉLAGSMÁL Hjartaheill og Neistinn biðla til landsmanna um að leggja fé til söfn un arinnar „Styrkjum hjartaþræðina“. Safnað er fyrir nýju hjarta þræð- ingar t æki á hjartadeild Land- spítala. Gestur Þorgeirsson, yfir- læknir á hjartadeild Landspítal- ans, segir aðeins tímaspursmál hvenær elsta tækið sem nú er í notkun gefur sig. „Úti í heimi eru menn að nota þessi tæki í 6-8 ár, en okkur hefur tekist að nýta þetta tæki í sextán ár,“ útskýrir Gestur. Hann segir nauðsynlegt að endurnýja það sem fyrst. Fjölskyldur í landinu hafa fengið valgreiðslu í heima- banka og verða söfnunarnúmer opinberuð í vikunni. - nej Söfnunarátak Hjartaheilla: Safna fyrir tæki á hjartadeild HJARTAÞRÆÐIRNIR Einar Guðmunds- son, grafískur hönnuður, skapaði verkið „Styrkjum hjartaþræðina“ sem tákn söfnunarinnar. Með honum eru starfs- menn Hjartaheilla. MYND/GVA Hún fékk öllum sínum kröfum framgengt. Magnús Hrafn Magnússon héraðsdómslögmaður milljónir erlendra verka- manna vinna í Katar. 1,2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.