Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Blaðsíða 17

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Blaðsíða 17
veru fáum við í kveðskap Baldurs í Valhallarþættinum sem hefst á þessum merkingarþrungnu orðum: „Hann er vorden ruglet í rimet...“ (33) Höfuðpersónur leiksins eru eins og fyrr segir þeir Gunnar helmingur og Ögmundur dyttur, sem af orðum Gunnars helmings má ráða að sé ekki nema hálfur maður: „Vert’ ekki að glotta svona, Ögmundr, því þú skalt vita, að ég er ekki kallaðr Gunnarr helmingr fyrir það, að ég sé þorskhelmingr eða þyrsklingshelmingr, heldr af því ég er helmingi meiri en þú, Mundi, sem ekki hefr nema eitt auga og einn fót“ (10). Pör voru einkennandi fyrir hugsunarhátt karnivalsins. Frægasta dæmið úr bókmenntasögunni eru vafalaust þeir Don Kíkóti og Sancho Panza, þar sem mætast þröngsýnn alvarleiki hugsjónamannsins og gleðiríkur efnisleiki átvaglsins (panza - ístra). Var ýmist að pörin voru valin með tilliti til andstæðna, eins og í ofangreindu dæmi, eða líkinda, þá sem eins konar tvífara- eða tvíburaþema.(D/126) Tvímenningarnir í Gandreiðinni eiga vísast rætur að rekja til þessarar hefðar og koma samsemd þeirra og líkindi einna gleggst fram í því að Ögmundur verður ævinlega eins og bergmál af Gunnari þegar „ævistarf* þeirra, Njálu og Tristramssögu, ber á góma. Þetta bergmál er það sem síðast ómar af hans munni er báðir „stíga á stokk“ og heita því að „ganga fýrir ætternisstapa" þegar ávöxtur erfiðisins loksins líti dagsins ljós. Viðbrögð Lúcifers við þessum sjálfsmorðshugleiðingum — „það verður þá varla á morgun" — hljóta að teljast óborganlega kómískur úrdráttur í samhengi leiksins, og veruleikans einnig, því að verk þessara manna þóttu vilja dragast með ólíkindum á langinn. Tvíræðni orða er viðbrugðið í þessum leik eins og þetta dæmi úr fyrsta þætti er til vitnis um: Ögmundr Nú það er pólitíkin —ja ég hef líka sjálfr nokkurs konar pólitískar skrúfur í höfðinu — ég hef nýlega fórnfært Frey skrúf- stykki, sem ég fékk upp á krít hjá Vestrgarði, því Vestrgarði þykir heldr en ekki koma til mín fýrir það, að allar líkur eru til, að ég muni nú bráðum komask upp á að kveða að í sanskrítartungunni og ég síðan muni geta eyðilagt Finn Magnússon, sem ekkert skildi í sanskrít; en Freyr lét mig vita, að Skírnir stæði mér til boða hvenær sem ég vildi til að skrúfa hann á pínubekkinn með mínum póli- tísku skrúfstykkjum. (9) Undir yfirborðsmerkingu textans leynist önnur merking og meinlegri. Ei- ríkur Jónsson var á þessum tíma ritstjóri Skírnis og píningartólin sem sendiboði guðsins er hér beittur, skrúfstykkin, eru vísun í málskrúfur rit- TMM 1994:3 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.