Lögmannablaðið - 01.03.2014, Blaðsíða 17
lögMannaBlaðið tBl 01/14 17
UMfJöllUn
orlofs foreldra eftir kyni. Það segir sig
sjálft að auðvitað þarf heilmikið átak
til að koma sér aftur í gírinn eftir langt
orlof. Það gæti verið eitthvað brottfall
kvenna úr lögmennsku um eða eftir
þennan tímapunkt. Hér mætti kannski
gera betur og styðja við.
Lára: Stétt lögmanna er upprunalega
karlastétt og fyrirmyndir skipta máli.
Þegar fólk er að leita að lögmanni þá
kemur oftast upp í huga þess maður í
gráu jakkafötum með gult bindi. Það
er ekki kona.
Auður: lögmannsstofan okkar sérhæfir
sig í þjónustu við fyrirtæki og fjármála
fyrirtæki. Á þeim markaði eru ekki
margar konur og við erum svolítið eins
og hvítir hrafnar.
Lára: Ég ætlaði aldrei að fara vinna í
fjölskyldumálum en hef verið mikið
í þeim. mörg þessara mála eru miklu
erfiðari en nokkur önnur mál sem ég
fæst við. Þau taka meiri toll af manni.
En mér hefur oft fundist að því stærri
sem erfðamálin eru því meiri líkur á því
að þar séu karlar lögmenn.
Marta: Ég held að það sé forsenda fyrir
því að báðir aðilar á heimili geti sinnt
erilsömu starfi, að jafnvægi sé varðandi
heimilisstörf. Sérstaklega þegar börn eru
á heimilinu, þar sem eðlilega verður
þá meira að gera. Þá er líka mikilvægt
að reyna að „einfalda lífið“ eins og
mögulegt er og að reyna að fá þá hjálp
við heimilishald sem hægt er að fá.
Lára: Þetta var mín ræða fyrir 30 árum.
Auður: Ég á eiginmann sem er mjög
mikið erlendis og þrjú börn, þannig
að afar og ömmur, húshjálp og allur
sá pakki er kallaður til. Þetta væri ekki
hægt án þess en það tók mig tíma að
átta mig á því.
Lára: Við gætum líka horft á þessar
Einungis 13% eigenda stærstu lögmannsstofanna eru konur
Þegar skoðað er hlutfall kvenna í hópi eigenda tíu stærstu lögmannsstofa
landsins er eftirtekjan rýr. einungis 13% eigenda eru konur, eða 13 á móti 77
körlum. Á fimm af tíu stærstu lögmannsstofum landsins eru engar konur í hópi
eigenda. Þess má geta að erfitt er að bera saman eigendahóp lögmannsstofa
þar sem þær eru með ólíkt rekstrarform. Í þessum samanburði eru þær
lögmannsstofur teknar með sem eru með flesta lögmenn undir sama nafni
en a.m.k. ein stofanna, Lagastoð, er samstarf einyrkja undir „regnhlíf“.
Allt fyrir golfið
Bæjarlind 14 - 201 Kópavogur - sími 577 4040
holeinone@holeinone.is - www.holeinone.is
frh.