Fréttablaðið - 29.04.2016, Page 26

Fréttablaðið - 29.04.2016, Page 26
„Dagurinn í dag er tileinkaður parkour-menningunni og í dag eiga allir sem stunda parkour í heimin- um að hoppa. Eftir daginn verða send vídeó frá öllum viðburðunum í heiminum og búið til eitt stórt al- þjóða myndband. Vonandi verður þetta að árlegum viðburði fram- vegis,“ segir Magni Grétarsson, en hann stendur fyrir parkour- viðburði í Nauthólsvík í dag klukk- an 15. Hann segir hóp þeirra sem stunda parkour hér á landi fara sí- fellt stækkandi þó íþróttin sé til- tölulega ungt fyrirbrigði á Íslandi. „Það eru alltaf að koma fleiri og yngri krakkar inn. Þetta verð- ur orðinn stór hópur eftir nokkur ár. Ég hef stundað þetta sjálfur í sex ár og æfi og þjálfa fimleika og parkour hjá Fylki. Við byrjuð- um bara á þessu úti á trampólíni hjá vini mínum eftir að hafa séð parkour-myndbönd á YouTube. Okkur fannst þetta spennandi og fórum að hoppa yfir grindverk og fleira og æfa okkur,“ segir Magni en parkour gengur út á að komast stystu leið frá A til B og yfirstíga hindranir í veginum með hlaupum, hoppum og heljarstökkum, veltingi og fleiri trixum. „Það má nota það sem er í boði. Það skemmir ekki að vera í líkam- lega góðu formi en þegar upp er staðið er þetta bara æfing, eins og í öllu öðru. Parkour snýst alls ekki eins og margir virðast halda um að við séum bara hoppandi úti um allt eins og fífl, alltaf við það að drepa okkur. Við höfum stjórn á öllu sem við gerum og hver og einn þróar sinn stíl. Sumir eru meira að klifra og hoppa niður af háum hlut- um meðan aðrir kjósa flata gras- bletti fyrir sín trix. Parkour snýst um aga og að vera meðvitaður um getu sína og takmörk. Ekki reyna einhverja vitleysu sem maður er ekki viss um að maður ráði við og við gerum það ekki.“ Hvar og hvernig stundar þú parkour? „Það er vel hægt að fara einn að hoppa en það er gaman að vera í félagsskap og hoppa saman. Við tökum oft heilan dag í þetta. Löbb- um um bæinn og hoppum, í marga klukkutíma þess vegna,“ segir Magni. Dagskráin í Nauthólsvík hefst klukkan 15. Hoppa ekki um allt eins og fífl Magni Grétarsson stendur fyrir parkour-viðburði í Nauthólsvík í dag en forsprakki parkour-íþróttarinnar, Frakkinn David Belle, á afmæli í dag. Uppákoman er hluti af alþjóðlegum viðburði. „Það skemmir ekki að vera í líkamlega góðu formi,“ segir Magni en hann hefur stundað parkour í sex ár. Magni Grétarsson, fimleika- og parkour-þjálfari hjá Fylki, stendur fyrir parkour-viðburði í Nauthólsvík í dag. MyNd/erNir Parkour snýst um aga og að vera meðvitaður um getu sína og takmörk. Ekki reyna einhverja vitleysu sem maður er ekki viss um að maður ráði við og við gerum það ekki. Magni Grétarsson Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618 info@arcticstar.is - www.arcticstar.is SÆBJÚGNAHYLKI FYRIR HEILSUNA Arctic star sæbjúgnahylki innihalda yfir fimmtíu tegundir af næringarefnum, og eru þekkt fyrir: • Hátt próteininnihald og lágt fituinnihald • Að minnka verki í liðum og liðamótum • Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni liðskemmda • Að bæta ónæmiskerfið • Að auka blóðflæði • Að koma í veg fyrir æðakölkun • Að auka orku líkamans, stuðla að myndun húðpróteins og insúlins ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar fást á www.arcticstar.is Arctic Star sæbjúgnahylki Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og hagkaupum. VIÐ FLYTJUM ÞÉR Fréttir Stöðvar 2, í opinni dagskrá alla daga vikunnar, alla daga ársins, kl. 18.30. FRÉTTASTOFA FRÉTTIRNAR ALLA DAGA VIKUNNAR Í OPINNI DAGSKRÁ KL. 18.30 2 9 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r6 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l 2 9 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :3 2 F B 0 7 2 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 4 1 -7 9 1 8 1 9 4 1 -7 7 D C 1 9 4 1 -7 6 A 0 1 9 4 1 -7 5 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 7 2 s _ 2 8 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.