Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Blaðsíða 47
Lokkaprúðir Leikmenn em
Sport 47Helgarblað 15.–17. júní 2012
Redknapp rekinn
n Stjórn Tottenham vildi breytingar
H
arry Redknapp var
óvænt rekinn sem
knattspyrnustjóri
Tottenham aðfaranótt
fimmtudags eftir fjögur ár í
starfi. Hann hefur látið hafa
eftir sér eftir brottreksturinn
að hann hafi aðeins verið um
tveimur tímabilum frá Eng-
landsmeistaratitli og að það
hefði ekki skipt máli þó hann
hefði náð Meistaradeildarsæti
á nýliðnu tímabili. Hann hefði
samt verið rekinn.
Fyrst fregnir af málinu í
enska stórblaðinu The Guardi-
an á fimmtudag benda til þess
að allt megi þetta rekja til samn-
ingaviðræðna Redknapps og
stjórnarformanns Tottenham,
Daniel Levy. Redknapp átti
eitt ár eftir af samningi sínum
og vildi víst verðlaun fyrir góð-
an árangur með lengri samn-
ing en Levy var reiðubúinn að
bjóða honum. Þar strandaði
víst málið svo upp úr sauð, þó
Redknapp haldi öðru fram.
„Við enduðum í fjórða sæti
og vorum óheppnir mjög, en
ég held að sama útkoma hefði
orðið að veruleika hvort sem
er,“ sagði Redknapp í viðtali
hjá BBC Radio Five Live. „Þetta
eru alltaf vonbrigði en svona
er boltinn. Fólkið sem stjórn-
ar fótboltafélögunum verður
að taka ákvarðanirnar sem það
telur réttar og þetta er þeirra
ákvörðun.“
Redknapp segist hafa átt
frábær ár hjá félaginu, það hafi
viljað fara aðrar leiðir varð-
andi stjórastöðuna, og þakk-
aði hann stuðningsmönnum
fyrir samfylgdina.
Þegar orðrómur um samn-
ingavandræðin voru borin
undir Redknapp sagði hann.
„Þetta hafði ekkert með samn-
ingamál að gera. Ég átti ár eftir
og það var í góðu. Þetta snérist
um að forráðamenn félagsins
ákváðu að þeir vildu breyta til.
Þeir eiga klúbbinn og geta gert
það sem þeir vilja.“
Gamlir og góðir:
Abel Xavier Portúgalski bak-
vörðurinn lét alltaf taka eftir sér.
Aflitaði kollurinn og skeggið í stíl
varð að einkennismerki hans.
Bobby Charlton Enski
miðjumaðurinn var með einhverja
grimmustu skallayfirgreiðslu
sögunnar! Alveg dýrslegur í
afneitun á árum áður.
Djibril Cissé Franski sóknarmað-
urinn hefur aldrei verið sérstaklega
eðlilegur í útliti. Hanakamburinn,
húðflúrin og skeggið, svona á að
gera þetta. Vantar meira svona í
franska liðið í dag.
Roberto Baggio Hjartaknúsar-
inn og ítalska hönkið átti sér
einkennismerki. Stutt að framan,
síðar slöngur að aftan.
Rudi Völler Þýski snillingurinn
státaði ekki aðeins af dýrslegri
mottu heldur einu svakalegasta
krullusíttaðaftan sem sögur fara af.
Ruud Gullit Slöngulokkarnir hjá
hollenska meistaranum. Það þarf
ekkert að segja meira.
Mario
Balotelli
Er galdramaður með hárið á sér. Án þess að
vera nánast með nokkuð hár á höfðinu, en
samt alltaf með nýjan stíl í hverjum leik. Aflit-
aði hanakamburinn er lúkkið hans í sumar.
Petr Cech
Eini maðurinn með höfuðfat á vellinum, af
illri nauðsyn reyndar, en þarf ekkert að spá í
greiðsluna á meðan.
Fabio Coentrao
Hann og Phil Neville eru meðal fárra sem enn eru haldnir þeirri rang-
hugmynd að strípurnar séu enn heitar. Fabio er með vel ísaða lokka.
Mario
Gomez
Fagmaður fyrir framan markið
og fyrir framan spegilinn með
greiðuna. Svona á að smyrja á sér
lokkana gott fólk. Til fyrirmyndar.
Miguel
Veloso
Örlítið strípaðir endar og gott
ef hann býður ekki upp á smá
blástur til að ná þessu lúkki.
Miðjumaðurinn hugsar fyrst
og fremst um hárið.
Rekinn Svo virðist sem
Tottenham-stjórnin hafi
bara viljað skipta um stjóra.
Úrslit
EM í knattspyrnu
Riðill C
Ítalía - Króatía 1-1
1-0 Andrea Pirlo (39.) 1-1 Mario Mandžukic
(72.)
Spánn- Írland 4-0
1-0Fernando Torres (4.) 2-0 David Silva
(49.) 2-0 Fernando Torres (70.) 3-0 Cesc
Fàbregas (83.)
Staðan L U J T Skor Stig
1.Spánn 2 1 1 0 5:1 4
2.Króatía 2 1 1 0 4:2 4
3.Ítalía 2 0 2 0 2:2 2
4.Írland 2 0 0 2 1:7 0
Riðill A
Staðan L U J T Skor Stig
1.Rússland 2 1 1 0 5:2 4
2.Tékkland 2 1 0 1 3:5 3
3.Pólland 2 0 2 0 2:2 2
4.Grikkland 2 0 1 1 2:3 1
Riðill B
Staðan L U J T Skor Stig
1.Þýskaland 2 2 0 0 3-1 6
2.Portúgal 2 1 0 1 3-3 3
3.Danmörk 2 1 0 1 3-3 3
4.Holland 2 0 0 2 1- 3 0
Riðill D
Staðan L U J T Skor Stig
1.Úkraína 1 1 0 0 2:1 3
2.England 1 0 1 0 1:1 1
3.Frakkland 1 0 1 0 1:1 1
4.Svíþjóð 1 0 0 1 1:2 0
Leikir helgarinnar
15. júní
16:00 Svíþjóð -England
18:45 Úkraína - Frakkland
16. júní
18:45 Tékkland - Pólland
18:45 Grikkland- Rússland
17. júní
18:45 Portúgal - Holland
18:45 Danmörk - Þýskaland
Björn í Úlfana
Lilleström er búið að selja
Björn Bergmann Sigurðar-
son til enska liðsins Wolves.
Það staðfesti umboðsmað-
ur hans, Jerry de Koning, við
norska fjölmiðla á fimmtu-
dag. Björn mun skrifa und-
ir fjögurra ára samning við
Úlfana. Þessi tíðindi koma
á óvart í ljósi þess að Björn
sagði á Twitter fyrr sama dag
að hann fengi ekki að fara frá
Noregi. Lilleström ætlaði að
þvinga hann til þess að vera
þar áfram. „Ég er andlega
niðurbrotinn,“ sagði hann
meðal annars. Úlfarnir, sem
leika í úrvalsdeild greiða 473
milljónir króna fyrir Björn
sem gerir hann að einum
dýrasta leikmanni Íslands-
sögunnar.
Fylkir
lagði Fram
Fylkir sigraði Fram með einu
marki gegn engu á fimmtu-
daginn í upphafi 7. umferð-
ar Pepsi-deildarinnar. Það
var Davíð Ásbjörnsson sem
skoraði markið sem kom úr
aukaspyrnu, og fór í gegn-
um óþéttan varnarvegg
Fram, breytti um stefnu og í
markið. Bæði lið voru með
sex stig fyrir leikinn. Fylkir
komst upp í sjötta sæti með
sigrinum en Fram er sem
fyrr í tíunda sæti.