Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.04.2016, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 29.04.2016, Qupperneq 30
Útgefandi | 365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | Veffang visir.is UmSjónarmaðUr aUglýSinga Jóhann Waage| johannwaage@365.is | s. 512-5439 ÁbyrgðarmaðUr Svanur Valgeirsson Arkitektinn Sigursteinn Sigurðs- son segir deiliskipulag við það að fara í gegn og framkvæmdir að fara að hefjast á nýju miðsvæði í Borgarnesi. „Á stórum grasvelli hinum megin við götuna frá Nettó og Vínbúðinni á að byggja 85 her- bergja hótel og íbúðir fyrir sextíu ára og eldri. Þetta er flott verk- efni sem er að fara þar í gang og hluti af ákveðinni framtíðarsýn,“ segir Sigursteinn. Hann vann bæði deiliskipulagið og er nú arkitekt að þeim húsum sem verið er að fara að byggja. Fjölgun í bænum Þörfin fyrir bæði hótel og íbúðir fyrir eldri íbúa var og er mikil að sögn Sigursteins. „Íbúðirnar fyrir þá sem eru sextíu ára og eldri er eina verkefnið þar sem verðandi íbúar hafa komið og sagt við mig að þetta bara verði að gerast. Ef ekki væri fyrir þessar íbúðir þyrfti þetta fólk að flytja í burtu til að komast í minni íbúð og það eru alls ekki allir sem eru til- búnir í það.“ Hótelið sem byggja á verður í fínni kantinum en Sigursteinn segir eftirspurn eftir slíkum gistimöguleika mikla. „Eftir að Lonely Planet valdi Vest- urland í fyrra sem einn af áhuga- verðustu stöðum heims til að heim- sækja á þessu ári fór maður að finna fyrir því að það fóru að koma hingað „fínni“ gestir, ef hægt er að segja sem svo, að leita sér að gist- ingu,“ útskýrir Sigur steinn. Hann segir fjölgun vera í bænum vegna þess að brottflutt- ir Borgnesingar séu að koma aftur heim en auk þess séu Reykvíking- ar í leit að rólegra lífi og ódýrara húsnæði að flytja til bæjarins. „Til dæmis má nefna að hér er verið að klára að byggja fjölbýlis- hús þar sem var búið að taka frá allar íbúðir í um leið og búið var að hanna það og fá byggingarleyfi.“ Hægt að gera upp húsin Sigursteinn flutti burt úr Borg- arnesi  sextán ára þegar hann fór í nám í Listaháskóla Íslands. Hann fór svo í frekara nám í Skot- landi. „Þrátt fyrir að ætla ekki fyrir nokkurn mun að flytja aftur í Borgar nes þá lenti ég hér aftur vegna kreppunnar. Atvinnuástand- ið í Bretlandi var verra en á Ís- landi árið 2010 þegar ég kom heim. Mér fannst  vanta hönnun, arki- tektúr og skipulag í bæinn þannig að ég byrjaði að blogga og benda á hin ýmsu tækifæri sem felast hér. Upp frá því fór ég svo að fá verk- efni sem arkitekt,“ segir hann. Aðspurður hver þessi tækifæri séu segist hann varla vita hvar hann eigi að byrja. „Það hefur oft verið sagt að Borgarnes standi á fallegu bæjarstæði. Ég hef sagt það og örugglega móðgað ein- hverja um leið að ef hér væri ekk- ert landslag og allt flatt þá væri þetta frekar leiðinlegur og ljótur bær. Við ættum því að nýta nátt- úruna betur. Svo eigum við gömul hús og ef þau væru gerð upp þá gætum við orðið eins og Stykkis- hólmur, sem er þekktur fyrir sín gömlu hús. Við eigum þessi hús en þau eru falin undir nýtísku efnum. Listahátíð í bígerð Auk þess að tjá sig um og vinna að skipulagsmálum hefur Sigur- steinn reynt að byggja upp skap- andi samfélag á Vesturlandi. Hann stofnaði samtökin Vitbrigði Vestur lands sem hafa þann til- gang að efla ungt fólk í skapandi greinum og gera því auðveldara fyrir að starfa innan greinanna í landshlutanum. „Í gegnum þann félagsskap er ég í samstarfi við tvo listamenn hér á svæðinu, Loga Bjarnason og Sigríði Þóru Óðins- dóttur, að skipuleggja listahátíðina Plan B sem fram fer í Borgarnesi í sumar. Ég er nú svo bjartsýnn að ég stefni á að hátíðin verði eins og Feneyjatvíæringurinn í fram- tíðinni,“ segir hann hlæjandi og bætir við að listamennirnir tveir í hópnum séu þó aðeins meira á jörðinni og reyni að halda honum líka þar. „Þetta er mjög spennandi og í maí verðum við með viðburð í sundlauginni þar sem við auglýs- um eftir listamönnum.“ Verslunin Omnis er í björtu og rúm- góðu húsnæði í verslunarkjarn- anum við Dal- braut 1 á Akra- nesi, mitt á milli Íslandsbanka og Krónunnar. Ing- þór B. Þórhalls- son og fjölskylda keyptu verslunina fyrir rúmu ári og hafa frá því breytt áherslum í rekstrinum. „Við getum ekki sagt annað en að viðtökurnar séu góðar,“ segir Ingþór. „Reksturinn á sér allt að tuttugu ára sögu og byggðist upphaflega á sölu tölvu- og tæknivara fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Hjá okkur finnur þú allt til almennrar tölvunotkunar og mikið úrval rekstrarvara. Helstu samtarfsaðilar okkar á þessu sviði eru Opin kerfi, Nýherji, Advania og Epli. Hér má því finna merki eins og HP, Dell, Lenovo, Canon og Apple, öll undir einum hatti,“ segir Ingþór spurður um vöruúrvalið. Samhliða þessu er mikið lagt upp úr þjónustu við tölvu- og far- símanotendur með úrvali af auka- hlutum. „Hingað kemur mikið af ferðamönnum sem vantar t.d. áfyll- ingar á netkort og frelsi og aðstoð með símstillingar, aukahluti, snúr- ur, hulstur, hleðslutæki og þess háttar. Oft mæðir mikið á farsím- anum í ferðalaginu og þá er gott að hafa aðgang að þjónustu okkar.“ Omnis er í góðu samstarfi við Ormsson ehf. og býður þ.a.l. upp á fullt af vörum fyrir heimilið frá merkjum á borð við AEG, Tefal og Braun auk sjónvarpa og hljóm- tækja frá Samsung, Pioneer og Bang & Olufsen. Einnig má finna nótur og hljóðfæri frá Tónastöðinni í Reykjavík. „Þessu aukna vöruúr- vali hefur verið mjög vel tekið og viðskiptavinir eru ánægðir að geta nálgast þessar vörur og vörumerki hér heima, á sama verði og á höfuð- borgarsvæðinu.“ Omnis er einnig með umboð fyrir TM á Akranesi þannig að í mörg horn er að líta. Verslunin Omnis á Akranesi er rekin sem fjölskyldufyrirtæki og er lögð áhersla á persónulega og góða þjónustu. Auk Ingþórs starfa tveir starfsmenn í versluninni. „Við sem hér vinnum leggjum okkur fram um að veita framúrskarandi þjónustu og að bjóða upp á traust og góð vörumerki. Það „rokkar“ því hingað leita sömu kúnnarnir aftur og aftur,“ segir Ingþór glað- ur í bragði og hvetur ferðafólk til að líta við í verslunum á Akranesi á leið sinni um Vesturland í sumar. Omnis rokkar Í versluninni Omnis á Akranesi kennir ýmissa grasa og lögð er áhersla á framúrskarandi þjónustu með traustum og góðum vörumerkjum. Verslunin Omnis er í björtu og rúmgóðu húsnæði í verslunarkjarnanum við dalbraut 1 á akranesi. ingþór b. Þórhallsson björt framtíð og nóg af tækifærum Sigursteinn Sigurðsson arkitekt er uppalinn Borgnesingur sem flutti aftur í heimabæinn fyrir um sex árum. Hann segir mörg tækifæri vera í Borgarnesi og margt að gerast í bæði skipulagsmálum og í skapandi greinum, meðal annars listahátíðin Plan B í sumar. Sigursteinn Sigurðarson arkitekt Sigursteinn, logi bjarnason og Sigríður Þóra óðinsdóttir eru að skipuleggja lista- hátíðina Plan b í borgarnesi sem verður haldin í sumar. brákartorg í skipulagstillögu fyrir hönnun á nýju almenningssvæði í gamla bænum í borgarnesi. Opnunartími sundlaugar: ATH.: hætt er að hleypa ofan í laugina 30 mínútum fyrir lokun Mánudagar: kl. 07:30-21:00 Þriðjudagar: kl. 07:30-21:00 Miðvikudagar: kl. 07:30-21:00 Fimmtudagar: kl. 07:30-21:00 Föstudagar: kl. 07:30-21:00 Laugardagar: kl. 10:00-17:00 Sunnudagar: kl. 10:00-17:00 Börnum yngi en tíu ára er óheimilt að fara í sund nema í fylgd með syndum einstaklingi sem er mmtán ára eða eldri. Ábyrgðarmaður tekur fulla ábyrgð á barni og fylgir því alltaf hvort sem er í lauginni eða í pottunum. Sundlaugin í Ólafsvík Ennisbraut 11 355 Snæfellsbær Sími: 433-9910 kOmdU VeStUr kynningarblað 29. apríl 20162 2 9 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :3 2 F B 0 7 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 4 1 -8 7 E 8 1 9 4 1 -8 6 A C 1 9 4 1 -8 5 7 0 1 9 4 1 -8 4 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 2 8 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.