Fréttablaðið - 29.04.2016, Page 38

Fréttablaðið - 29.04.2016, Page 38
limtrevirnet.is Aðalskrifstofa - Borgarbraut 74 - 310 Borgarnes Söluskrifstofa - Vesturvör 29 - 200 Kópavogur Netfang - sala@limtrevirnet.is Aðalnúmer: 412 5300 | Söludeild: 412 5350 - stuttur afgreiðslutími - lagerlitur hvítur, boðið upp á málun - gluggar, bæði íkomnir og í lausu Bílskúrshurðir frá Límtré Vírnet fást í verslunum Húsasmiðjunnar um land allt - hurðaopnarar - boðið upp á uppsetningu Andlit hússins -fallegar og sterkar bílskúrshurðir frá Límtré Vírnet komdu vestur kynningarblað 29. apríl 201610 Um land allt bjóða bændur ýmsar matvælaafurðir til sölu beint til neytenda undir heitinu Beint frá býli. Vesturland er þar ekki undan­ skilið og geta íbúar svæðisins og ferðamenn keypt fjölbreytt og bragðgóð matvæli af ýmsum gerð­ um. Rjómabúið á Erpsstöðum selur eigin rjómaís, skyr og osta. Brenni­ staðir bjóða upp á geita­ og kið­ lingakjöt, bæði nýtt og reykt, og Hverinn selur lífrænt ræktað græn­ meti úr eigin gróðurhúsum. Í Bjarn­ arhöfn er framleiddur og seld­ ur kæstur hákarl og fyrsta flokks ungnautakjöt er selt á Leirulæk. Ábúendur á Háafelli selja ýmsar geitaafurðir og á Bjarteyjarsandi má kaupa sultur, brauð og fíflahun­ ang. Neðri­Háls selur nautakjöt beint til neytenda og það sama má segja um bændur á bænum Glit­ stöðum. Einnig má benda á sveitamark­ aðinn Ljómalind sem haldinn er skammt frá Borgarnesi. Þar má kaupa mikið úrval matvæla sem eingöngu eru framleidd á Vestur­ landi. Nánari upplýsingar um opnunar- tíma og staðsetningu má finna á www.beintfrabyli.is. Matur frá bænduM Fjölmargar skemmtilegar gönguleið­ ir er að finna í þjóðgarðinum Snæ­ fellsjökli sem er á utanverðu Snæ­ fellsnesi. Þótt jökullinn sjálfur sé mesta aðdráttaraflið fyrir flesta gesti er garðurinn um 170 km2 að flatarmáli og inniheldur fjölmargar gönguleiðir fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Umhverfisstofnun hefur gefið út bækling með 35 gönguleiðum í garðinum, sem eru frá 300 metra löngum göngutúrum upp í 6­8 km göngur. Sumar leiðirnar eru stikað­ ar eða merktar og auðvelt er að rata um þær flestar, auk þess sem hægt er að tengja nokkrar þeirra saman í lengri göngur. Öllum leiðum er auk þess skipt upp í þrjú erfiðleikastig; auðvelt, krefjandi og erfitt. Í bækl­ ingnum eru þeir göngugarpar, sem ætla í lengri göngur, minntir á að lítið yfirborðsvatn sé í þjóðgarðinum og því sé nauðsynlegt að hafa vatn meðferðis. Þjóðgarðurinn er opinn allt árið og má m.a. finna göngubækling­ inn í gestastofu þjóðgarðsins sem er til húsa á Hellnum. Einnig má finna bæklinginn á vef Umhverfisstofnun­ ar, www.uts.is, undir liðnum Útgefið efni: bæklingar.  SkeMMtilegar gönguleiðir Öll fjölskyldan getur fundið sér eitthvað til skemmtunar á ferð um Vesturlandið. Á vefsíðu mark­ aðsstofu Vesturlands, Upplifðu Vestur land, má finna samantekt á því skemmtilegasta sem börn geta gert á svæðinu. Hér eru nokk­ ur dæmi. bjarteyjarsandur Á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði er sveitabær sem gaman er að heim­ sækja sumar jafnt sem vetur. Á vorin er vinsælt að koma í sauð­ burðinn og sjá nýfæddu lömbin. Einnig er gaman að fara í fjöruferð og sjá lífríki hennar. bjössaróló Gamall leikvöllur er í Borgarnesi, hannaður og smíðaður af hug­ sjónamanninum Birni Guðmunds­ syni. Á Bjössaróló eru rólur, renni­ brautir, vegasalt, gamall bátur, brú og ýmislegt fleira skemmtilegt í ævintýralegu umhverfi. Skammt undan er Skallagrímsgarður þar sem margt minnir á söguhetjurnar Egil og Skallagrím. garðalundur Á Akranesi er að finna skemmti­ legan skógarlund sem gaman er að njóta útiveru í. Þar eru ýmis leik­ tæki t.d. strandblaksvöllur, renni­ brautir, frisbígolf, og margt fleira. tröllagarðurinn í fossatúni Við bakka Grímsár er bærinn Fossatún þar sem ýmsa afþrey­ ingu er að finna og þar á meðal er Tröllagarður. Þar eru ýmsar þraut­ ir eins og t.d. tröllagolf, tröllatenn­ is, tröllatog og tröllablak. Einnig eru nokkur tröll á leiðinni en gaman er að taka mynd af sér með þeim. fyrir alla fjölSkylduna 2 9 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :3 2 F B 0 7 2 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 4 1 -5 1 9 8 1 9 4 1 -5 0 5 C 1 9 4 1 -4 F 2 0 1 9 4 1 -4 D E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 7 2 s _ 2 8 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.