Fréttablaðið - 29.04.2016, Page 32

Fréttablaðið - 29.04.2016, Page 32
 Jónas Hallgrímsson ferðaðist um Ísland sum- arið 1841 og kom þá meðal annars á Snæfellsnesið. Hann segir í dagbók sinni að sagnir um Bárð lifi enn meðal fólks á nesinu í breyttu og ýktu formi og þær séu yfirleitt tengdar örnefnum kenndum við hann, svo sem Bárðarlaug og Bárðarkistu, þar sem Bárður á að hafa geymt fjársjóði sína. Langisandur er mikil útivistarperla og hér hafa nokkrir harðgerðir íbúar komið upp sjó- sundfélagi og fer með- limum fjölgandi. Langis- andur, sem er Bláfánavottuð baðströnd með skeljasands fjöru, er á sólardögum oft þétt- setinn fólki. Regína Ásvaldsdóttir Það eru fjölmargir þættir sem gera það að verkum að Akranes er frábær staður til að búa á segir Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Akraness. „Hér er gott skóla- og heilbrigðiskerfi í bland við öflugt atvinnulíf og nálægð við náttúr- una, strönd, skóg og fjall. Einn- ig búum við yfir ríku tónlistarlífi þar sem einstaklega góður og vel útbúinn tónlistarskóli hefur haft sitt að segja. Ekki skemmir held- ur fjölbreytt íþróttalíf.“ Akranes er því afar fjölskyldu- vænn bær að hennar sögn enda sýnir viðhorfskönnun Capacent, sem gerð er í 20 stærstu sveitarfé- lögum landsins, að mikil ánægja er með skóla- og leikskóla meðal íbúa og lendir bærinn yfir leitt í 1.-3. sæti þar. „Við erum einn- ig með sterka félags- og heil- brigðisþjónustu og hér er mikil hefð fyrir því að ólíkar fagstéttir vinni saman að lausn mála. ÍA er mjög sterkt íþróttafélag með um 18 íþróttagreinar innanborðs. Þar er unnið öflugt starf í þágu barna og unglinga og fjöldinn allur af sjálfboðaliðum tekur þátt í fram- kvæmd móta.“ Tækifæri framundan Atvinnulífið í bænum byggir á traustum grunni að sögn Regínu. „Stærstu atvinnurekendurnir hér, fyrir utan bæjarfélagið sjálft, og sjúkrahúsið eru HB Grandi, Skag- inn og Þorgeir og Ellert, en við erum líka með mjög fjölmenna vinnustaði á Grundartanga þar sem hundruð Skagamanna vinna. Hér eru einnig fjölmörg smærri þjónustufyrirtæki, sem hafa sér- hæft sig á ólíkum sviðum, og fjöl- breyttar verslanir.“ Hún sér enn frekari tækifæri fram undan. „Ég sé tækifæri í sjávar útvegi og þeim þróunar- verkefnum sem tengjast honum, þar hefur Skaginn tekið forystu á landsvísu. Auk þess má nefna aukna möguleika á Grundar- tanga en atvinnuuppbygging þar hefur mikil áhrif á Akranes. Hvað varðar ferðaþjónustu þá tel ég að við, eins og flestir bæir á Íslandi, höfum tækifæri en það gildir að finna sérstöðuna og gera út á hana. Fjölgun ferðamanna hjálp- ar okkur til að halda úti góðum veitingahúsum og verslunum. Við horfum ekki síður til mikilvæg- is þess að bjóða íbúa höfuðborg- arsvæðisins velkomna til okkar, hvort sem það er til að spila golf, skoða útsýnið úr Akranesvita eða sækja menningar viðburði.“ Spennandi framkvæmdir Hún segir bæinn búa yfir fjöl- breyttu húsnæði og mikil hreyf- ing hafið verið á húsnæðismark- aðinum undanfarin ár. „Hér er gott úrval af byggingarlóðum og við erum að skipuleggja nýjan og spennandi reit, svokallaðan Sem- entsreit, í samstarfi við ASK arki- tekta. Stefnt er að því að ljúka öllu skipulagsferlinu fyrir lok árs 2016 en það tekur aðallega til athafna- svæðis Sementsverksmiðjunnar. Við teljum að þetta verkefni muni hafa mikil áhrif á ásýnd bæjarins þegar því verður lokið.“ Akranes býr yfir mörgum nátt- úruperlum og útivistarsvæðum. „Langisandur er mikil útivistar- perla og hér hafa nokkrir harðgerð- ir íbúar komið upp sjósundfélagi og fer meðlimum fjölgandi. Langisand- ur, sem er Bláfánavottuð baðströnd með skeljasands fjöru, er á sólardög- um oft þéttsetinn fólki. Ætlunin er að setja heita laug þar en búið er að setja þar upp útisturtu með heitu vatni sem við erum einmitt nýbúin að setja í gang fyrir sumarið. Akra- fjallið er að vísu í næsta sveitarfé- lagi, Hvalfjarðarsveit, en það er af- skaplega vinsælt hjá Skagamönn- um og skemmtilegt uppgöngu. Svo eigum við perlu í Garðalundi sem er skógræktarsvæði á Akranesi. Þar má finna fína aðstöðu fyrir fjöl- skyldur, þar sem m.a. er hægt að grilla, fara í strandblak, frisbígolf, fótbolta og fleira. Að lokum má auð- vitað ekki gleyma vitunum tveimur sem eru á Breiðinni svokölluðu en þar er hægt að njóta listviðburða og útsýnis frá Reykjanesskaga til Snæ- fellsness.“ Nánari upplýsingar um Akranes má finna á www.akranes.is. Fjölskylduvænn bær með framtíð Það er gott að búa á Akranesi en bærinn býr yfir góðu skóla- og heilbrigðiskerfi í bland við öflugt og fjölbreytt atvinnulíf. Nýr og spennandi Sementsreitur mun bjóða upp á fjölmörg tækifæri fyrir bæjarfélagið. Akranes býr auk þess yfir fjölda náttúruperlna og útivistasvæða. Börn í leik á Langasandi sem er vinsælt útivistarsvæði. MYND/AKRANESKAUPSTAÐUR Þrívíddarmynd Ask arkitekta af Sementssvæðinu. MYND/ASK ARKITEKTAR Á Arnarstapa stendur heljarmik- ill hlaðinn steinkarl eftir Ragnar Kjartansson. Karlinn er minnis- merki um Bárð Snæfellsás. Bárður er söguhetjan í fornsög- unni Bárðar saga Snæfellsáss sem talið er að hafi verið skrifuð á síð- ari hluta 14. aldar. Bárður er í sögunni sagður sonur Dumbs konungs og Mjall- ar Snæsdóttur. Dumbur konungur var kominn af risakyni í föðurætt, en tröllum í móðurætt. Í arf hafði Dumbur fengið einkenni beggja. Hann var sterkur og vænn með þægilega skapsmuni. Hann gat því haft samskipti við mennska menn. Þetta hafði hann frá risunum í föð- urætt. Úr móðurætt eða frá tröll- unum hafði hann það að vera sterkur og stórvirkur, umskipta- samur og illskiptinn, ef honum lík- aði ekki eitthvað. Bárður Dumbs- son erfði alla þessa eigin leika frá föður sínum en einnig þá mann- legu frá móður sinni. Frá henni erfði hann einnig útlitið, en hann þótti með fegurri mönnum. Sagan segir frá því að Helgu dóttur Bárðar rekur frá landi á ís- jaka en í því eiga bróðursynir hans þátt. Því berst Bárður við bróður sinn og er eftir það bæði þögull og erfiður í umgengni. Hann gaf jarðir sínar og flutti í stóran helli í jöklinum og hverfur þar. Þannig fær hann nafnið Snæfellsás. Sumir eiga að hafa álitið Bárð hollvætt í jöklinum og ákallað hann sér til bjargar. Talið er að hann hafi orðið mörgum á Snæ- fellsnesi bjargvættur, ekki aðeins á landi heldur bjargaði hann einn- ig mönnum úr sjávarháska. Jónas Hallgrímsson ferðaðist um Ísland sumarið 1841 og kom þá meðal annars á Snæfellsnesið. Hann segir í dagbók sinni að sagn- ir um Bárð lifi enn meðal fólks á nesinu í breyttu og ýktu formi og þær séu yfirleitt tengdar örnefn- um kenndum við hann, svo sem Bárðarlaug og Bárðarkistu, þar sem Bárður á að hafa geymt fjár- sjóði sína. Mikið er til af sögum um fjár- sjóði Bárðar, bæði í Bárðarkistu og í helli hans. Það er sagt um Bárðarkistu að þangað hafi Bárð- ur borið fé og sagt að enginn gæti opnað kistuna og notið auðæfanna nema þeir sem fæddir eru af sjö- tugri meykerlingu. Heimild: Wikipedia Bárður Snæfellsás hvarf inn í Snæfellsjökul KoMDU vESTUR Kynningarblað 29. apríl 20164 2 9 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :3 2 F B 0 7 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 4 1 -7 4 2 8 1 9 4 1 -7 2 E C 1 9 4 1 -7 1 B 0 1 9 4 1 -7 0 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 7 2 s _ 2 8 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.