Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.09.1988, Síða 15

Víkurfréttir - 08.09.1988, Síða 15
 Fimmtudagur 8. september 1988 15 Gunnar Vilbergsson, formaður Lögreglufelags Gullbringusýslu, ásamt Sigurði H. Bergmann. Sigurður er í æfingagallanum frá Sportbúð Oskars og heldur á styrknum frá L.G. Lögreglufélag Gullbringusýslu: Styrkir Sigurð vegna ólympíufarar Lögreglufélag Gullbringu- sýslu hélt á laugardag einum félaga sínum, Sigurði Berg- mann, veglegt hóf í félags- heimili lögreglumanna við lög- reglustöðina í Keflavík. Sigurður Bergmann mun kepjia í júdó fyrir Islands hönd á Olympíuleikunum í Seoul. Sigurður hefur stundað svo til stanslausar æfingar sl. fimm mánuði vegna keppninnar og því var ákveðið á stjórnarfundi hjá Lögreglufélagi Gull- bringusýslu að styrkja Sigurð til fararinnar og því markmið- ið sett á að safna ákveðinni fjárhæð. Fimmtán aðilar lögðu til fjármagn og samtals söfn- uðust eitt hundrað þúsund krónur, ásamt því aðSigurður fékk æfingagalla frá Sportbúð Óskars, auk fjárstuðnings frá Lögreglufélagi Islands. víít þúi hjálpar- sveit? Hjálparsveit skáta íNjarð- vík mun halda kynningar- fund í húsnæði sínu, mið- vikudaginn 14. september n.k.,þarsem starfsemi hjálp- arsveitarinnar verður kynnt. Hjálparsveita skáta í Njarðvík er nú komin í nýtt húsnæði, sem tekið var full- komlega í notkun fyrr í sum- ar. Að sögn Gunnars Stef- ánssonar, varaformanns, er nú fyrst hægt að njóta þess að starfa með hjálparsveitinni. „Ef þú hefur ánægju af úti- veru og fjörugum félagsskap þá er tilvalið að koma i hjálp- arsveitina," sagði Gunnar jafnframt. Kynningarfund- urinn verður, eins og áður sagði, haldinn miðvikudag- inn 14. september í húsnæði Hjálparsveitar skáta iNjarð- vík og hefst kl. 20. SIGURÐUR H. BERGMANN tekur fyrstu ,,skóflustunguna“ í tertu þá er bökuð var og borin fram í liófinu, sem lialdið var Sigurði til heiðurs. Ljósmyndir: hbb. BRIDS: Úrslitaleikur og árshátíð Úrslitaleikurinn í sumarbik- arnum fer fram á laugardag- inn á Glóðinni og hefst kl. 13.30. Ekki er ljóst hvaða sveitir‘ komast í úrslit, en í undanúrslitum eru sveit Grethe Iversen gegn sveit Nessins annars vegar og hins vegar sveit Karls Karlssonar gegn sveit Hafsteins Ög- mundssonar. Um kvöldið verður svo árs- hátíð félagsins haldin á Glóð- inni. Borðhald hefst um kl. 20. Byrjað verður á á aspas- súpu og síðan verður borið fram lambalæri af villtu, ís- lensku lambi, A la Glóðin, og kaffi á eftir. Eftir borð- hald verða síðan verðlaun fyrir síðasta keppnistímabil af- hent. Síðar um kvöldið skemmtir síðan gítarsnilling- urinn írski, Michael Kiely. Miðaverði er stillt mjög í hóf eða kr. 1.300. A mánudeginum eftir árs- hátíð verður aðalfundur fél- agsins í Golfskálanum í Leiru kl. 20, þar sem kosin verðurný stjórn meðai annars. Eftir að- alfundinn verður að sjálfsögðu gripið í spil. Mánudaginn 19. sept. verð- ur fyrsta spilakvöld vetrarins. Stjórnin Dagmömmur í Keflavík athugið Endurnýja þarf dagmömmuleyfi árlega. Umsóknir þar um þurfa að berast skrif- stofu félagsmálastjóra fyrir 22. sept. n.k. Umsóknirfrá konum semóska eftiraðger- ast dagmömmur þurfa einnig að berast fyrir sama tíma. Allar upplýsingar veittar á skrifstofu fél- agsmálastjóra, Hafnargötu 32, III. hæð, sími 11555. Félagsmálastofnun Keflavíkurbæjar I fti Byggðasafn Suöurnesja n M ííi ii iii ii K) Opið á laugardögum kl. 14 - 16. Aðrir tímar eftir samkomulagi. Upplýsingar í símum 13155, 11555 og 11769. Súðumesjametm!. MuttíB að sfyía söfnunarbaufyim D- áímusamtal^anna jyrír ncestu mánaðamót. Einbýlishús til leigu 149 m2 einbýlishús, 5 svefnherbergi og 50 m2 bílskúr í Keflavík, fyrir traustan leigjanda. Upplýsingar veittar á Fasteignaþjón- ustu Suðurnesja, ekki í síma. Vélstjóravörður Véistjóravörður óskast á Albert Ólafs- son KE 39. Uppl. eftir kl. 19.00 í síma 15335.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.