Lögmannablaðið - 01.03.2014, Page 7
lögMannaBlaðið tBl 01/14 7
Af VettVAnGi félAGsins
skipting (%) kvenna í lMFí eftir því hvar þær starfa.
grafið sýnir kynjahlutfall í lMFí á tímabilinu 2004-2014.
skipting (%) karla í lMFí eftir því hvar þeir starfa.
Af félagsmönnum í lögmanna
félaginu eru 311 konur. Þar af er 41
hæstaréttarlögmaður. Sjálfstætt starfandi
konur í lögmannsstétt eru 90 talsins og
93 starfa sem fulltrúar sjálfstætt starfandi
lögmanna. Hjá ýmsum fyrirtækjum
og stofnunum starfa 126 konur sem
innanhússlögmenn, þar af 38 hjá ríki
eða sveitarfélögum og 88 hjá fyrirtækjum
og félagasamtökum. Þá eru tvær konur
hættar störfum.
Konum hefur fjölgað jafn og þétt
undanfarin ár og er hlutfall þeirra af
heildarfjölda félagsmanna komið í 30%,
samaborið við 22% árið 2004.
Af félagsmönnum eru 725 karlar,
þar af er 267 hæstaréttarlögmenn. Af
þessum 725 körlum eru 383 sjálfstætt
starfandi og 140 félagsmenn starfa
sem fulltrúar sjálfstætt starfandi
lögmanna. Sem innanhússlögmenn
hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum
starfa 160 karlar, þar af 45 hjá ríki eða
sveitarfélögum og 115 hjá fyrirtækjum
eða félagasamtökum. Þá eru 42 karlar
hættir störfum.