Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.09.1988, Side 17

Víkurfréttir - 08.09.1988, Side 17
\>iKurt juíUt Fimmtudagur 8. september 1988 17 Páll skoraði 6 í 10:1 sigri UMFG UIVIFG búið að ráða þjálfara Urvalsdeildarlið Grind- víkinga í körfuknattleik hef- ur ráðið bandarískan þjálf- ara fyrir næsta keppnistíma- bil. Hann heitir Doug Harv- ey, er 39 ára og hefur undan- farin ár þjálfað bandarísk háskólalið. Harvey hafði samband við Grindvíkinga þegar nýráðinn þjálfari þeirra hætti við á síðustu stundu, en hann kom til Is- lands um miðjan ágúst með eiginkonu sinni, sem starfar sem kennari hér á landi í vet- ur. Stjórnaði Harvey fyrstu æfingunni hjá UMFG í fyrra- kvöld. Þá má geta þess að Ástþór Ingason, fyrrum Njarðvík- ingur, hefur ákveðið að leika með UMFG í vetur. Reynir vann UIVIFA Afturelding frá Mosfells- bæ beið lægri hlut fyrir Sand- gerðingum í 3. deildar slagn- um um helgina. Reynismenn skoruðu þrjú mörk gegn einu Mosfellinga, er liðin áttust við í Sandgerði um helgina. Það voru þeir Omar Jó- hannsson, Valþór Sigþórs- son og Helgi Kárason sem skoruðu mörk Sandgerð- inga. Gott hjá Víði Gamla Víðisbaráttan kom upp í Víðismönnum er þeir mættu KS frá Siglufirði á Garðsvelli á laugardag. Lið- in léku jafna knattspyrnu en strákarnir úr kirkjukórnum og löndunargenginu á Siglu- firði voru fyrri til að skora. Eftir mark Siglfirðinga sóttu Víðismenn fast og uppskáru þrjú mörk, fyrst hjá Björg- vini Björgvinssyni (Gutta), síðan glassilegt mark hjá Heimi Karlssyni í upphafí síðari hálfleiks og að lokum annað mark frá Björgvini Björgvinssyni, sem gull- tryggði þar með sigur Víðis- manna. Grindvíkingar óðu í marktækifærum og upp- skáru tíu mörk gegn einu, er Langfjölmennasta „Kristín- armótið" til þessa var haldið 24. ágúst sl. Keppendur voru 57, þar af tvær stúlkur. Keppt var í tveimur flokkum á litla vellinum og einum flokki með forgjöf á stóra vellinum. Enn- fremur voru veitt verðlaun fyrir besta skor á stóra vellin- um, auk margskonar auka- verðlauna. Kærar þakkir skulu hér færðar Kaupfélagi Suðurnesja, sem hefur ætíð gefið glæsileg aukaverðlaun í ,,Kristínar- mótið“. Ennfremur gáfu Atli, veitingastjóri í golfskálanum, og John Prior, golfkennari, mörg aukaverðlaun. Sigur- jónsbakarí sýndi mikinn þeir lögðu slaka Víkverja að velli um helgina í Grindavík. Yfirburðir Grindvíkinga voru gífurlegir, enda höfðu þeir skorað átta mörk á fyrstu tveim stundarfjórð- _ rausnarskap með því að senda a.m.k. 100 manna tertu, sem gladdi svo sannarlega við- stadda. ÚRSLIT Stóri völlur: Besta skor: Helgi Þórisson .......... 83 högg Með l'orgjöf: 1. Albert Hólmgeirss. ... 64 högg 2. Gestur P. Reynisson 67 högg 3. Helgi Þórisson ....... 68 högg Litli völlur: I. flokkur: I. Ookkur (18 holur): 1. Steinar Þ. Stefánsson 74 högg 2. Stefán Guðjónsson ... 74 högg 3. Örvar Þ. Sigurðsson . 83 högg ungum leiksins. Það var Ein- herjinn í Grindavíkurliðinu, Páll Björnsson, sem átti mestan heiður af sigri Grind- víkinga, en hann skoraði sex mörk. Aðrir leikmenn, sem 2. flokkur (12 holur): 1. Gunnar Logason .... 55 högg 2. Hafþór Örn Þórðars. 57 högg 3. Gunnar A. Ingvarsson 60 högg AUKAVERÐLAUN: 1. Fa:st pútt: Rúnar Hallgrímsson 27 pútt. 2. Næstur holu á 3.: Gestur Reynisson. 3. Næstur holu á 8.: Helgi Þórisson. 4. Næstur holu á 13.: Rakel Þorsieinsdóttir. 5. Næstur Itolu á 16.: Sveinn Björnsson. 6. Annað högg næst holu á 2.: Arnar Ástþórsson. skoruðu fyrir Grindvíkinga, voru Freyr Sverrisson, sem skoraði tvö mörk, og þeir Júlíus Pétur Ingólfsson og Ragnar Eðvarðsson með sitt markið hvor. Litli völlur 1. flokkur: 1. Næstur holu á 2.: Stefán Guðjónsson. 2. flokkur: 2. Næstur holu á 2.: Pétur Óli Pétursson. 3. Annað högg næst holu á 4.: Örvar Þ. Sigurðsson. Mótið fór mjög vel fram i alla staði, en svona fjölmennt mót verður ekki haldið án góðrar að- stoðar góðs fólks. Bestu þakkir til Elíasar Kristjánssonar, Gerðu Halldórsdóttur og dóttur hennar, auk allra hinna sem hjálpuðu til. Að lokum ein spurning sem margir hafa velt fyrir sér: HVAR ERU ALLAR UNGU STÚLK- URNAR? K.S. 57 börn í Kristínarmótinu Þátttakendur í Kristínarmótinu, ásamt mótshaldara og hjálparhellum. A innfelldu mvndinni eru sigurvegarar ásamt Kristínu Sveinbjörnsdóttur. Ljósm.: hbb. m J fjSjUf*8 8L ú WgiÚ u ’’T' % J |Rk J %, ^

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.