Lögmannablaðið - 01.03.2014, Síða 23
lögMannaBlaðið tBl 01/14 23
aðsent efni
HörðUr felix HArðArson Hrl.
Ákæra í sakamálum er gefin út að
undangenginni rannsókn lögreglu.
Við rannsóknina aflar lögregla gagna
og tekur skýrslu af sakborningum
og vitnum. Úrræði sakbornings eða
verjanda til afskipta af rannsókn lögreglu
eru afar takmörkuð. Aðstöðumunurinn
er hér augljós og hallar þar verulega á
sakborning fram að meðferð málsins
fyrir dómi. Þótt á lögreglu hvíli skylda
til hlutlægni við úrvinnslu haldlagðra
gagna og við mótun spurninga til
sakborninga og vitna þá er ljóst að
verjandi getur ekki lagt til grundvallar
að hagsmuna skjólstæðings hans hafi
í einu og öllu verið gætt við rannsókn
lögreglu. Á verjanda hvílir sú skylda
að fara gagnrýnið yfir gögn málsins
með hagsmuni skjólstæðingsins í
huga. Við slíka yfirferð vakna oftar
en ekki fjölmargar spurningar sem
svör fást ekki við með lestri sýnilegra
sönnunargagna eða skýrslna af vitnum
og sakborningum. Þá getur slík skoðun
einnig leitt í ljós rangfærslur um atvik
eða að upplýsingar skorti um tiltekna
þætti málsins þannig að bæta þurfi úr,
eftir atvikum með framlagningu gagna
eða framburði vitna.
aðgangur að gögnum
Við meðferð þeirra mála sem sprottið
hafa af rannsókn sérstaks saksóknara á
málefnum bankanna hafa ýmis álitaefni
risið sem lúta að réttindum þeirra sem
bornir eru sökum í þeim málum. Ítarleg
umfjöllun um það efni verður að bíða
síðari tíma en meðal þess sem dómstólar
hafa þurft að taka afstöðu til er réttur
sakborninga og ákærðra til aðgangs að
gögnum. Sá réttur hefur sætt ýmsum
takmörkunum í nýlegum dómum og
úrskurðum. Í því máli sem hér hefur
verið gert að umtalsefni, sakamáli
S127/2012, hefur ákærðu verið neitað
um aðgang að öðrum gögnum en
eigin tölvupóstum og þeim gögnum
sem ákæruvaldið ákvað að gera að
gögnum dómsmálsins. Þá gátu ákærðu
ekki fengið yfirlit yfir þau gögn sem
auðkennd höfðu verið við rannsókn
á haldlögðum gögnum en ekki höfðu
verið lögð fram í dómsmálinu.
hvernig verður upplýsinga
aflað?
Við aðstæður sem þessar, sem reyndar
samrýmast illa grundvallarreglum um
réttláta málsmeðferð, er enn brýnna en
ella að verjandi afli sjálfstætt upplýsinga
um atvik málsins. Það verður vart gert
nema með því að leita upplýsinga frá
þeim einstaklingum sem best til þekkja.
Eðli málsins samkvæmt er líklegt að flestir
þeirra séu annaðhvort sakborningar
eða vitni vegna vitneskju eða aðkomu
sinnar að málinu. Eru verjanda þá
samkvæmt dómi héraðsdóms allar
bjargir bannaðar? Vitni í áðurnefndu
dómsmáli voru um 50 talsins. Hvernig
á verjandi að afla upplýsinga um það
hvert vitnanna getur mögulega varpað
ljósi á atvik sem lögregla hefur af
einhverjum ástæðum ekki leitast við
að upplýsa? Á hann samkvæmt þessu
að leggja sömu spurningar fyrir fjölda
vitna við aðalmeðferðina, upp á von
og óvon, með tilheyrandi töfum á
aðalmeðferðinni? Hvernig á verjandi
að afla upplýsinga um það hvort til
Skemmuvegi 4 // Sími 540 1800 // www.prent.is