Fréttablaðið - 27.09.2013, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 27.09.2013, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 27. september 2013 | SKOÐUN | 15 Hin vinsæla spurninga- keppni framhaldsskól- anna, Gettu betur, hóf göngu sína fyrir 27 árum. Menntaskólinn í Reykja- vík hefur keppt öll árin og unnið átján sinnum, oft- ast allra skóla. Í þessi 27 skipti sem MR hefur tekið þátt hefur aðeins ein stelpa setið í liðinu. Af hverju skyldi það vera? Er það vegna þess að stelpur eru einfaldlega bara heimskari en strákar? Í vor tók ég við embætti inspector scholae, for- manns Skólafélags MR. Hluti af starfi mínu felst í því að sjá um spurningalið MR í Gettu betur. Eitt af því fyrsta sem ég ræddi við þjálfara liðsins var hvernig við gætum hvatt stelpur til að taka þátt í Gettu betur án þess að nota kynja- kvóta. Niðurstaðan var sú, í samráði við rektor MR, að halda forpróf sem lagt yrði í haust fyrir alla nem- endur skólans í kennslu- stund. Mikil áhersla var lögð á að auglýsa prófið vel og á plakatinu stilltum við upp Gettu betur liði með tveimur stelpum og einum strák. Með því vildum við höfða til stelpna og hvetja þær til að taka þátt í prófinu. Áður hafði forprófið verið misvel auglýst og haldið eftir skóla þar sem þeir sem vildu gátu þreytt prófið. Aldrei hefur verið jafn góð þátt- taka í forprófinu og í ár. Þrátt fyrir það skoruðu strákar hæst og voru þar af leiðandi valdir í liðið. Stað- festir þetta að strákar séu einfald- lega klárari en stelpur og að Gettu betur sé bara karlasport? Almennt er ég ekki hrifin af kynjakvóta. Ég myndi til dæmis ekki vilja gegna því embætti sem ég er í af því að ég er stelpa, heldur vegna eigin verðleika. Samt sem áður studdi ég tillögu RÚV um kynjakvóta í Gettu betur, því það þarf að gera eitthvað meira, eitt- hvað róttækara, til þess að hvetja stelpur áfram. Kynjakvótinn er til- raunaverkefni til tveggja ára. Ég trúi því að það sé vel þess virði að prófa hvort hann hafi jákvæð áhrif því það hefur sýnt sig og sannað að um leið og stelpur hafa kvenfyrir- myndir eru mun meiri líkur á því að þær sjái sig sjálfar í því hlut- verki og ýtir það við þeim til að komast þangað. Þetta gæti verið nauðsynleg leið til að stuðla að breytingum. Ekki viljum við vera í sömu sporum eftir önnur 27 ár og velta fyrir okkur áfram þeirri fáránlegu spurningu hvort stelpur séu virki- lega heimskari en strákar. ➜Í þessi 27 skipti sem MR hefur tekið þátt hefur aðeins ein stelpa setið í liðinu. Af hverju skyldi það vera? Fjárhæðaskyn fólks er fyndið. Þar sem fólk skilur lægri tölur betur en hærri þá á það líka auðveldara með að hneykslast á þeim fyrrnefndu. Á að eyða einni milljón? Það eru þriggja mánaða tekjur! Á að eyða milljarði? Það er … öm … bðe … Tökum nýlegar breytingar á Hofsvallagötu sem dæmi. Þar voru málaðir hjólastígar á göt- una. Við hlið þeirra var sett röð af bílastæðum, fánastöngum, fuglabúrum og einhverju svo- leiðis. Allt þetta flipp var í ögn meiri litum en Reykvíkingar eiga að venjast. Sumt af þessu var meira að segja hvorki grátt eins og malbik né dökkgrænt eins og kjarr. Og það varð allt brjálað. Götumyndin þarf að vera grá eða græn. Allt hitt er ógn við full- veldið. Svo kom í ljós hvað þetta kost- aði mikið: 20 milljónir! Algjört bruðl. Hvaða fávita datt þetta í hug? Og svo á að setja annan hjólastíg á Sæmundargötu. Hann mun kosta 90 milljónir! Níutíu milljónir króna! Í raun sýna þessar tölur okkur hve ódýrt það er að koma upp góðu hjólastíganeti. Í þeim til- fellum sem götur eru nægi- lega breiðar dugar bara að mála stíganetið á. Svo þegar reynsla er komin á stíginn má gera upphækkaðar hjólabrautir að dönskum sið. (Væri nú ekki gaman ef hægt væri að mála mis- læg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar fyrir 20 milljónir, til reynslu, og spúla þau síðan af?) „Milljónaútgjöld“ og „milljarðafjárfestingar“? Það er fínt að menn gagnrýni útgjöld. Það er ekkert að því. En það er bara pinku fyndið að þeir sem sjá á eftir hverri krónu í lagningu hjólastígs sem kostar 20-100 milljónir eiga í engum vandræðum með að heimta mörg hundruð sinnum hærri upphæðir í gerð risastórra umferðarmann- virkja fyrir bíla. Það er pinku fyndið. Árið 2007 var áætlaður kostn- aður við að gera mislæg gatna- mót hjá Kringlunni níu millj- arðar og eitthvað hefur nú verið að krauma í verðbólgupottinum síðan. Segjum að þetta myndi kosta 13 milljarða í dag. Sam- kvæmt borginni kostar 130 millj- ónir að fullklára Hofsvallagötuna sem flotta borgargötu. Það mætti því taka í gegn hundrað svona Hofsvallagötur í stað þess að byggja ein gatnamót. Við erum að tala um ein gatna- mót. Stað þar sem ein gata hittir aðra. Truflaðir af litum Ég hjólaði um daginn á Hofsvalla- götunni. Stígarnir gáfu manni pláss og það var enginn sem flautaði til að láta mann vita að maður ætti að vera uppi á gang- stéttinni. Fólk fer ekki út að hjóla í massavís ef það þarf að vera með einhverja yfirlýsingu þegar það gerir það. Fólk vill að sér líði vel. Það er ekki tilviljun að þau lönd í Evrópu þar sem best er að hjóla, Holland og Danmörk, eru með þétt og yfirgripsmikið net hjólastíga. Til að byggja upp slíkt net þarf að láta eitthvað af þeim helmingi borgarlandsins sem fer undir samgöngumannvirki nýtast öðrum en bílum. Og þegar maður er á bíl fer þessi stefna stundum í taugarnar á manni. Margt hefur verið sagt um þessa Hofsvallagötuframkvæmd. Til dæmis að hún dragi úr öryggi því fólk verði utangátta við að horfa á bleikt fuglabúr og klessir frekar á. Það hljómar eins og vís- indaleg tilgáta þótt ég hafi ekkert fundið sem styður hana. Ég veit hins vegar að hjólastígar draga úr slysum í þeim götum þar sem þeir koma, ég veit að lækkandi umferðarhraði dregur úr slysum og ég veit að flest slys af völdum truflunar ökumanna stafa af því að fólk er að skrifa sms eða leika sér í einhverju raftæki. Ekkert virðist benda til að menn truflist við að horfa á bleikt fuglabúr í hvert skipti sem þeir keyra fram hjá því. Kommon, við erum ekki einhverjir kanarífuglar. Sparað til eyða enn meiru? Það er ekkert að því að vilja spara. Í stað þess að leggja hjóla- stíg má vissulega greiða niður skuldir eða lækka skatta. Það er afstaða sem má skilja. En að menn vilji slaufa milljóna hjóla- stígum og byggja í staðinn millj- arða-gatnaslaufur? Það finnst mér svolítið rugl. 20 milljónir! 20 milljónir! Í DAG Pawel Bartoszek stærðfræðingur Í raun sýna þessar tölur okkur hve ódýrt það er að koma upp góðu hjólastíganeti. Eru stelpur heimskari en strákar? JAFNRÉTTI Birna Ketilsdóttir Schram inspector scholae og fulltrúi MR í stýrihópi Gettu betur 2013-2014 Allir á Íslandi sem tengj- ast netinu í gegnum íslenskar netveitur hafa sér að kostnaðarlausu aðgang að fjölbreyttu efni í gegnum áskriftir Lands- aðgangs að rafrænum gagnasöfnum, tímaritum og rafbókum – http://hvar. is/. Meðal efnis er alfræði- ritið Encyclopedia Britan- nica sem er á ensku. Sumir lesendur muna ef til vill eftir prentaðri útgáfu ritsins sem áður fyrr var til á mörgum bókasöfnum. Síð- asta prentaða útgáfa alfræðirits- ins kom út árið 2010 en í dag er Encyclopedia Britannica aðeins gefin út í rafrænu formi. Efni hennar er uppfært daglega og við heimildaöflun, skrif og ritstjórn vinna sérfræðingar og fræða- fólk hver á sínu sviði og þannig er leitast við að tryggja áreiðan- leika efnisins eftir bestu getu. Hægt er að komast í tvær útgáfur ritsins í gegnum áskrift Landsaðgangs, það er fræðilega hlutann (Aca- demic edition) http://www. britannica.com/ sem nýt- ist sérstaklega nem- endum á framhalds- og háskólastigi, og sérstaka skólaútgáfu (School edi- tion) http://school.eb.co. uk/ sem ætluð er nem- endum á grunnskólaaldri. Í skólaútgáfunni er hægt að velja um þrjú þyngdar- stig á texta sem er sniðinn að aldri og lestrarfærni lesend- anna. Báðar útgáfurnar eru að sjálfsögðu opnar og aðgengilegar fyrir allan almenning hvar sem er á Íslandi. Hægt er að skoða fjöldann allan af ljósmyndum og skýringar- myndum, streyma myndefni og þá er lesendum vísað áfram í annað ítarefni á netinu. Allt myndefni í Encyclopedia Britannica má nota í ritgerðir og við verkefnavinnu í skólastarfi. Á undanförnum árum hafa vinsældir alfræði ritsins aukist jafnt og þétt en á síðasta ári sóttu Íslendingar 409.093 greinar í alfræðiritið. Rafræn útgáfa Encyclopedia Britannica er aðlöguð öllum gerðum tölva, hvort sem um er að ræða borðtölvur, fartölvur, spjald- tölvur, lesbretti eða snjallsíma. Einnig er í boði að nota leitar- vél sem sniðin er að snjallsímum og spjaldtölvum og hægt er að sækja á slóðinni http://m.eb.com. Hefur þú leitað í Encyclopedia Britannica í dag? Encyclopedia Britannica í snjallsímann og spjaldtölvuna MENNTUN Birgir Björnsson umsjónarmaður Landsbókasafni ➜ Hægt er að skoða fjöldann allan af ljós- myndum og skýringar- myndum, streyma myndefni og þá er lesendum vísað áfram í annað ítarefni á netinu. Allt myndefni í Encyclopedia Britannica má nota í ritgerðir og við verk- efnavinnu í skólastarfi .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.