Tímarit Máls og menningar - 01.03.1999, Blaðsíða 110
Davíð Logi Sigurðsson
William Butler Yeats,
skáldið í miðju stormsins
I.
Fyrir jólin 1997 kom út á íslandi fyrra bindi ævisögu Einars Benediktssonar
(1864—1940) eftir sagnfræðinginn Guðjón Friðriksson. Hefur Guðjón þar
valið sér áhugavert viðfangsefni því sannarlega getur ekki talist óeðlilegt að
staldra við „atorkusaman og mistækan snilling“, þegar gluggað er í atburði
aldamótaáranna, sem átti sér „villtar hugsjónir um framtíð lands síns og
þjóðar“, svo vitnað sé í bókarkápu verksins.
Telja verður sennilegt að allar þjóðir eigi sér slík athafhaskáld og atorku-
menn sem láta ekkert hefta sköpunargáfu sína og ævintýraþrá. írska Nóbels-
skáldið William Butler Yeats (1865-1939) á til dæmis margt sameiginlegt
með Einari Benediktssyni, nema hvað áhrif hans og afrek marka að öllum
líkindum enn dýpri spor í sögu mannkyns. Er samanburður þessi ekki algert
nýmæli því sjálfur bendir Guðjón Friðriksson á það í bók sinni að skáldun-
um tveimur svipi í mörgu saman.1 Dreifði Yeats, líkt og Einar, kröftum sín-
um víða, rak leikhús, stundaði blaðamennsku og lét sig stjórnmál líðandi
stundar miklu varða. Báðir voru þeir og miklir þjóðernissinnar en með ólík-
um formerkjum þó. Skal hér á eftir gerð nokkur grein fyrir áhrifum og af-
skiptum Yeats á mótun írskrar þjóðerniskenndar um aldamótin síðustu og
hvernig tvær grímur runnu um síðir á skáldið vegna þeirra afla sem leyst
voru úr læðingi með baráttu hans og annarra fyrir endurreisn írskrar menn-
ingar.
Um svipað leyti og fyrsta bindi Einars sögu Benediktssonar kom fyrir
sjónir íslenskra lesenda var gefið út á Bretlandi fyrsta bindi „opinberrar“
ævisögu W.B. Yeats, skráð af manni sem ekki nýtur minni virðingar í heima-
landi sínu en Guðjón Friðriksson. Vissulega hefur margt verið rætt og ritað
um þetta merka skáld og er jafnvel heilt tímarit, Yeats Review, helgað ævi
hans og list. Hins vegar má segja að hin svonefndu ,Yeats-fræði‘ hafi blómstr-
að sem aldrei fyrr á árinu 1997; kom út annað bindi bréfasafnsins The
100
www.mm.is
TMM 1999:1