Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Blaðsíða 22
Sandkorn S nemma árs 2006 valsaði Jón Ólafsson athafnamaður inn í Sparisjóðinn í Keflavík og bað um lán til Tortóla-félags- ins Jervistone Limited upp á 500 milljónir króna. Tortóla-félag- ið ætlaði að nota lánið til að kaupa ótilgreind hlutabréf skráð í Bretlandi og átti veðið fyrir láninu að vera í þessum hlutabréfum. Sparisjóður- inn tók vel í beiðni Jóns og endaði á því að lána Tortóla-félaginu tæplega 250 milljónir króna í breskum pund- um. Eina haldbæra veðið fyrir láninu til Jervistone var sjálfskuldarábyrgð sem Jón Ólafsson, „fjárfestingarráð- gjafi“ félagsins samkvæmt gögnum sparisjóðsins, gekkst í með semingi á endanum. Lánið til Jervistone gjald- féll árið 2007 án þess að Jón greiddi það upp. Eftir stendur skuld upp á rúmlega 400 milljónir. Landsbankinn, sem tók yfir stórlega ofmetið eigna- safn Sparisjóðsins í Keflavík í fyrra, rekur nú tvö dómsmál gegn Jervis- tone og Jóni Ólafssyni þar sem reynt er að sækja þessa peninga til þeirra. Þessi saga af Jóni Ólafssyni er dæmigerð fyrir rekstur Sparisjóðsins í Keflavík fyrir hrunið. Margir af við- skiptavinum sparisjóðsins, stjórn- endur hans og starfsmenn gengu um hann eins og þeir ættu hann. Hefð- bundnar reglur og viðmið í banka- starfsemi voru þverbrotin um margra ára skeið: ábyrgðir og tryggingar fyrir himinháum lánum voru takmarkað- ar eða jafnvel engar og stjórnendur sjóðsins hygluðu ættingjum og vildar- vinum sjóðsins. Með fáránlegri dæm- um er frásögnin af þjónustufulltrú- anum á landsbyggðinni sem fékk 200 milljóna króna lán sem nú hefur verið afskrifað og 750 milljóna króna afskrift á lánum til sonar sparisjóðsstjórans, Geirmundar Kristinssonar, áður en ríkið tók rekstur hans yfir eftir hrun. Þegar Landsbankinn tók eignir sjóðsins yfir í fyrra kom fljótlega í ljós hversu ofmetnar þær höfðu verið við yfirfærsluna. Eitt dæmi er félög í eigu athafnamannsins Páls Harðarson- ar, meðal annars Nesbyggð ehf., sem skuldaði sjóðnum um 1.600 milljónir króna. Bráðabirgðastjórn Sparisjóðs- ins í Keflavík, sem tók við stjórnar- taumum hans eftir yfirtöku ríkisins, hafði metið það svo að færa þyrfti þessi lán niður um 1.400 milljón- ir króna því ólíklegt væri að meira fengist upp í þau en 200 milljónir hið mesta. Samt voru þessi lán færð yfir í Landsbankann sem 1.600 milljóna króna eign. Lánin til Páls eru hins vegar glötuð, líkt og fyrir lá. Þetta er aðeins eitt dæmi úr eignasafninu. „Allsherjar óreiða“ blasti því við í sparisjóðnum, eins og einn heim- ildarmaður DV orðar það, þegar utanaðkomandi aðilar fóru að skoða starfsemi hans eftir yfirtöku ríkisins. Fram að því höfðu stjórnendur sjóðs- ins látið reka á reiðanum því þeir vissu væntanlega hversu staða hans var slæm og að gjaldþrot hans væri handan hornsins: Ekki var gengið á eftir viðskiptavinum og útlánum sem voru í vanskilum, lán sem hefði átt að færa niður voru látin óhreyfð í bók- haldinu til að rýra ekki eignasafnið, vepðköll voru engin og stjórnendurn- ir krossuðu fingur og lokuðu augum. Litli, þægilegi og kósí sparisjóðurinn í Keflavík, sem hafði hugsað svo vel um viðskiptavini sína og var með meira en 60 prósenta markaðshlutdeild á Suðurnesjum, lenti loks í dags- ljósinu harða og þeir sem urðu vitni að því sem fyrir augu bar klóruðu sér hvumsa í höfðinu. Tapið af þessari „allsherjar óreiðu“ í Keflavík lendir svo loks á ríkinu, á skattgreiðendum, samtals 26 milljarðar króna. Saga Sparisjóðsins í Keflavík er eins og smækkuð mynd, örútgáfan, af Íslandssögunni á árunum 2003 til 2008. Öll fjármálafyrirtæki landsins töpuðu jarðtengingunni fyrir hrunið, með tilheyrandi þátttöku margra landsmanna í óráðsíunni og viðeig- andi timburmönnum eftir skellinn. Í rekstrarsögu allra bankanna má finna galnar viðskiptasögur um spillingu og sjálfshygli stjórnendanna. En Spari- sjóðurinn í Keflavík stendur einhvern veginn upp úr í þessari umræðu eftir því sem fyllri upplýsingar um hann koma fram. Smæð samfélagsins í Keflavík – „Þar sem allir þekkja alla“ – og nánu tengslin á milli stjórnenda spari- sjóðsins og stjórnenda bæjarfélags- ins sjálfs – sem stundum voru sömu mennirnir – bjuggu til þær aðstæður þar sem þetta sérstaka, spillta fjár- málafyrirtæki blómstraði, hnignaði, grasseraði og loks hrundi. Bók um íslenska hrunið gæti hafist á harm- leiknum um Sparisjóðinn í Keflavík, rétt eins og rit og myndir um alþjóð- legu efnahagskrísuna 2008 hefjast á dæmisögunni um Litla-Ísland. Fámenn klíka stjórnaði Keflavík og sparisjóðnum, pólitíska valdið og peningavaldið var á sömu höndum; aðalleikendurnir voru fáir og sögu- sviðið svo lítið og einfalt. Innvenslin í litlu samfélagi á landsbyggðinni, kunningja- og klíkuveldið, pólitíska spillingin og það landlæga eftirlits- leysi sem einkenndi fjármálamark- aðinn hér á landi gerði Sparisjóðn- um í Keflavík kleift að verða það sem hann varð. Enginn fylgdist almenni- lega með því sem gerðist í Keflavík. Þar réðu héraðshöfðingjar ríkjum og fóru sínu fram. Ríkið hefði líklega átt að taka sparisjóðinn yfir um leið og viðskiptabankana þrjá haustið 2008, kannski fyrr, enda var rekstur hans mögulega sá galnasti í landinu. Kostuð illmælgi n Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra er þekktur fyrir að svara af krafti fyrir sig. Á dögunum var dylgj- að um eign hans í Hrað- frystihúsi Þórshafnar í Staksteinum Moggans. Steingrím- ur svarar í aðsendri grein í Mogganum þar sem hann veltir Davíð Oddssyni ritstjóra upp úr tjöru og fiðri fyrir illmælgina segir hann hlut sinn í frysti- húsinu hafa verið lítinn og þá sérstaklega í samanburði við risatap Moggans sem greitt er af sjávarútvegsfyrir- tækjum. Styðja þann brottrekna n Brottrekstur Ásmundar Friðrikssonar úr stóli bæj- arstjóra í Garði vakti mikla athygli í vor og kom sem þruma úr heiðskýru lofti. Sjálfstæðisflokkurinn er með hreinan meirihluta í bænum en einn fulltrúa flokksins vippaði sér yfir til minnihlutans. Nú hefur verið gerð skoðanakönnun meðal bæjarbúa sem sýnir að Sjálfstæðisflokkurinn er með yfir 60 prósenta fylgi. Þá vill tæplega helmingur aðspurðra fá Ásmund aftur. „Rammruglaður“ forseti n Hallgrímur Helgason rit- höfundur er einstaklega meðvitaður þegar kemur að pólitík. Hann var einn helsti and- ófsmaður- inn á valda- tíma Davíðs Oddssonar og sætti ógnun- um fyrir vikið eins og bláa höndin vísar til. Þá barði Hallgrímur bíl Geirs Haarde, þáverandi forsætisráðherra, að utan þegar búsáhalda- byltingin stóð sem hæst. Nú beinir skáldið spjótum sín- um að Ólafi Ragnari Gríms- syni, forseta Íslands. „Hann er orðinn rammruglaður af langri setu á Bessastað og illa haldinn af messíasar- komplexum,“ segir Hall- grímur á Facebook. Bjarni í faðm AMX n Miklar líkur eru á því að Bjarni Benediktsson, formað- ur Sjálfstæðisflokksins, verði forsætisráðherra næstu rík- isstjórnar ef miðað er við fylgi í skoð- anakönnun- um. Bjarni hefur víð- tæka reynslu úr viðskipta- lífinu þar sem hann hef- ur lent í miklum og eflaust lærdómsríkum ógöngum. Sú reynsla mun eflaust nýt- ast honum í stjórnarráð- inu. Eitt helsta bakland for- mannsins í dag er að finna á vefnum amx.is sem mærir hann í hæstu hæðir. „Sterk- ur Bjarni“ er einkunn sem hann fékk í vikunni. Já, gerum étta! … auðvitað ekki kominn í lag. Bubbi Morthens talaði fyrir rafbílum á ársfundi OR. – DV Sóley Tómasdóttir um rekstur Orkuveitunnar. – DV „Allsherjar óreiða“ Leiðari Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Kjallari Þorvaldur Gylfason Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) og Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri: Stefán T. Sigurðsson (sts@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Hönnunarstjóri: Jón Ingi Stefánsson (joningi@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: DV.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 22 15.–17. júní 2012 Helgarblað „Litli, þægilegi og kósí sparisjóður- inn í Keflavík lenti loks í dagsljósinu. Hnípin Evrópa M enn greinir á um efnahags- vandann í Evrópu og einnig í Bandaríkjunum. Sumir telja, að hagfræðin hafi brugðist sem fræðigrein og leiðarvís- ir. Ég er á öðru máli, þótt ríkjandi hag- fræði þarfnist ýmislegra endurbóta. Ég tel ágreininginn um efnahagsvandann snúast um stjórnmál, ekki hagfræði. Hér eru rökin. Sagan gleymdist Byrjum vestan hafs. Roosevelt Banda- ríkjaforseti og Bandaríkjaþing brugð- ust að því leyti skynsamlega við krepp- unni miklu 1929–39, að ný lög voru sett til að koma böndum á banka, banna þeim að braska með innstæður spari- fjáreigenda og innleiða jafnframt inn- stæðutryggingar. Hugsunin, sem bjó að baki lagasetningunni, snerist öðr- um þræði um neytendavernd. Nauðsyn bar til að draga úr áhættusækni bank- anna og vernda viðskiptavini þeirra fyr- ir eðlislægri áhættu í rekstri banka, sem ráðstafa innlánum sparifjáreigenda til skamms tíma til lánveitinga til langs tíma. Þessi löggjöf tókst svo vel, að allt var að heita má með kyrrum kjörum í bandarísku efnahagslífi í meira en hálfa öld. Eftir það fóru fjármálakreppur aftur að gera vart við sig. Árið 2007 upphófst vestan hafs kreppa, sem náði hámarki með þroti Lehman Brothers-bankans í september 2008 og enn sér ekki fyrir endann á. Þetta var langstærsta gjald- þrot í Bandaríkjunum fyrr og síðar, og verður lengi deilt um, hvort bandarísk stjórnvöld hafi gert rétt í að láta und- ir höfuð leggjast að afstýra þrotinu, sem þrengdi til muna aðgang banka að lausafé vegna þverrandi trausts milli fjármálastofnana. Hver var undirrót kreppunnar 2007? Nærtækasta svarið er, að sagan gleymd- ist. Bandaríkjaþing afnam kreppulög- in frá fjórða áratugnum í áföngum eftir 1980. Bönkunum var aftur heimilt skv. lögum að braska með innstæður spari- fjáreigenda, án þess að hróflað væri við innstæðutryggingum. Af þessu leiddi óhóf í bönkunum, glórulausar lán- veitingar án tryggra veða og alls kyns brask. Bankamenn töldu sig ekki hafa neitt að óttast, þar eð ríkið stóð á bak við bankana gegnum innstæðutrygginga- kerfið. Auk þess töldu sumir bankarn- ir sig vera stærri en svo, að hægt væri að láta þá komast í þrot. Margir telja, að bankarnir hafi beinlínis verið rændir innan frá. Kannast nokkur við það? Við þetta bætist, að Bandaríkjastjórn og öðrum lærðist eftir kreppuna 1929– 39 að stíga ýmist á bensíngjöfina eða bremsuna til að draga úr öldugangi í efnahagslífinu. Ekki síst þess vegna hafa hagsveiflur verið miklu mildari eft- ir að kreppunni miklu lauk. Breski hag- fræðingurinn John Maynard Keynes birti 1936 lykilverk, sem lagði grunninn að þjóðhagfræði nútímans. Hann leiddi mönnum fyrir sjónir, að hægt er að koma í veg fyrir kreppu með því að örva efnahagslífið ýmist með peninga- prentun, auknum útgjöldum ríkissjóðs eða lækkun skatta. Þessum þekktu ráð- um beitti Bandaríkjastjórn eftir fall Lehman Brothers og kom með því móti í veg fyrir nýja heimskreppu. Seðla- banki Bandaríkjanna hefur t.d. lækkað vexti niður í næstum ekki neitt og kemst ekki neðar. Sumir telja, að ríkisútgjöld hafi ekki verið aukin nóg, og þannig standi á, að efnahagslífið hefur ekki rétt úr kútnum. Pólitísk andstaða við laga- hömlur gegn bankabraski var kveikjan að bankakreppunni í Bandaríkjunum 2007. Pólitísk andstaða gegn auknum útgjöldum ríkisins jafnvel í kreppu hef- ur orðið til þess, að batinn hefur verið hægari en hann þurfti að vera. Vandinn er því pólitískur frá mínum bæjardyrum séð, ekki efnahagslegur. Brettum upp ermar Vandi Evrópu nú er flóknari en vandi Bandaríkjanna. Ísland, Írland og Spánn komust í kröggur vegna þess, að bank- arnir slepptu fram af sér beizlinu með leyfi og sumpart beinlínis fyrir tilstilli stjórnvalda. Grikkland komst í krögg- ur af annarri ástæðu. Gríska ríkið stofn- aði til skulda, sem það ræður ekki við að velta á undan sér, hvað þá endurgreiða. Vandi landanna fjögurra á það sam- merkt, að erlendir bankar lánuðu Grikk- landi of fjár að því er virðist í trausti þess, að ESB stæði að baki Grikklands og er- lendir bankar lánuðu íslenskum (og einnig írskum og spænskum) bönkum með líku lagi of fjár e.t.v. að einhverju leyti í þeirri trú, að ríkið (eða ríkið og ESB) stæði að baki bönkunum. Hvort tveggja reyndist vera tálsýn. Sú stað- reynd, að Grikkland, Írland og Spánn eru evrulönd og Ísland ekki er auka- atriði í þessu viðfangi. Hvorki íslensk- ir bankar né gríska ríkið gátu staðið skil á skuldum sínum, en írskir og spænsk- ir bankar reyna með erfiðismunum að standa í skilum með hjálp tilneyddra skattgreiðenda, ESB og annarra. Vandi evrulandanna þriggja er ekki þeim einum að kenna. Evrulöndin í heild, einkum Þýskaland og Frakk- land, bera hluta ábyrgðarinnar og auð- vitað bankarnir í ljósi fífldjarfrar fram- göngu þeirra. Þjóðverjum og Frökkum bar að hafa forustu um nánara samstarf í ríkisfjármálum til að tryggja, að einstök evruríki eins og Grikkland gætu ekki gengið of langt á kostnað annarra. Þeim bar einnig að tryggja nánara samstarf í bankamálum til að tryggja, að bankar í einstökum evruríkjum eins og Írlandi og Spáni gætu ekki gengið of langt. Hvort tveggja brást. Nú ríður á, að evrulöndin komi sér saman um innviði, þar á meðal samevrópskt fjármálaeftirlit, til að draga úr líkum þess, að sorgarsaga síðustu missera endurtaki sig. En það er ekki nóg. Bráðavandinn kallar einnig á brýna lausn. Þar verða Þjóðverjar og Frakkar ásamt öðrum að axla ábyrgð og ganga fram fyrir skjöldu, þótt á brattann sé að sækja. Radek Sikorski utanríkisráðherra Póllands orðaði þessa hugun skýrt í Berlín fyrir nokkru. Hann sagði: „Ég ótt- ast vald Þjóðverja minna en ég óttast að- gerðarleysi þeirra.“ Evrópa þarf að bretta upp ermarnar. „Vandi Evrópu nú er flóknari en vandi Bandaríkjanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.