Skagfirðingabók - 01.01.1973, Síða 36
SNJOFLOÐIÐ A SVIÐNINGI ÞORLAKSMESSU-
NÓTT ÁRIÐ 1925
eftir KOLBEIN KRISTINSSON
Áður en ég hef frásögn mína, vil ég lýsa því, hvar Sviðn-
ingur er í sveit settur, svo og geta um staðhætti og næsta umhverfi.
Óslandshlíð er austan megin Skagafjarðar, gegnt Tindastóli. Að
baki Óslandshlíðar er bratt fjall, venjulega nefnt í fleirtölu Óslands-
hlíðarfjöll. Yzti bær í Óslandshlíð er Miðhús, en innsti bær var
lengi Miklibær, allt þangað til reist var nýbýlið Hlíðarendi árið
1917. Á Miklabæ bjó Arnór kerlingarnef á 10. öld.
Næsti bær innan við Miklabæ er Sleitustaðir (Sleitu-Bjarnarstað-
ir). Þar er talið, að Sleitu-Björn hafi numið land. Þar hefst Kol-
beinsdalur. Eftir honum fellur Kolbeinsá, almennt nefnd Kolka.
Innan við Sleitustaði er næsti bær Smiðsgerði, þá Sviðningur.
Að baki Kolbeinsdals eru há fjöll og brött, nefnd Hnjúkar. Eru
þeir órofið framhald af Óslandshlíðarfjöllum. Frá Sleitustöðum
inn fyrir Sviðning liggur dalurinn í suðaustur. Eru bæir þeir, er
síðast hafa nefndir verið, allir undir fjallshlíðinni, sama megin ár.
Sá, sem fer inn með ánni, hefur því alla þessa bæi á vinstri hönd.
Handan árinnar er Ástunga, flöt og láglend. Einkenna hana mest
melar og mýrarsund. Næsti bær innan við Sviðning er Saurbær,
sama megin ár, og nokkru innar Skriðuland. Nær svo dalurinn allt
inn á hálendi það hið mikla, er skilur að Skagafjörð og Eyjafjörð.
Milli Sviðnings og Saurbæjar breytir dalurinn stefnu og liggur
síðan í þveraustur. Eru þó áttamiðanir þar jafnan svo, að austur
er talið upp að fjallinu og suður inn eftir dalnum. Sömu áttamið-
34