Frjáls verslun - 01.02.2005, Blaðsíða 55
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 5 55
úkavirkjunar. M.a. sendi ASÍ greinargerð um málið í ársbyrjun til Árna
Magnússonar félagsmálaráðherra, sem hann kynnti svo á ríkisstjórnar-
fundinum 11. janúar sl.
Upphaflega áttu 10 af 12 ráðuneytisstjórunum að skipa starfshópinn,
en síðar var ákveðið að þeir yrðu allir, þar sem málið var talið snerta
alla stjórnsýsluna. Aðkoma ráðuneytisstjóra sjávarútvegsráðuneytisins
vakti þó talsverða eftirtekt vegna eðlis þess máls sem fjalla á um. All-
mörg dæmi eru þess í seinni tíð að nokkrir ráðuneytisstjórar hafi verið
skipaðir í sömu nefndina. Ráðuneytisstjórarnir munu koma saman eftir
þörfum til að ræða málefni og skipulag Stjórnarráðs Íslands. Fagleg mál
munu þó ekki hafa verið þar á dagskrá.
Útlendingarnir á vinnumarkaðnum Bolli Þór Bollason, ráðuneytisstjóri
forsætisráðuneytisins, er í forsvari fyrir starfshópi ráðuneytisstjóranna.
Hann segir að aðeins hafi verið haldinn einn fundur allra ráðuneytisstjór-
anna og síðan hafi málið verið í áframhaldandi vinnslu hjá viðkomandi
ráðuneytum. Verkefnum hafi ekki verið skipt milli allra ráðuneytisstjór-
anna, heldur hafi nokkrir þeirra farið til baka með hugmyndir og jafnvel
tillögur til úrlausnar eða til frekari skoðunar.
Nokkrir ráðuneytisstjóranna hafi komið með tillögur á fund starfs-
hópsins, en flestir verið með hreint borð. Ráðuneytisstjórar þeirra ráðu-
neyta sem höfðu mál til meðferðar eða úrlausnar hittust svo skömmu
síðar til að bera saman bækur sínar. „Til þessa hafa verið að koma
hingað til lands 5 til 10 verkamenn á einu bretti, en nú eru þeir margfalt
fleiri, og allnokkrir bíða leyfis. Það gefur fullt tilefni til þess að endur-
skoða þessar reglur allar.“
Frá fyrsta fundi starfshóps allra ráðuneytisstjóranna. Bolli Þór Bollason, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, er formaður starfshópsins.
Guðmundur B.
Helgason, land-
búnaðarráðuneyti.
Guðmundur Árna-
son, menntamála-
ráðuneyti.
Ragnhildur
Hjaltadóttir, sam-
gönguráðuneyti.
Vilhjálmur Egils-
son, sjávarútvegs-
ráðuneyti.
Magnús Jóhannes-
son, umhverfis-
ráðuneyti.
Gunnar Snorri
Gunnarsson, utan-
ríkisráðuneyti.
- Á að skoða fleira en stöðu útlendinga á íslenskum vinnu-
markaði?
„Þetta verkefni starfshópsins er að mestu bundið við það,
þ.e. starfsleyfi útlendinga á hérlendum vinnumarkaði sem teygir
sig til ákvæða um starfsréttindi, kröfur af ýmsum toga og heil-
brigðisvottorða. Skattamál koma einnig inn á borð okkar en
segja má að þar sé tiltölulega hreint borð, því skattamálin snúast
um mismunandi túlkun á gildandi reglum. Segja má að það mál
sé í eðlilegum farvegi.
Önnur mál eru meira á „gráu“ svæði, s.s. afstaða til þess
þegar sótt er um atvinnuleyfi fyrir kannski 50 útlendinga á einu
bretti. Það er svo stór „pakki“ að það er á mörkunum að kerfið
ráði við það.
Við þurfum að skoða hvaða lög og reglur gilda, og kannski
skerpa svolítið á túlkun reglnanna, svo að þegar hliðstæð mál
koma upp í framtíðinni sé ekki neinum vafa undirorpið hvaða
eigi að gera, og hvernig. Séu miklir hnökrar á framkvæmdinni
gæti það leitt til þess að það þurfi að breyta lögunum.“
-Er ykkur ráðuneytisstjórunum falið að móta einhverjar til-
lögur til úrbóta?
„Venjan er sú að svona vinnu sé stýrt af forsætisráðuneytinu
en þau mál sem þarf að leysa verða leyst á vettvangi viðkomandi
ráðuneytis. Það koma því ekki neinar tillögur frá þessum hópi
sem heild, nema ef viðkomandi ráðuneyti, t.d. félagsmálaráðu-
neytið, gerir grein fyrir afstöðu sinni og skýrir frá því hvort þörf
sé á að grípa til einhverra aðgerða,“ segir Bolli Þór Bollason.