Vesturbæjarblaðið - 01.09.2008, Blaðsíða 11

Vesturbæjarblaðið - 01.09.2008, Blaðsíða 11
11VesturbæjarblaðiðSEPTEMBER 2008 Öllum börnum í Nessókn er hér með boðið á leiksýningu í Nes- kirkju þar sem Stoppleikhópur- inn sýnir verkið Ósýnilegi vinur- inn eftir barnabókahöfundinn Kari Vinje. Leikritið segir frá Jón- atan Finkeltopp og Pálu Pimpen en þau kynnast einn daginn og verða vinir. En þó að þau séu vinir eiga þau eftir að læra ýmis- legt, t.d. að kunna að fyrirgefa og sættast. En síðast en ekki síst kynnast þau Ósýnilega vinin- um. Leikarar: Eggert Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir. Sýningin verðu í Neskirkju laugardaginn 25. október kl. 15 og eru öll börn velkomin meðan húsrúm leyfir. Sunnudagaskólinn Sunnudagaskólinn er á hverjum sunnudegi milli klukkan 11 og 12 eða á sama tíma og messur saf- naðarins. Sunnudagskólinn byr- jar upp í kirkju en síðan er farið niður í safnaðarheimili þar sem meðal annars er sungið, sagðar sögur og farið í leiki. Brúður koma einnig í heimsókn. Börnin fá límmiða á hverjum sunnudegi og bók til að líma miðana í. Umsjón með starfinu hafa þau Sigurvin Jónsson, María Gunnlaugsdótt- ir, Andrea Ösp Andradóttir, Ari Agnarsson og Alexandra Diljá Arnardóttir. 6 ára starf Starf fyrir börn í 1. bekk Melas- kóla er í safnaðarheimili Neskirkju á mánudögum kl. 13.40-14.40. Börnin eru sótt í skólann og gengið með þau yfir í safnaðar- heimili kirkjunnar, þar sem sögð er saga, haldin bænastund og farið í ýmsa skemmtilega leiki. Umsjón með starfinu hefur Sunna Dóra Möller guðfræðingur. Starf fyrir börn í 1. bekk Grandaskóla er í skólanum á mánudögum kl. 14:20-15:00. Starfið er í höndum Sigurvins. 7 ára starf Starf fyrir börn í 2. bekk Melaskóla er í safnaðarheimili Neskirkju á miðvikudögum kl. 14.30-15.30. Börnin eru sótt í skólann og gengið með þau yfir í safnaðarheimili kirkjunnar, þar sem sögð er saga, haldin bænas- tund og farið í ýmsa skemmtilega leiki. Umsjón með starfinu hafa Sigurvin og Sunna Dóra . Starf fyrir börn í 2. bekk Grandaskóla er í skólanum á þriðjudögum kl. 14:30-15:10. Starfið er í höndum Sigurvins. 8 og 9 ára starf Starf fyrir börn í 3.-4. bekk nefn- ist krakkaklúbbur og er á fimmtu- dögum kl. 14.30-15.30. Börnin koma sjálf yfir í safnaðarheimi- li kirkjunnar þar sem farið er í leiki, unnar stuttmyndir og ýmis verkefni og fræðst um kristna trú. Starfið er í höndum Sigurvins og Sunnu Dóru auk unglingaleiðtoga. 10 til 12 ára starf Tíu til tólf ára börn (5. – 7. bekkur) eru boðin velkomin í TTT sem er haldið á mánudögum kl. 15.00-16.00 Á fundum er margt gert til gamans, farið er í leiki, spilað, föndrað, farið í sund, hal- dnir kósífundir með poppi og videó, gestir koma í heimsókn og margt fleira. Umsjón með starfinu hafa Sigurvin og Sunna Dóra. Fönix - Unglingastarf í Neskirkju Unglingaklúbbur Neskirkju heldur fundi á þriðjudögum milli 19.30 og 21.30 og eru allir unglin- gar í 8.-10 bekk velkomnir. Um- sjón með starfinu hafa Sigurvin og Sunna Dóra en um fundina sjá Andrea Ösp Andradóttir (17 ára) og Guðjón Andri Reynisson (18 ára). Starfið hefst þriðjudaginn 9. september og verður dagskráin kynnt von bráðar. Barnastarf Neskirkju haustið 2008 Neskirkja býður börnum á leiksýningu! Opnu húsin fyrir eldri borg- ara í Neskirkju eru raunverulega öllum opin, líka þeim sem eru undir sextugt! Metnaðarfull dag- skrá, umræður, kaffi, helgistund og gott samfélag. Hikið ekki við að taka með ykkur vini og kunningja. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15.00. Umsjón með starfinu hefur Hjörtur Pálsson guðfræðingur og skáld. Þetta er dagskráin á næst- unni: 1. október: Hörður Áskelsson söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar fjallar um sálmasönginn í kirk- junni. 8. október: Vilborg Dagb- jartsdóttir skáld les úr verkum sínum, segir frá tilurð þeirra og minnir á gildi þess að varðveita norrænan goðsagnaarf. 15. október: Sr. Örn Bárður Jóns- son: Bókin og bækurnar: Hvað les ég? 22. október: Haukur Ingi Jónas- son guðfræðingur og sálgreinir fjallar um íslenska þjóðarsál og ímyndunaraflið. 29. október: Sjóminjasafn Reykja- víkur á Grandagarði heimsótt og litast þar um með leiðsögn. 5. nóvember: Sr. Guðbjörg Jóhan- nesdóttir ræðir um tengsl sát- tamiðlunar og kirkjustarfs. 12. nóvember: Davíð Þór Jóns- son guðfræðinemi spjallar um sig og trúna. 1 9 . n ó v e m b e r : S t e i n u n n Arnþrúður Björnsdóttir verk- efnisstjóri samkirkjumála á Biskupsstofu segir frá samstarfi Þjóðkirkjunnar og annarra kirkna í heiminum. 26. nóvember: Sr. Sigurður Árni Þórðarson. Framtíðarfræðin og Guð: Prestur spáir í möguleika og þróun kirkju og trúar! 3. desember: Sigríður Jóhanns- dóttir veflistakona flytur fyrirles- tur um kirkjuskrúða Leifs Breiðfjörð og Sigríðar Jóhanns- dóttur: „Nýtt byggt á því sem fyrir er“- og sýnir myndir til skýringar. 10. desember: Hjörtur Pálsson skáld og guðfræðingur fjallar um þögnina og kyrrðina. Miðvikudagar – verið velkomin Steinunn Þórarinsdóttir er einn merkasti skúlptúristi Íslendinga. Hún hefur gert margar stórkost- legar myndir. Ein þeirra er í Kópavogskirkju, tveir skúlptúrar í miðbænum, einn við Sandgerði og einn við grásleppuskúrana í Grímsstaðavörinni. Líkneskjan við Kristskirkju er að verðleikum í miklu uppáhaldi margra. Verk Steinunnar eiga sér djúprök, sem snerta og vekja. Á vegum S jón l i s taráðs Neskirkju, SJÓN, og sóknar- nefndar Neskirkju setur Steinunn upp sýningu í og við Neskirkju í lok september. Við aðalinn- gang verður málmfólk að koma til kirkju og nærri dyrum verður biðjandi vera. Inni í safnaðarhei- milinu verða lágmyndir og íhugu- narverk. Á bekk á Torginu munu tvær málmverur sitja. Hvernig á að túlka þessar myndir verður verkefni þeirra sem sækja kirkju í vetur, því sýning Steinunnar stendur til föstuloka 2009. Þetta er merkileg sýning merki- legs listamanns. Dr. Pétur Péturs- son prófessor opnar sýninguna sunnudaginn 28. September kl. 12.30 þ.e. eftir messu. Þá mun Pétur stjórna íhugun á verkum Steinunnar mánudaginn 29. september kl. 12.30 á Torginu. Pamela de Sensi leikur á flautu. Allir velkomnir. Málmur, gifs, fólk og Andinn

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.