Fréttablaðið - 29.04.2016, Side 18

Fréttablaðið - 29.04.2016, Side 18
KR – 2. sæti ÞjálfaRi Bjarni Guðjónsson Bjarni var með KR-liðið á toppi deildarinnar um mitt mót en gengið var ekki gott seinni hlutann. Pressan á honum er mikil. KR-liðið er með virkilega sterkt byrjunarlið en ekki jafn stóran hóp og hin liðin sem berjast í toppbaráttunni. í besta/versta falli stærsta nafnið sem kom stærsta nafnið sem fór GenGi kr undanfarin sex sumur 2010 a-deild 2011 a-deild 2012 a-deild 2013 a-deild 2014 a-deild 2015 a-deild indriði Sigurðsson Fyrrverandi landsliðsmaðurinn er kominn heim í Vesturbæinn. Gary Martin Enski markahrókurinn er farinn og spilar fyrir Víking. spá íþróttadeildar 365 1. sæti ? 5. Valur 9. ÍBV 2. KR 6. Víkingur 10. Ía 3. Stjarnan 7. fylkir 11. Víkingur Ólafsvík 4. Breiðablik 8. fjölnir 12. Þróttur pepsi spáin 2016 nánar á vísi indriði Sigurðsson er kominn heim í frábæru formi eftir 16 ára atvinnumennsku. Hann er leiðtoginn sem KR skorti í fyrra og umfram allt virkilega góður miðvörður. ↣ 314 1 34 Í dag 18.25 augsburg - Köln Sport 19.00 Zürich Classic Golfstöðin 18.15 Haukar - ÍBV Ásvellir 19.30 fjölnir - Selfoss Dalhús 20.00 Stjarnan - Haukar TM-höllin domino´s deild karla, úrslit Haukar - KR 70-84 Haukar: Brandon Mobley 31/7 fráköst, Haukur Óskarsson 17/3 varin skot, Hjálmar Stefánsson 8, Finnur Atli Magnússon 6/5 fráköst, Kristinn Jónasson 4, Emil Barja 2/5 fráköst/7 stoðsendingar, Kristinn Marinósson 2. KR: Michael Craion 27/9 fráköst/3 varin skot, Brynjar Þór Björnsson 23/8 fráköst, Pavel Ermolinskij 12/12 fráköst/6 stoð- sendingar, Helgi Már Magnússon 11/4 frá- köst/7 stoðsendingar, Björn Kristjánsson 5, Darri Hilmarsson 4, Snorri Hrafnkelsson 2. KR vann einvígið 3-1 og er Íslands- meistari þriðja árið í röð. evrópudeildin, undanúrslit Villarreal - liverpool 1-0 1-0 Adrián López (90+2.). Shakhtar - Sevilla 2-2 0-1 Vitolo (6.), 1-1 Marlos (23.), 2-1 Taras Stepamenko (36.), 2-2 Kevin Gameiro, víti (82.). Liverpool fékk á sig mark í upp- bótartíma en Sevilla er í góðri stöðu til að komast í úrslitaleikinn þriðja árið í röð. olís deild karla í handbolta Valur - afturelding 30-24 Markahæstar (Skot): Sveinn Aron Sveins- son 9/4, Geir Guðmundsson 7, Guðmundur Hólmar Helgason 6 - Jóhann Gunnar Einarsson 5/5, Jóhann Jóhannsson 4, Birkir Benediktsson 4. Valsmenn eru komnir í 2-1 eftir öruggan sigur í þriðja leiknum gegn Aftureldingu. Valur var með yfir- höndina allan tímann og leiddi með níu mörkum í hálfleik. Til hamingju KR og sérstaklega Helgi Magg, frábær leikmaður og flottur ferill. Besta liðið í vetur. #dominos365 #korfubolti Marvin Valdimarsson @marvinvald RóbeRt AftuR tiL eyjA Handboltamaðurinn Róbert Aron Hostert skrifaði undir þriggja ára samning við ÍbV í gær. Róbert kemur frá danska liðinu Mors-thy sem hann hefur leikið með undan- farin tvö ár. Þessi öfluga skytta þekkir vel til í herbúðum ÍbV en hann lék með liðinu tímabilið 2013-14. Róbert, sem er 25 ára, var í lykilhlutverki í eyjaliðinu sem varð Íslandsmeist- ari vorið 2014 eftir oddaleik gegn Haukum á Ásvöllum. Að tíma- bilinu loknu var Róbert kjörinn besti leikmaður Íslandsmótsins. fRettaBlaðið/pjetuR 12 11 10 9 8 7 6 5 4 3 2 1 körfubolti „ef ég hefði ætlað að skrifa bók um hvernig ég vildi enda ferilinn þá væri hún svona,“ sagði KR- ingurinn Helgi Már Magnússon skæl- brosandi en hann var að spila sinn síðasta körfuboltaleik á ferlinum í gær er KR varð Íslandsmeistari þriðja árið í röð. Þetta var 200. leikur Helga Más fyrir KR og endirinn fullkominn. KR vann einnig bikarkeppnina en Helgi hafði aldrei náð að vinna bikar- inn áður og ríður nú út í sólsetrið sem tvöfaldur meistari. „Þetta ár er búið að vera fáran- legt. Íslandsmeistari, bikarmeistari deildarmeistari og eM. Svo var smá drama með meiðsli líka. Það var allt sem til þarf í þessa sögu.“ KR vann úrslitaeinvígið 3-1 gegn Haukum en eftir að hafa tapað síð- asta leik í Vesturbænum kom aldrei til greina að tapa á Ásvöllum í gær. Leikurinn var stórskemmtilegur. Liðin héldust í hendur allan fyrri hálfleikinn og munaði aðeins þrem stigum á liðunum í leikhléi, 39-42. Í síðari hálfleik skilaði reynsla, sigur- vilji og sigurhefð KR-inga því að þeir sigldu fram úr reynsluminna Hauka- liði og spennan í lokin var engin. KR gaf engin færi á sér að þessu sinni og kláraði leikinn, og mótið, meistara- lega. „Það small allt saman hjá okkur. Í janúar hafði ég áhyggjur af meiðsl- unum mínum og hélt að ég myndi ekki ná mér almennilega. Það vant- aði allan kraft í mig. Svo kom þetta hjá mér og við smellum líka sem lið,“ segir Helgi Már en það hafði óneitan- lega áhrif á leik liðsins er leikstjór- nandinn Ægir Þór Steinarsson fór frá liðinu eftir áramót til Spánar. „Þá náðum við að detta í gamla farið og Pavel stýrði þessu eins og hers- höfðingi. Við vorum aðeins hægari þá en það er allt í lagi fyrir gamla menn,“ segir Helgi Már með sólskins- bros á andlitinu en hann segist labba afar sáttur í burtu frá leiknum sem hefur fylgt honum svo lengi. „Það er í góðu lagi núna. Ég fer brosandi og hamingjusamur til bandaríkjanna. Það gæti aftur á móti orðið meira vesen þegar tíma- bilið fer að byrja aftur næsta haust. Þá er hætt við að mig fari að kitla í fingurna. Ég er ótrúlega stoltur af liðinu. Við fundum alltaf lausnir og náðum að aðlaga okkur er eitthvað kom upp á. Við skorum nánast engar hraðaupphlaupskörfur í leiknum enda erum við reynslumiklir. Við erum þroskaðri leikmenn en áður og framkvæmum sóknirnar okkar betur. Það er magnað afrek að ná því að vinna þrjú ár í röð. Mér fannst við vera bestir og við erum bestir. Það voru forréttindi að vera með þessu liði. Það mun vinna fjórða árið í röð.“ fyrirliði KR, brynjar Þór björns- son, var valinn besti leikmaður úrslitaeinvígisins en hann lék frá- bærlega. Hann er nú búinn að vinna Íslandsmeistaratitilinn sex sinnum með KR og er því orðinn sá sigursæl- asti ásamt einari bollasyni, Kolbeini Pálssyni og Kristni M. Stefánssyni. henry@frettabladid.is Það small allt saman hjá okkur KR varð Íslandsmeistari í körfubolta þriðja árið í röð eftir sigur á Haukum í gær. KR vinnur því tvöfalt í ár og er óumdeildur risi í íslenskum körfubolta. Helgi Már Magnússon fékk fullkominn endi á ferilinn. Brynjar Þór Björnsson lyftir Íslandsbikarnum sem KR hefur unnið síðustu þrjú ár. fRéttaBlaðið/eRniR 2 9 . a p r í l 2 0 1 6 f ö s t u d a G u r18 s p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð spoRT 2 9 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :3 2 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 4 1 -4 2 C 8 1 9 4 1 -4 1 8 C 1 9 4 1 -4 0 5 0 1 9 4 1 -3 F 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s _ 2 8 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.