Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.09.1988, Page 20

Víkurfréttir - 08.09.1988, Page 20
ViKun Fimmtudagur 8. september 1988 AFGREIÐSLA BLAÐSINS er að Vallargötu 15. - .Símar 14717, 15717. TÉKKAREIKNINGUR SPURÐU SPARISJÓÐINN Gerðahreppur vill Helguvík Gerðahreppur hefur sett fram þá kröfu að breyting verði gerð á landamerkjum á Helguvíkursvæðinu. Fer hreppsnefnd Gerðahrepps fram á að landsvæði í kringum Helguvík verði sett undir Gerðahrepp en þetta land- svæði tilheyrir nú Keflavíkur- bæ. Var fundur með deiluaðil- um haldinn hjá samgönguráð- herra, Matthiasi A. Mathie- sen, á mánudagskvöld. A fundi, sem haldinn var í bæjarstjórn Keflavíkur á þriðjudag, kom fram að Kefla- vikurbær þyrfti á þessu svæði að halda undir iðnaðar- og íbúðalóðir, ásamt því að sntá- bátahöfn væri kostur sem gæti komið til framkvæmda. Kom fram í máli Magnúsar Har- aldssonar á bæjarstjórnar- fundinum að hann væri ánægður með þá skoðun bæj- arráðsmanna, að ekki væri til umræðu að santþykkja neinar tilslakanir í landamerkjamáli þessu og fannst samgönguráð- herra vera að gefa Gerða- hreppi góðu tönnina. l.agði Magnús til að á málinu yrði tekið með ákveðni en ekki lát- um. Garðar Oddgeirsson sagði að nágrannabæirnir væru erf- iðir í umgengni og að bæjar- stjórnin hefði ekkert við Garð- menn að tala, né ráðherra. Matthías Á. Mathiesen ósk- aði eftir þvi á fundinum með hreppsnefndarmönnum úr Gerðahreppi og bæjarstjórn- armönnum úr Keflavík að Keflavíkurbær myndi skipa nefnd, sem skipuð væri bæjar- stjóra, einum meirihluta- manni og einum minnihluta- manni, til áframhaldandi við- ræðna. Lagði Vilhjálmur Ketilsson það til á fundi bæjarstjórnar að engin ákvörðun yrði tekin í málinu ,,hér og nú“ og að ekki væri til umræðu að skipa nefnd til að ræða málið. Helguvíkurhöfn, sent Sandgerðingar vilja nú innlima í sveitarfé- lagið. Ljósm.: epj. Deilt um bygg- ingu bílskúrs Upp er komin deila milli húseiganda, bygginganefndar og eldvarnaeftirlits vegna bil- skúrs við Suðurvelli í Keflavík. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum blaðsins var teikn- ing sú sent lögð var fram fyrst ekki samþykkt og kom þá önnur. Síðan hófust bygginga- framkvæmdir, án þess að farið væri eftir framkomnum teikn- ingum að áliti umræddra aðila og nágranna. Bíiskúrinn umræddi. Ljósm.: epj. Að sögn Sveins Núma Vil- hjálntssonar, byggingafulltrúa í Keflavík, hefur húseigandinn breytt staðsetningu skúrsins og fært hann fram um einn og hálfan metra án heimildar bygginganefndar. „Þettatelég þó vera til bóta fyrir nágrenn- ið,“ sagði Sveinn Númi í sam- tali við blaðið. Ekki sagðist hann þó vita um ágreining vegna verks þessa en vissi þó um einhverja breytingu á klæðningu skúrsins án heim- ildar eldvarnaeftirlitsins. Þótt byggingafulltrúi viður- kenni ekki hvað hér er á ferð- inni, er vitað að auk þess, sem áður er komið fram, hefur ver- ið settur gluggi áskúrinn um- fram það sem stendur á teikn- ingu og eins er enginn fagmað- ur ábyrgðaraðili fyrir bygg- ingu þessari, eins og vera ber samkvæmt Iögum. Fjölbrautaskóli Suðurnesja: Hertur agi og betra nám Kennsla er hafin að fullu við Fjölbrautaskóla Suður- nesja. Um 580 nemendur munu stunda dagskóla, þar afum 180nýnemar. Reiknað er með um 150 neinendum í öldungadeild og öðru eins í námsflokkum ogtöivuskóla. Að sögn skólameistara, Hjálmars Árnasonar, hafa verið ráðnir kennarar í allar stöður. Tveirkennararhættu við skólann og tveir eru í or- lofí og í stað þeirra hafa verið ráðnir tólf kennarar, flestir stundakennarar. Sagði Hjálmar að heldur fleiri nemendur væru við skólann þessa önn heldur en síðast. Tvær nýjar brautir verða kenndar, skipstjórnarbraut og sjúkraliðabraut, sem veit- ir full réttindi sjúkraliða. Hjálmar Árnason skóla- meistari sagði að reynt yrði að herða á ástundun nem- enda, jafnframt því að herða umgengnisreglur. „Við vilj- um að nemendur verði í fullu starfi. Okkur leiðist að hafa ietingja í vinnu,“ sagði skólameistari. Tekið verður upp stoðkerfi í kennslu, sem gerir nemendur ábyrgari en áður. „Herturagi.betra nám og menningarlegra líferni," sagði skólameistari að lok- um. 1 — s jtmm i — m TRÉ TRÉ-X byggingavörur Iðavöllum 7 - Keflavík - Sími 14700 Greiðslustöðv- un hjá Fisktorgi Fiskvinnslufyrirtækið Fisk- torg h.f. í Vogum fékk þann 24. ágúst greiðslustöðvun og liggur starfsemi fyrirtækisins nú niðri. Samkvæmt upplýs- ingum blaðsins stafa erfiðleik- ar fyrirtækisins af miklum fjármagnskostnaði og háu fiskverði á fiskmörkuðum, en fyrirtæki þetta rak ekki eigin útgerð og varð því að afla sér hráefnis á fiskmörkuðum. Eftir því sem næst verður komist eru skuldir umfram eignir mjög miklar en helstu aðilarnir, sem eiga útistand- andi hjá fyrirtækinu, eru Byggðastofnun, Samvinnu- bankinn og Sparisjóðurinn í Keflavík. Bílvelta Um kl. 13 á laugardag varð bílvelta á Flugvallar- vegi í Keflavík, er 19 ára gamall ökumaður missti stjórn á bifreið af Benz-gerð, er hann ók. Eru ástæður óhappsins þær að hann ók of hratt vestur Flugvallarveg og er hann kom í beygju, missti hann stjórn áökutæk- inu, sem lenti á ljósastaurog valt. Einn farþegi var í bílnum auk bilstjóra og sluppu þeir báðir án teljandi meiðsla, enda báðir í öryggisbeltum Slökkviliðið í saltfisk Slökkvilið BS var í síðustu viku kallað út vegna reyks í kjallaraíbúð við Hafnargötu í Keflavík. Er liðið kom á vett- vang var mikill reykur í íbúð- inni en enginn eldurinn. Ástæða reyksins var sú að húsráðandi hafði verið að sjóða saltfisk en áður en suðu var lokið hafði hann farið út og í næsta hús til að horfa á sjón- varpið og gleymt pottinum á með fyrrgreindum afleiðing- um. Fá þeir ekkert að éta þarna á slökkvistöðinni?

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.