Peningamál - 01.05.2010, Blaðsíða 66
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
0
•
2
66
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
nemi um 1,1 prósentu á þessu ári sem er sama og gert var ráð fyrir í
síðustu spá. Hins vegar er búist við því að þau verði um 1,4 prósentur
á árinu 2011 eða töluvert minni en spáð var í janúar þegar gert var
ráð fyrir 2,4 prósenta verðlagsáhrifum. Verðlagsáhrif skattabreytinga
á árinu 2012 eru hins vegar óbreytt frá fyrri spá eða 0,6 prósentur.
Verðbólguhorfur óvissar
Ýmsir óvissuþættir eru til staðar varðandi verðbólguhorfur (sjá nánar í
kafla I). Í grunnspánni er gert ráð fyrir töluverðri lækkun íbúðaverðs.
Ef aðstæður á fasteignamarkaði batna hins vegar að einhverju leyti
gæti íbúðaverð lækkað minna eða staðið í stað, auk þess sem óvíst
er um áframhaldandi áhrif mælingarvandans sem nefndur var hér að
framan ef velta eykst á markaðnum. Spáin gerir einnig ráð fyrir að
annarrar umferðar áhrif vegna hækkunar beinna skatta og olíuverðs
á verðbólguvæntingar séu takmörkuð. Þar sem illa hefur tekist að
halda verðbólgu í skefjum undanfarin ár, má hins vegar vera að áhrifin
séu meiri og að verðbólga verði því þrálátari en grunnspáin gerir ráð
fyrir. Að lokum er einnig gert ráð fyrir takmörkuðum verðbólguþrýst-
ingi af vinnumarkaði þar sem launahækkanir á næstu misserum verði
hóflegar enda atvinnuleysi mikið og því talsverður slaki á vinnumark-
aði. Hins vegar eru ýmsar vísbendingar um að launaþrýstingur auk-
ist meira en gert er ráð fyrir í grunnspánni, einkum í útflutnings- og
samkeppnisgreinum, sem gæti þýtt aukinn kostnaðarþrýsting og þ.a.l.
meiri verðbólgu sérstaklega ef smitáhrif á aðrar atvinnugreinar yrðu
umtalsverð.
%
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Mynd VIII-13
Verðbólga og verðhækkanir evru
Breyting frá sama tíma árið áður
Verðbólga án skattaáhrifa (v. ás)
Gengi krónu gagnvart evru (h. ás)
0
3
6
9
12
15
18
-20
0
20
40
60
80
100
‘13201220112010200920082007
%
Breyting frá sama tíma árið áður (%)
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Mynd VIII-14
Verðbólga með og án skattaáhrifa
Verðbólga
Verðbólga án skattaáhrifa
Verðbólgumarkmið
0
2
4
6
8
10
12
14
16
18
‘13201220112010200920082007